Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 22

Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 22
Júní 1993 Tungutakið Þrátt fyrir ötult starf málverndarsinna er ljóst að tölvubyltingin ríður yfir hraðar en tungumálið fær hent reiður á. Afleiðing þessa er meðal annars sú að upp hafa sprottið fjölmargir leyndir afkimar tungumálsins, þar sem einungis innvígðir tölvunotendur hafa aðgang að samskiptakerfinu. Einn starfsmanna Tölvumála heyrði einmitt á tal þeirra kumpána Björns og Eiríks á lítt þekktum tölvubar í skuggahverfi Reykjavíkurborgar. Ef til vill hefur það sem hér kemur á eftir merkingu fyrir einhverja lesendur. E: Kveikt’á tölvunni B: Okei. Hei, hún startar ekki, er það mónitorinn eða er páversöpplæið farið aftur? E: Ýtt’á rísett. B: Okei, nú fæ ég promptið, átt þú ekki júsemeim? E: Jú, loggaðu þig inn á mér og notaðu gamla passorðið. B: Okei, þá erum við komnir inn í Vinndós, á ég að far’inn í editor eða vörd? E: Opnaðu fælmanidjerinn, við þurfum að lókeita fælinn. B: Er hann ekk’á þessu dærektoríi? E: Jú, þama er bakk fællinn, dílítaðu honum og ríneimaðu meinfælinn. B: A ég svo að tvíklikka? E: Já, þá komum við inn í vördið. B: Hei, hvar er kúrsörinn? E: Þarna kemur hann, ókei, keyrðu spellerinn á þetta. B: Nó errors segir hún, eigum við þá að rípleisa háskóli viþð háskólinn? E: Já, kíkjum svo á þetta í print prívjúinu. B: Þett’er flott, við þurfum kannski aðeins að breyta margínunum. E: Já, stækkaðu þær aðeins og færðu fúdderinn neðar. Peidsaðu aðeins dán. B: Þett’er last peids. E: Ókei, printaðu’etta. B: Hei, við fáum error. E: Já, kansellerðu þessu, við þurfum að fara í kontról panelinn og konnektera njúv printer, þett’er leiserinn. B: Ókei, þá er settöppið klárt, nú ætti þett’að printast. E: Jájá, gengur flott. B: Hvað er’etta annars? E: Veit ekki, held’etta sé eitthvað frá Orðanefnd. E-i'rilcvJv- Oo\ \StoVv\ qm) jpeSsi rtyjo \ht* H^S 22 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.