Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Side 21

Tölvumál - 01.12.1991, Side 21
Desember 1991 ómögulegt að ná til hans og hon- um verið ómögulegt að ná þeim upplýsingum sem verið er að reyna að koma til hans. Hér þurfa tölvuframleiðendur og ljarskiptaframleiðendur að sam- einast um að leysa þetta vandamál. ISDN of lítið og seint? Margra álit er að ISDN kerfið muni leysa þessa þörf okkar fyrir aðgang að þeim kerfum sem áður eru nefnd. Á þeim tæpu fimmtán árum sem ég hefi starfað við tölvu- og íjarskiptamál hefur ISDN alltaf verið til umræðu og íjallað um það sem hina einu sönnu leið. Þvf miður hefur kom- ið íljós að ISDN er alltaf of lítið of seint og þróunin á tölvusviði alltaf verið einu eða tveimur skrefum á undan. Þá leysir það ekki þá þörf að leyfa hreyfanleika einstaklingsins en jafhframt íullan aðgang hans að þessum kerfum og þeirra að honum. Ný hugsun í tölvumálum Þörf er fyrir nýja hugsun í tölvu- og íjarskiptamálum. E.t.v. er best að lýsa því tæki sem gæti sameinað þessa þætti alla. Þessu tæki, Snotru, lýsti ég að nokkru á ET degi Skýrslutæknifélags íslands árið 1989 og þótti þá djarflegt. Tækniþróun hefur hins vegar gert margt af þvf sem þá var framtíðarmúsík að veruleika en einnig hafa nýir þættir komið til. Því er ástæða til þess að kynna nýja útgáfu af Snotru - Snotru 2.0. Snotra útgáfa 2.0 - skilgreining á framtíðartölvu Frumskilyrði er að Snotra sé alltaf með notandanum og aðeins þurfi eitt númer til þess að ná til hennar. Hún þarf að geta tekið við upplýsingum frá öllum þeim kerfum sem áður eru talin. Snotra þarf því að sameina í sama tækinu fjarskiptabúnað og tölvu. Fjar- skiptabúnaðinn til þess að geta haft aðgang að öðrum tölvu-, fjarskipta- og talsfmakerfum en tölvuna til þess að kalla fram, birta og vinna úr upplýsingum og sjáumþávinnslusem notand- inn fer fram á. Snotra þarf að vera það smá að hana megi bera á sér án þess að mikið fari fyrir henni þannig að hún sé alltaf þar sem notandinn er. Þróun í smá- rásatækni leyfa nokkra bjartsýni um að þessu marki verði náð. Nýjar inntaks- og úttaksaðferðir Vegna smæðar Snotru er ljóst að hefðbundnar inntaks- og úttaks- aðferðir s.s. skjár og lyklaborð muni gera hana óþénuga. Nýlegar framfarir í talskynjun- og túlkun gefa tilefni til þess að ætlast til þess að Snotra verði fær um að skilja talað mál og tjá sig með sama hætti, hvorutveggja um örsmáa nema og boða sem komið er fyrir á höfði notandans. Ekki verður hægt að birta myndrænt efni öðru vísi en með myndvörpun á gleraugu eða lítinn skjá sem yrði settur framan við andlitið. Hvorutveggjaernotað í dag í hernaðartækni og f iðnaði. Margmiðlunarbúnaður í Snotru Þegar þessi búnaður er kominn liggur beint við að nema út- varps- og sjónvarpssendingar sé þess óskað. Nú er farið að taka ljósmyndir á seguldiska sem síðan eru færðir í tölvu f þar til gerðu disklingadrifi. Ekki er fráleitt að þessa tækni megi sameina í Snotru til þess að hún geti myndað skjöl eða annað umhverfi notandans til varðveislu og/eða sendingar um bréfsímakerfið. Ekki þyrfti að nota disklinga sem millilið þar sem unnt yrði að setja myndina beint á disk Snotru eða senda hana um fjarskiptahluta hennar í tölvukerfi notandans. Vegna alls þessa þyrfti að vera allstór geymslumiðill í Snotru til þess að hún gæti geymt það sem inn kemur en jafnframt stórar skrár sem notandanum væru nauðsynlegar við dagleg störf. Nú þegar er farið að fjalla um Qórföldun á geymslugetu þeirra seguldiska sem eru smæstir í dag og lfkur taldar á að enn lengra verði komist. Með öllum þeim búnaði sem þegar er fyrir hendi í Snotru 2 ætti að vera auðvelt að tengj a við hana leiðsögukerfi og/ eða tilkynn-ingakerfi til stóraukins öryggis (var einhver að nefna Stóra bróður??). Er Snotra þegar til? Þessi ffamtíðarsýn krefst öflugra fjarskipta við umheiminn og tækni sem er á þröskuldinum eða er þegar til. Snotra er nú þegar til í tilraunastofum bandaríska hers- ins en þar hafa verið smíðaðar einfaldar slíkar tölvur sem nota skjá til þess að koma landakortum og staðsetningarupplýsingum á framfæri við hermanninn sem ber hana. Tölvan er borin á hjálmi hermannsins og er í fjar- skiptasambandi við móðurtölvu. Að lokum Ég vona að einhver hafi haft gaman af þessum hugleiðingum mfnum um fjarskipti og tölvur framtíðar. Það er skoðun mín að við eigum af og til að lfta upp úr amstri dagsins og láta okkur dreyma um það sem getur orðið. Þar eru mínir draumar ekki merki- legri draumum þfnum. En öll eigum við draum um bjarta ff amtíð og ffiðsæld fyrir mannkyn allt. Það vona ég að verði að veruleika fyrir okkur. 21 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.