Vísir - 11.09.1962, Síða 7
Aldrei utan jóla hafði Póststofan fengið svo stórt yerkefni,
Þriðjudagur 11. september 1962.-
VISIR
David Ben-Gurion, for-
iætisráðherra ísraéls, kem-
ar hingað í opinbera heim-
heimsókn á morgun mið-
vikudag, 12. sept. í fylgd
með forsætisráðherranum
verða kona hans, frú Paula
Ben-Gurion. Ytzhak Nav-
on, skrifstofustjóri utanrík
isráðuneytis ísraels, dóttir
forsætisráðherrans, Dr.
Renana Ben-Gurion-Les-
heim. Auk þess verða með
í förinni sex fréttamenn
frá útvarpi og stærstu blöð
Unum í ísrael og nokkrir ör
yggisverðír.
Ben-Gurion kemur í íslenzkri flug-
vél ásamt fylgdarliði sínu, og er
áætlaður komutími vélarinnar kl.
22.15. Á Reykjavíkurflugvelli taka
á móti honum fors^tisráðherra Ól-
afur Thors og frú og utanríkisráð-
herra Emil Jónsson og frú. Auk
þeirra verða viðstaddir Birgir Thor-
lacius ráðuneytisstjóri og frú, Ni-
els P. Sigurðsson, deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu, og frú, sendi
herrar Norðurlandanna og frúr og
Sigurður Sigurjónsson, aðalræðis-
maður ísraels og frú. Á flugvell-
Hjálparbeiðni
Hinn alþjóðlegi Rauði-kross
hefur sent út hjálparbeiðni um
alian heim vegna hinna stór-
kostlegu jarðskjálfta í Persíu,
sem eru meðal hinna mannskæð-
ustu jarðskjálfta, sem sögur
herma. En því miður er ástæða
til að óttast að hjálpin komi of
seint. \
Bandaríski flugherinn hefur
skipulagt víðtæka loftbrú til
Persíu, aðallega frá bækistöðv-
um sínum í Evrópu. M. a. hafa
þeir flutt þúsund sextán manna
tjöld til Persíu.
De GauIIe Frakldandsforseti
sendi •Persakeisara samúðar-
skeyti þegar er fréttir bárust af
atburðunum og fylgdi um mill-
jón króna fégjöf frá forsetanum
persónulega. Samtímis hafa
franskar flugvélar verið sendar
af stað með hjálp. Tvær ítalskar
flugvélar héldu og þegar í stað
til Teheran með lyf og matvæli.
Belgfski Rauði krossinn hefur
sent flugvél austur með birgðir
af blóði og lyfjum. Kanadíski
Rauði krossinn ákvað þcgar að
gefa um illjón krónur til
kaupa á nauðsynlegustu hlutum.
Heyrnarhjálpar-
stöð sett á fót
Um þessar mundir er staddur
hér á landi dr. med. Christian
Röjskjær, danskur yfirlæknir. Er
hann hér staddur í frii sínu, ný-
kominn frá Grænlandi, en vegna
fyrirhugaðrar heymarhjálparstöðv-
ar fyrir börn í barnadeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur, er
hann aufúsu gestur, bæði til
skrafs og ráðagerðar.
Dr. med. Röjskjær er yfirlæknir
og stjórnandi Statens Hörecentral
í Óðinsvé á Fjóni er reyndur mað-
ur á þessu sviði og nýtur mikils
álits sem heyrnarlæknir.
Heyrnarhjálparstöö sú sem hér
um ræðir mun verða sett á stofn
innan tíðar að mestu fyrir tilhlutan
Zontaklúbbsins í Reykjavík. Hefur
klúbburinn gefið bæði heyrnar-
mælitæki, leikföng o. fl. Einnig
hefur hann kostað sérmenntui'
fóstru til þessa starfa, Maríu Kjeld.
Á vegum , Zontaklúbbsins mun
dr. Röjskjær halda fyrirlestur fyrir
almenning í 1. kennslustbfu há-
skólans þriðjudaginn 11. september
ki. 8.30. Mun fyrirlesarinn beina
orðum sínum til allrá þeirra sem
áhuga hafa á að fylgjast með þess-
um málum, en þó einkum til fóstra
kennara, hjúkrunarfólks sem fæst
við börn — og að sjálfsögðu til
allra foreldra sem þetta mál kynni
að snerta.
Blaðamönnum gafst kostur á að
ræðíi við dr. Röjskjær um starf
hans i Danmörku og um heyrnar-
deyfu barna almennt. Verður síðar
greint frá ummælum dr. Röjskjærs
hér í blaðinu.
.
inum munu forsætisráðherrarnir
flytja stutt ávörp.
Fimmtudaginn 13. sept. ræðast
forsætisráðherrarnir við í Stjórnar-
ráðshúsinu. Að því loknu verður
farið í Þjóðminjasafnið. KI. 12.30
halda forsætisráðherra Ólafur
Thors og frú hans hádegisverðar-
boð að Hótel Borg. Um kvöldið
snæða hinir erlendu gestir kvöld-
verð í boði forsetahjónanna að
Bessastöðum. Föstudaginn 14. verð
ur farið til Þingvalla ,og segir dr.
Sigurður Nordal prófessor ágrip af
sögu staðarins að Lögbergi og síðan
verður hádegisverður að Þingvöll-
um. Á laugardag 15. sept. snæða
hinir erlendu gestir hádegisverð í
boði borgarstjórnar Reykjavíkur að
Hótel Sögu. Kl. 16.00 heldur Ben-
Gurion fund með fréttamönnum í
Ráðherrabústaðnum, en um kvöld-
ið hafa Ben Gurion og frú hans boð
inni í Þjóðleikhússkjallaranum. Á
sunnudagsmorgun fara svo hinir er-
lendu gestir af landi brott frá Kefla
víkurflugvelli.
