Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Qupperneq 15

Tölvumál - 01.12.1991, Qupperneq 15
Desember 1991 vandamáli. Hannhringdi til mín fyrr á þessu ári og spurði hvernig þessu væri háttað á íslandi. Ég fór því í nokkrabanka og safnaði saman innleggs- og úttektar- seðlum. Á flesta áttu menn að rita nöfn greiðanda og viðtakanda í nf. En á einstaka stað stóð enn þá"innborgaðaf". Éghefeinnig tekið eftir þvf að á svuntum sem ýmis fyrirtæki og stofnanir hafa látið útbúa íyrir símbréf er prentað "til" eða "b.t." og "frá". Það er þá alveg undir hælinn lagt hvort menn taka tillit til þessa og rita nöfn í ef. og þgf. Jóhan Hendrik sagði að í Færeyjum stæði yfirleitt "til" og "frá" og áleit aðþað væri vegna danskra áhrifa þar sem texti á slíkum seðlum væri yfirleitt þýddur úr dönsku. í Færeyjum hirða menn ekki heldur um að rita nöfn í aukafalli. Það særir máltilfinningu mína að fá t.d. sfmbréf "til Sigrún Helgadóttir". En mér finnst ekkert athugavert við það að viðtakandi sé "Sigrún Helgadóttir". Ég hvet þvf þá sem hanna eyðublöð af þessu tagi til þess að taka mark á ábendingu Jóhans Hendriks og hanna eyðublöð þannig að nöfn geti alltaf staðið í nf. Og enn einu sinni hvet ég lesendur Tölvumála til þess að láta heyra í sér, hringið, skrifið eða sendið tölvupóst. Nokkrar glefsur úr viðskiptasfðum Morgenavisen Jyllandsposten: Þýtt og endursagt: Ágúst Ú. Sigurðsson, ritstjóri Hugbúnaðartryggingar Æ algengara gerist nú að dönsk hugbúnaðarfyrirtæki kaupi trygg- ingar gegn hugsanlegum skaða- bótakröfum frá hendi notenda hugbúnaðarins sem þau hafa framleitt. Dæmi um slfkar skaðabótakröfúr: Bókunarkerfi fyrir hótel gefur ranglega upp (vegna hugbúnaðar- villu) að öll herbergin séu bókuð. Hótelið missir af viðskiptum og fer fram á skaðabætur, sem geta hæglega orðið banabiti lítils hugbúnaðarfyr irtækis. Kgl. Brand er eina danska tryggingafélagið sem til þessa hefur boðið samræmdar hug- búnaðartryggingar. Á síðustu sex mánuðum hefur hið konunglega brunatryggingafélag selt á fimmta tug slfkra trygginga og mun salan ganga vel. Þekkir nokkur lesenda Tölvumála íslenskar hliðstæður eða eru málin hér á landi leyst með því að stofna nýtt fyrirtæki eftir gjaldþrot þess gamla ? Margt smátt 1-2-3/W frá Lotus er komið. Þetta er Windows útgáfa af hinu vel þekkta samofna kerfi sem hefur alls staðar slegið í gegn nema hér á Fróni. Skrifstofukerfið Office frá WordPerfect er nú fáanlegt fyrir Apple Macintosh og getur tengt saman PC og makkatölvur í blandað net. Ennfremur eru væntanlegar útgáfur fyrir Unix, Vax og Windows. Micrsoft býður upp á ýmsar nýjungar fyrir Windows. Fyrst má nefna að hið kunna forrit Works, sem hefur lengi fengist fyrir makkann og MS-DOS kemur nú í Windows útgáfu. MS Publisher er nýtt forrit fyrir uppsetningu á auglýsingum, verðlistum og lík verk. Athyglisverð nýjung í MS Publisher er frumkvæðishamur en þá spyr forritið notandann spurninga um hvað það eigi að gera í stað þess að bíða eftir skipunum. Loks eru komnir tveir nýir leikjapakkar fyrir Windows fyrir þá sem... Micrografx (þessir sem m.a. hafa samið Windows teikniforritið Designer) hafa kynnt enn eitt teikniforritið, Windows Draw. Það er ódýrt (1490 Dkr) og er sagt geta allt það helsta sem ætlast má til af vigurgrunduðu teikniforriti (vector based). Windows Draw fæst á kynn- ingarverði til áramóta, aðeins 990 Dkr. Fyrir 500 Dkr fæst að auki safn með 2200 myndum, sem eru sérstaklega valdar fyrir norðurlöndin !! 15 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.