Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 22

Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 22
Október 1992 Hvers vegna er hugbúnaður svona dýr? Nokkrar pottþéttar leiðir til að búa til rándýran hugbúnað! Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur Til eru margir hillumetrar af góðum bókum senr kenna fólki hvernig eigi að biia til góðan og ódýran hugbúnað sem svarar kröfurn notenda. Þessar bækur, hver um sig, telja upp hundruð ef ekki þúsundir ráða/reglna sem æskilegt þykir að fara eftir við hugbúnaðargerð. Mikilvægi þess að tölvufólk nýti sér slíkar bækur verður ekki dregið í efa en oft reynist erfitt að greina aðalatriðin frá auka- atriðunum þegar kemur að því að nota ráðin/reglurnar við raunverulegar aðstæður. Hvernig væri að skoða málið frá öðru sjónarhomi? - Draga fram í dagsljósið hvaða mistök eru dýrust eða nreð öðrum orðum hvernig maður fer að því að búa til dýran hugbúnað. Það eru tiltölulega fá atriði sem skera úr um hvort hugbúnaður verður rándýr eða ekki þrátt fyrir þann aragrúa atriða sem nefnd eru í bókum um hugbúnaðargerð og verkefnastjórnun. Þessi atriði verða talin upp hér á eftir og eru aðalatriðin sett fram sem ráð fyrir þá sem vilja búa til dýran hugbúnað. Aðrir geta litið á þau sem víti til varnaðar. Hér koma svo ráðin: 1. Ekki kynna þér stefnu fyrirtækisins Ef fyrirtækið sem þú vinnur fyrir hefur rnótað sér stefnu - þá gættu þess að kynna þér hana ekki svo að hugbúnaðurinn sem þú býrð til verði örugglega ekki í sam- rænii við hana. Þar með er nokkuð víst, að þegar hugbún- aðurinn er kominn í notkun, rnunu koma fram kröfur um að farið verði út í kostnaðarsamar breytingar eða að byrjað verði upp á nýtt. 2. Leystu vandamál dagsins í dag og hafðu ekki áhyggjur af framtíðinni Það er alkunna hvað erfitt er að fá stjórnendur fyrirtækja til að kynna sér tölvumálin vel hvað þá að samþykkja áætlanir um tölvu- væðingu, eitthvað fram í tímann. Þegar búið er við þekkingar- og áhugaleysi stjórnenda og það fer saman með áætlanaleysi verður útkoman afar ómarkviss vinnu- brögð. Þetta þýðir dýrar lausnir og tilviljanakennda forgangs- röðun verkefna. 3. Ekki skipta verkefnum í áfanga Ef þú skipuleggur stór og sntá verkefni þannig að þau séu einn stór áfangi, svo að hvorki not- endur né hugbúnaðarfólk sjái árangur vinnu sinnar fyrr en verkefninu er lokið, þá er öruggt að fólk missir áhuga á verkefninu og það dregst á langinn. Einnig aukast líkur á því að mistök í hönnun uppgötvist ekki fyrr en allt kerfið er tilbúið og miklu dýrara er að gera breytingar en fyrr. Notkun frumgerða hefur svipuð áhrif á notendur og hugbúnaðarfólk og áfanga- skipting verkefna - eftirvænting og áhugi rekur verkefnin áfram. Sem sagt, engar áfangaskiptingar og engar frumgerðir. 4. Ekki eltast viö tískusveiflur í hugbúnaðargerðinni Þróunarverkfræri (Case-tool) í dag - hlutbundin hugbúnaðargerð á morgun! Það er afgerandi þegar maður gluggar í greinar urn þróunarverkfæri, að flestir seni hafa reynt þau telja að þegar til lengri tíma er litið þá styttir notkun þessara verkfæra þróunartíma hugbúnaðar og lækkar þar með kostnaðinn. Að sjálfsögðu ganga allir í gegnum byrjunarörðugleika og þurfa að eyða töluverðum tíma í að læra en þessi tími skilar sér seinna. Þeir sem áhyggjur hafa af háu verði á hugbúnaði hafa margir sett allt sitt traust á hlutbundna hugbúnaðargerð og þróunar- verkfærihenni tengd. Teljamenn að þessar aðferðir muni skila meiri framleiðni m.a. með mikilli endurnýtingu hluta og minni viðhaldskostnaði eða með öðrum orðunr ódýrari hug- búnaði. Þeir sem vilja búa til dýran hugbúnað ætlu því að forðast öll verkfæri sem rekur á fjörur þeirra. Þá er konrið að hefðbundnum greiningar- og hönnunar- aðferðum (Yourdon, Myers, Jackson). Urn þær gildirþað sama og urn þróunarverkfærin - þær 22 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.