Starfsmenn póstsins sjást hér raða niður umslögum frá
Umferðamefnd.
13þús. umslög hjá póstinum
Ýtarleg umferðarkönnun
framkvæntd í vikunni
Póststofan í Reykjavík hefur nú
í vikubyrjun fengið eitt stærsta
einstaka hlutverk sem hún hefur
nokkru sinni tekið að sér. Er það
að bera út um 13 þúsund umslög
til allra bifreiðaeigenda í bænum.
Öll þessi umslög eru send út í
sambandi við mikilvæga og mjög
víðtæka umferðarkönnun í Rvík
og nágrenni.
Umferðarkönnunin er í því fólg-
in að allir bílaeigendur í bænum
eru beðnir um að útfylla aksturs-
spjöld þar sem þeir rekja hvert
þeir aka um bæinn og á hvaða
tímum og ná spjöldin yfir mið-
vikudag og fimmtudag f þessari
viku.
Það eru skipulagsyfirvöld ríkis-
ins og þeirra bæjar og sveitarfél-
aga, sem á þessu svæði eru, sem
standa fyrir könnuninni. Nær hún
yfir Reykjavík, Kópavog, Garða-
hrepp, Álftanes, Hafnarfjörð, 5el-
tjarnarnes og Mosfellssveit.
Tilgangurinn með þessari um-
ferðakönnun er að afla upplýs-
ingar um umferðina svo að draga
megi af því ályktanir um þörf á
bifreiðastæðum o. fl. Er könnun-
in þannig mikilvæg undirstaða að
því að unnt verði að gera gott bæj
arskipulag fyrir framtíðina og á
það ekki sízt við um það heild-
arskipulag alls þessa svæðis, sem
nú er unnið að. Umferðarkönnunin
er miðuð við það að skapa umferð-
inni betri aðstæður og er því hags-
munamál allra vegfarenda, að hún
gefi sem réttasta mynd af aðstæð-
unum eins og þær eru nú.
Vafalaust munu bílaeigendur
taka þessum tilmælum vel, því að
þeirra er hagurinn, að mál þessi
verði skipulögð sem bezt. Það er
auðveldast fyrir hvern og einn að
taka miðvikudagsspjaldið út f bíl
sinn á miðvikudagsmorguninn og
skrifa og merkja í hann jafnóðum.
Eru spjöldin send til manna með
póstinum og fylgja þeim ýtarleg
ar leiðbeiningar.
SkæBir burdugur milli
Serkju iuabyrðis í Alsír
Dr. Christian Röjskær
Valdabaráttunni f Alsír má nú
heita lokið með sigri Ben Bella.
Sóttu hersveitir hans að Algeirs-
borg úr austri og vestri og stóð-
ust skæruliðasveitimar f 3. og 4.
herstjómarsvæði þeim ekki snúing.
Víða kom t” átaka og jafnvel
harkalegra bardaga, en skæruliða-
sveitimar máttu sín lítils gegn
30 þúsund manna fullvopnuðu her-
liði Ben Bella. Áður en þær sóttu
inn í Algeirsborg gerðu deiluaðilj-
arnir samkomulag, sem var kallað
málamiðlun, en mun tryggja völd
Ben Bella. Hafði Ben Bella gefið
hernum fyrirskipun um að hertaka
Algeirsborg, en eftir að samningar
náðust hefur hann tekið þá fyrir-
skipun aftur og á Algeirsborg að
vera vopnlaus.
BARIZT í KASBAH
M.a. kom til harðra bardaga í
Arabahverfinu í Algeirsborg. Stóðu
þeir bardagar heila nótt og er tal-
ið að mörg hundruð manns hafi
látið lífið í þeim.
Herinn sem Ben Bella styðst við
er undir stjórn Boumedennes hers-
höfðingja. Hann kemur frá Mar-
okko og Túnis, en þar var hann
æfður og útbúinn rússneskum
vopnum. Hermenn þessir börðust
ekki f Alsír f uppreisninni gegn
Frökkum og hefur engar aðrar
hernaðaraðgerðir framkvæmt en
að færa Ben Bella völdin.
Skæruliðarnir, sem börðust í
Alsír gegn Frökkum eru ekki hrifn
ir af þessu háttalagi. Þeir eru illa
búnir vopnum en undrast hin. full
komna vopnabúnað „innrásarhers-
ins“, sem hefur yfir að ráða fall-
byssum og vélbyssum af nýjustu
gerð. Skæruliðarnir reyndu að
hindra framsókn hersins með veg-
artálmunum og víða sló í smá-
bardaga, en hvarvetna varð lið
skæruliða að láta í minni pokann.
MIKIÐ MANNFALL
Sigur Ben Bella hefur verið
dýrkeyptur. Er talið að í hinum
hörðu bardögum í nágrenni AlgArs
borgar hafi mörg hundruð jafnvel
nokkur þúsund Serkja fallið. Á
einum stað í nágrenni borgarinnai
munaði minnstu að Ben Bella yrði
sjálfur fyrir byssukúlu, er hann
reyndi að stöðva bardaga.
Síðustu fréttir herma að enn
hafi bardagar blossað upp á nokkr-
um stöðum í nágrenni Algeirsborg
ar og eru þrír vígvellir nefndir:
Aumale, Brazza og Massena. Er til
efni þessara bardaga sagt það, að
her Ben Bella hafi ekki virt ..n-
komulagið um að Algeirsborg skuli
vera vopnlaus en reynt enn að
sækja inn til borgarinnar.
I