Vísir - 21.08.1962, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 21. ágúst 1962.
VISIR
Ðillonsliús var þéttsetið laugardag og sunnudag, úti og inni. Það mun vera einasti veitinga-
staður borgarinnar, sem hefur útiveitingar.
Á laugardaginn voru gefin saman brúðhjón í Árbæjarkirkju,
en það fer nú mjög í vöxt að þar gangi menn í heilagt hjóna-
band. Brúðhjónin heita Oddný Bergþórsdóttir og Guðmundur
Guðmundsson. Séra Bjami Sigurðsson prestur að Mosfelli i
gaf saman.
Borgin okkar átti 176. af-
mælisdag sinn á laugardaginn
var, 18. ágúst. Að því tilefni
var boðið upp á fjölskrúðuga
laugardagsdagskrá á útivistar
svæðinu við Árbæ, en eins og
kunnugt er, hefur Árbæjar-
safn tekið upp á þv£ nýmæli
að hafa glímu- og þjóðdansa-
sýningu til skiptis á laugar-
dögum kl. 5 á sýningarpalli á
túninu. Að þessu sinni var
hvort tveggja, Þjóðdansasýn-
ing undir stjóm Sigríðar Val-
geirsdóttur og glímusýning
undir stjórn Harðar Guð-
mundssonar, en Lúðrasveitin
Svanur lék íslenzk lög á und-
an, stjómandi Þórir Sigur-
bjömsson. Aðsókn mátti
heita góð eftir veðri, því að
það brá til vætu eftir hádeg-
ið.
Á sunnudaginn var hins
vegar mikill mannf jöldi sam-
ankomin á Árbæjartúni og
fólk naut þess óspart að hvíla
sig upp við ihnandi töðusætin
á túninu í góðviðrinu. Af-
mælisdeginum lauk á þann á-
nægjulega hátt, að gefin voru
saman brúðhjón í gömlu kirkj
unni. 1
Glíma og þjó
í Arbæ
9