Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 11
Júní 1993
menningstölvu. í tengslum við
þættina var hönnuð tölva sem
hlaut nafnið BBC Microcom-
puter. Þessi tölva varð talsvert
útbreidd, enda hraðvirk (með 2
MHz 6502 örgjörva og góðum
BASIC-túlk) og með fína lita-
grafík. Hér á landi fór BBC í
fjölmarga skóla og er hana enn
að finna víða í tölvukennslu.
íslensk tölvufyrirtæki
Á árunum 1980-1984 voru í hópi
helstu íslensku tölvufyrirtækjanna
nokkurfyrirtæki semnúhafadáið
drottni sínum eða dregið sig út
úr tölvumarkaðnum. Meðal
þeirra má nefna Kristján O.
Skagfjörð (með DEC, Ericsson
og Nokia), Skrifstofuvélar, Gísla
J. Johnsen, Tölvubúðina, Tandy
á íslandi (sem var með verslun
við ofanverðan Laugaveg) og
Hagtölu. Síðastnefnda fyrirtækið
flutti inn og aðlagaði færeyskan
bókhaldspakka sem skrifaður var
í COBOL og átti ættir að rekja til
Danmerkur. Þessi pakki var
keyrður í nokkrum fyrirtækjum á
Tandy TRS-80 Model IV, sem
vann undir stýrikerfinu TRS-
DOS. Sú tölva var m.a. inerkileg
fyrir þá sök að nota 8 tommu
disklingadrif.
Fyrirtækið Einar J. Skúlason um-
breyttist í núverandi mynd vorið
1983, þegar nýir eigendur tóku
við því og fyrirtækið náði
tímamótasamninguin við bank-
ana um uppsetningu afgreiðslu-
kerfis frá Kienzle. Eftir að
Tölvubúðin hætti rekstri tók EJS
við umboði hennar fyrir Victor
tölvur, sem síðar reyndist hinn
mesti happafengur. EJS hafði
reyndar frá fornu fari verið með
umboð fyrir vörur frá Victor.
Örtölvutækni (í sinni upprunalegu
mynd) flutti inn skjái, m.a. frá
Beehive, og ýmis önnur jaðar-
tæki. Sérstaða Beehive-skjánna
var sú að þeir buðu fullkomna
íslenskulausn, sem var fáheyrt í
stórtölvuumhverfi þess tíma.
Náðu þeir góðri markaðs-
hlutdeild. ÖTT smíðaði einnig
margvíslegan rafeindabúnað, t.d.
mæla fyrir skip.
Eitt fyrirtæki hefur lifað nánast
frá upphafi ET-væðingarinnar, í
gegn um súrt og sætt, en það er
Mícrótölvan. Þar á bæ hafa menn
fylgst með uppgangi og hnignun
CP/M-80, reynt fyrir sér með
CP/M-86 fyrir tölvur frá Vector
Graphics (sem síðar ákvað að
sérhæfa sig í tölvukerfum fyrir
landbúnað) og AOS fyrir Data
General, söðlað yl’ir í MS-DOS
og tekið þátt í sniðsmækkun og
netvæðingu með Novell net-
kerfum. Má með sanni segja að
Mícrótölvan hafi sýnt mikinn
sveigjanleika í sinni viðburða-
ríku sögu.
IBM PC kemur, sér og
sigrar
Fyrstu IBM PC tölvurnar munu
hafa verið fluttar inn snemma árs
1983 eða jafnvel í lok 1982.
Sjálfur sá ég fyrst IBM PC á
kynningu hjá tölvuskólanum
Framsýn vorið 1983, en sá skóli
var þá nýstofnaður. Sérstaklega
kom hnappaborð PC á óvart, en
það var allt öðruvísi en menn
áttu að venjast; hnapparnir gáfu
frá sér sérkennilegan smell þegar
stutt var á þá og vendihnappurinn
(Enter) hafði snertiflöt sem var
jafnstór öðrum hnöppum en ekki
stæiri eins og algengast var.
Fyrsta IBM PC/XT tölvan kom
hingað árið 1984 á vegum Skrif-
stofuvéla, sem sáu um sölu PC
tölva ásamt Gísla J. Johnsen og
Örtölvutækni. Sú tölva var
reyndar seld íslenskri forritaþróun
hf., þar sem greinarhöfundur
starfar, á kr. 163.000 (þá), og
þótti mikið kostaboð, enda kaup-
endunum fyrirskipað að láta ekki
verðið uppi við nokkurn mann.
Vélin var með 10 Mb disk og
þótti fær í flestan sjó. I dag fást
sennilega þrjár fullkomnar 486
tölvur með góðum diskum og
litaskjám fyrir sömu upphæð og
þessi eini PC/XT kostaði þá.
Keppinautar IBM PC
Eftir þetta þróaðist markaðurinn
hér hratt. IBM PC/AT kom
hingað 1985 og um svipað leyti
fóru að bjóðast hér margvíslegar
IBM samhæfðar tölvur, þar á
meðal hin íslenska Atlantis. Enn
voru þó til nokkrar tegundir tölva
sem ekki voru IBM samhæfðar
þótt þær ynnu með MS-DOS og
hefðu Intel 8088 eða 8086 ör-
gjörva. Meðal þeirra má nefna
HP 150 tölvuna sem hafði
snertiskjá, Wang Professional
Computer sem seldist nokkuð hér
um skeið, NEC lita-ET o.fl. Ein
tölva náði sérstöku forskoti hér í
árdaga MS-DOS, en það var DEC
Rainbow. Þessi tölva hafði á að
skipa bæði Z80 og 8088 örgjörv-
um og gat keyrt bæði 8 bita og 16
bita forrit. Hún hafði einnig
innbyggðan VT220 skjáhermi.
DEC Rainbow var fyrsta tölva
Islenskrar forritaþróunar hf. og
var fyrsti íslenski viðskipta-
hugbúnaðurinn fyrir MS-DOS
þróaður á Rainbow. Sú tölva er
enn til og bíður þess að fá sess
við hæfi í glerkassa í móttöku
fyrirtækisins, sem á 10 ára afmæli
í ágúst næstkomandi.
11 - Tölvumál