Vísir - 25.08.1962, Blaðsíða 16
Wíí}-
;V. & §5
i|pÍ#í
;
• »>»»»•»•■■•<>
'&y '"'? , '' ' Æh v } ?■
; v , SÍ \
í>-:-•>•>>:•'■■:•• •• :•:■: ■
i
V
: .
VISIR
Laugardagur 25. ágúst 1962.
Hljómleikar
á Akureyri
í tilefni af afmæli Akureyrarbæj-
ar, mun Sinfóníuhljómsveit ísiands
halda tónleika á Akureyri. Verða
þeir haldnir þann 13. september í
Akureyrarkirkju og stjómar Róbert
Abraham Ottósson hljómsveitinni.
Á tónleikunum flytur hljómsveit-
in forleik eftir Weber, síðan flytur
Páll ísólfsson orgelkonsert eftir
Handel, Guðmundur Jónsson syng-
ur með hljómsveitinni og síðan er
sinfónfa eftir Mozart og mars eftir
Pál ísólfsson.
Ætlunin er að fara að þessu
loknu í Mývatnssveit og halda þar
einn konsert. Á Ieiðinni til baka
er svo í ráði að halda konsert í
Bifröst og Akranesi.
Von er á hinum nýja stjórnanda
hljómsveitarinnar, William Strick-
land, seint í september mánuði og
verða fyrstu hljómleikar vetrarins
í Reykjavík haldnir fimmtudaginn
11. október, og síðan annan hvem
fimmtudag eftir það.
Bílabrautin verður brátt steyptj
700 þús. plöntur gróður
settur ú síðustu úri
fyrradag, eru nú miklar fram-1
kvæmdir hafnar við Keflavíkur-,
veginn, svo og vegarspottann;
fyrir ofan Hafnarfjörð. Ér verið
að hækka síðamefnda veginn,
breikka og gera hann beinni.
Sigurlaugur Þorkeisson
Um 700.000 trjáplöntur
voru gróðursettar víðsveg-
ar um landið á vegum
Skógræktarfélags íslands
á síðastliðnu ári. Er mikil
grózka í félaginu og hugur
í öllum meðlimum.
Flestar þessar plöntur
voru gróðursettar í þeim
töndum þar sem álitið er
að skógrækt sé arðbærust.
Mikil grózka er í félaginu og
hugur f meðlimum um að efla starf-
Blaðafulltrúi hjá Eí
Þær breytingar verða nú á skrif-
stofu Eimskipafélags íslands að
Slgurlaugur Þorkelsson, sem verið
hefur yfirmaður farþegadeildar, læt
ur nú af þvf starfi, en við því tekur
nýr maður hjá félaginu, Ágúst
Faaberg. Sigurlaugur mun hins veg
ar taka að sér að vera fulltrúi
félagsins 1 samskiptum þess við
blöð og útvarp, ásamt öðrum á-
kveðnum störfum.
Þessar upplýsingar gaf for-
stjóri Eimskipafélagsins, Óttar
Möller, fréttamönnum á fundi
sem hann hélt með þeim um j
borð í Gullfossi í gær. „Við vilj-
um“, sagði Óttar, „hafa sem
bezt samstarf við blöð og frétta-
stofnanir, og greiða fyrir þeim
með allar upplýsingar um rekst-
ur fyrirtækisins. Það gæti komið
í veg fyrir margs konar misskiln
ing, sem einmitt á rætur sínar
að rekja til vanþekkjngar sem
auðvéldlega er hægt að fyrir-
byggja. Því höfum við nú skip-
að sérstakan mann til þessa
starfs með von um að vel tak-
izt“.
Blaðamannafundur þessi var þó
fyrst og fremst til að kynna frétta
mönnum hina nýju vetraráætlun
Framhald á bls. 5.
semina á allan hátt. Sé§t,j
á hinum geysifjölmenna aðalfundi
félagsins sem settur var að Bifröst
nú í morgun.
Hákon Guðmundsson formaður
Skógræktarfélagsins setti fundinn
og flutti skýrslu um markverð mál
á árinu. Þá flutti Hákon Bjarnason
skýrslu um starfsemi stjórnarinnar
og þau mál sem hún afgreiddi á
árinu.
Snorri Sigurðsson erindreki las
síðan skýrslu um starfsemi héraðs-
félaganna.
Aðalmál félagsins á síðasta ári
var norska þjóðargjöfin (6 milljón
irnar) sem varið var að vissum
hlúta til tilraunastarfa og einnig
til gagnkvæmra samskipta norskra
og íslenzkra skógræktarmanna.
Flestar þær plöntur sem gróður-
settar voru, voru greniplöntur. Mik-
ill hörgull er hins vegar á furu-
tegundum og lerki.
Skógræktarfélagið mun stefna
að því í framtíðinni að gróðursetja
þær plöntur sem arðbærastar eru,
, og leggur mikla áherzlu á að geta
gróðursett án þess að vera síðan
bundið af uppeldi plantnanna siðar
I meir. Væntir hún stuðnings ríkis-
yaldsins í þessum efnum, en ráð-
andi menn hafa gefið vilyrði fyrir
þvi í framtíðinni.
• Fundarmenn hafa farið um Borg-
arfjarðarhérað, meðal annars í
Norðtunguskóg og Jafnaskarðs-
skóg.
Hafa þessar framkvæmdir stað'
1 ið yfir nú um alliangan tíma og
eru Iangt á veg komnar.
Fréttamenn Vísis brugðu sér
suður þangað f gærdag, tóku
myndir og þurftu ekki lengi að
dvelja til að sjá á öllum vegs-
ummerkjum að innan skamms
yrði þarni kominn fínasti
autobane".
Líklegt er að vinnu við veg-
mn ljúki ekki fyrr en í Iok
september og þá fyrst verður
farið að steypa veginn.
16 flugliðar i vélflugu-
keppninni á morgun
Ef vel viðrar á morgun, munu
minnst sextán íslenzkir flugliðar
heyja með sér vélflugkeppni er
fram fer á veguir. Flugmáiafél-
ags Islands. Keppnin er tvímenn
ingskeppni og er þátttaka heimil
öllum íslenzkum flugliðaskír-
teinishöfum, en annar verður að
vera flugmaður, hinn t. d. flug-
leiðsögumaður eða flugumferðar
stjóri.
Keppni þessi mun mjög reyna
á hæfni þátttakendanna. Henni
er skipt í þrennt, flugleiðsögn.
lendingar og sérþrautir.
keppnisstjórn 30 mín. fyrir flug
leiðina, en keppendur mæta hjá
keppnisstjórn 30. mín. fyrir flug
tak. Taka þar við lokuðu um-
slagi þar sem flugleiðin er á-
kveðin, en síðan er þeim gef-
Framhald á bls. 5.
í sambandi við fiugkeppni mun fara fram flugmótelsýning
og á henni koma fram margt skemmtilegra mótela.
Myndin er byrtist með frétt þessari tók I. M. ljósmyndari
Vísis af tveimur þátttakendum í flugkeppninni þeim Stefáni
Þór Jónssyni og Jóhanni Víði Harðarsyni, stuttu áður en þeir
lögðu upp í æfingarflug fyrir keppnina.