Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 10

Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 10
Október 1992 hlutverk staðla: "Það er ljóst, að staðlar munu gegna stóru hlut- verki í afnámi tæknilegra við- skiptahindrana innan Evrópu. Gerðar verða kröfur um sam- ræmda staðla fyrir framleiðslu- mál, gerð umbúða, vörumerk- ingar, innihaldsupplýsingar o.s.frv., um lágmarksgæði frarn- leiðsluvara, senr seldar verða innan sameiginlega markaðs- svæðisins, og síðast en ekki síst unr að viðurkenndir aðilar votti, að allar vörur séu framleiddar í samræmi við gerðar kröfur".[ 10] UT-staölaráð Árið 1986 gekkst Iðntækni- stofnun Islands fyrir því að komið var á fót samstarfshópi um stöðlun á sviði upplýsinga- tækni. Hópurinn var upphaflega nefndur Tölvuráð en síðar UT- staðlaráð. Tilteknar stofnanir og samtök tilnefndu í ráðið. Árið 1992 var ráðið skipað sem hér greinir: Gísli Már Gíslason, Verslunar- ráði Islands, Friðrik Sigurðsson, Félagi íslenskra Iðnrekenda, Helgi Jónsson (ritari), Skýrslu- tæknifélagi íslands, Jóhann Gunnarsson, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Oddur Benediktsson (formaður), Háskóla íslands og Þorvarður Jónsson (vara- formaður), Pósti og síma. Gísli Már, Helgi, Oddur og Þorvarður höfðu setið í ráðinu allt frá stofnun þess. Jóhannes Þorsteinsson, starfsmaður ITI, tók upphaflegamikinn beinan þátt í störfum ráðsins og síðar Þorvarður Kári Olafsson. Tilgangur UT-staðlaráðs var einkum þessi: Að fjalla um stöðlun er varðar séríslenskar aðstæður og að mæla með stöðlum sem bæti vinnuaðstöðu og verklag í íslenskum tölvu- og hugbúnaðariðnaði. UT-staðlaráð var vettvangur samráðs og verkefnavals en hin eiginlega vinna við stöðlun og þátttöku í alþjóðasamstarfi var í höndum starfsmanna STRI og vinnunefnda. All margir starfshópar og nefndir hafa starfað með UT-staðlaráði á liðnum árum. Á síðast liðnum tveimur árum voru þeir þessir: Hugbúnaðarnefnd, nefnd um útboð og verksamninga (IST 32) og hnappaborðsnefnd. Auk þess hafa ICEPRO nefndin (um verklag í viðskiptum), samstarfsnefnd um upplýsinga- mál (STUPP), flokkunarnefnd bókasafna og EDI félagið haft samvinnu við STRÍ og UT- staðlaráð. Sem stendur taka Islendingar þátt í nokkrum alþjóðlegum vinnu- hópum sem fjalla um stafatöflur. Jóhann Gunnarsson er í ISO/IEC/ JTC/SC2/WG3 nefnd um stafa- töflur. Þorvarður Kári er ritari nýstofnaðrar nefndar CEN TC304 um stafatækni. Auk þess tekur Póstur og sími þátt í ýmsum vinnuhópum. Enn ber að geta þess að UT- staðlaráð átti frumkvæðið að tveimur samnorrænum samstarfs- verkefnum um gerð handbóka. Hið fyrra "Modeling a Software Quality Handbook"[14] varðar gæðastjórnun í hugbúnaðargerð með tilliti til ISO 9000 staðlanna. Verkefnið var unnið af starfshópi sem skipaður var íslenskum og finnskum sérfræðingum. Al' ís- lands hálfu var hópurinn skipaður þeirn Gunnari H. Guðmundssyni, Oddi Benediktssyni (verkefnis- stjóra), Olgeiri Kristjónssyni, Þorvarði Kára Olafssyni og Vilhjálmi Þorsteinssyni. MSQH handbókinni hefurnú verið dreift í nær 3000 eintökum og víða um lönd. Síðara verkefnið "Nordic Cultural Requirements on Information Technology" fjallar kerfisbundið um sérþjóðlegar kröfur til upplýsingatækninnar fyrir Norðurlönd hvert fyrir sig. ÞorvarðurKári varverkefnisstjóri þess verkelnis. Hann og Jóhann Gunnarsson unnu mest í því af hálfu íslendinga.[15] Snemma árs 1989 höfðu alls 18 staðlar í tölvutækni verið sam- þykktir sem íslenskir staðlar. Nú, þremurárum síðar, erfjöldi þeirra kominn á annað hundrað og eru það fyrst og fremst CEN skuld- bindingarnarsemþessuvalda. Til algerra undantekninga heyrir hér að athugasemdir berist um staðlafrumvörp um upplýs- ingatækni og er ástæðan ein- faldlega sú að enginn gefur sér tíma til að rýna vel í þessi frumvörp. Mikið vantar einnig á að hagsmunaaðilar kynni sér gildandi staðla. Á síðustu nrisserum varð UT- staðlaráði ljóst að í óefni stefndi í þessum málum og þá ekki síst hvað varðar íslensku stafina í stafatöflum. Síðast liðið vor var því ákveðið að athuga hvort ekki væri rétt að breyta starfseminni og breikka starfs- grundvöllinn svo um munaði. Stofnaður var starfhópur til að semjatillögurumbreyttatilhögun starfseminnar. I starfshópnum störfuðu þeir Friðrik Sigurðsson (formaður), Gústaf Arnar, Þorvarður Kári og Þorvarður 10 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.