Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 16

Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 16
Desember 1991 Hvað eru gagnanet? Einar H. Reynis, Pósti og síma í grein er undirritaður skrifaði í Tölvumál fyrir réttu ári síðan var íjallað um framtíðarþróun gagnanoa, eða pakkanaa. í þetta sinn verður farið yfir á hinn vænginn og fjallað almennt um slflc net og eru nú sérstaklega hafðir í huga þeir sem ekkert þekkja til slfkra kerfa. Gagnanetið Vfða í heiminum eru rekin samskiptakerfi sem sérstaklega eru sniðin fyrir flutning tölvugagna. Slfkt kerfi er rekið hér á landi og kallast Almenna gagnaflutninganetið, eða ein- faldlegaGagnanetið. Kerfiþessi eru misjanflegaútfærð en byggja flest á sama grunni sem eru alþjóðlegir staðlar ffá staðlaráðinu CCITT (Consultive Committee for International Telephony and Telegraphy). Staðlarþessi byrja allir á sama bókstafnum, X, og Gagnanetið er oft nefnt X.25 netið, eftir aðalstaðlinum. Staðlarnir eru margir en aðeins fáeinir þeirra skipta almenna notendur einhverju máli. Hvernig vinnur gagnanetið? Það sem einkennir tölvunotkun f fjarskiptum er að tengingar standa oft lengi yfir og að gagnaflutningur er ekki samfelldur. Menn gefa fyrir- skipanir frá hnappaborði og t'á viðbragð frá töivu á hinum endanum sem birtist á skjánum. Þess á milli er "þögn" á línunni. Með þetta í huga eru gagnanet útfærð þannig að eiginlegar símalínur eru samnýttar af mörgum aðilum. Þegar notandi gefur fyrirskipun á hnappaborði er bókstöfunum safnað saman og sendir í einu lagi og kallast slfk sending pakki. Með þessu móti tekst að halda verðinu á gagnaflutningi niðri þannig að gjaldtaka miðast fyrst og fremst við fjölda pakka (gagnamagn) en síður tíma, ólíkt því sem gerist með talsíma. Nánar tæknilega Hér á landi er rekið opinbert gagnanet sem samanstendur af netstöðvum dreifðum um landið, sem síðan eru samtengdar með símalínum. Hver netstöð er í raun tölva sem sinnir jjarskiptaþjónustu og notendur geta tengst henni með ýmsu móti. Tengingar þessar eru ýmist samkvæmt CCITT stöðlum, eða utan þeirra í sérstökum tilvikum. 16 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.