Vísir - 14.09.1962, Side 1
Var hótunin um
sölustöðvun óþörf?
í dag var farið að selja mjólk
ina á nýja og hærra verðinu, en
samkomulag varð um það í sex
manna nefndinni að verð á Iand
búnaðarafurðum hækkaði um
12% til samræmis við þær kaup
hækkanir sem orðið hafa.
Verðið á lítra af mj^lk verð-
ur sem hér segir. í lausu máli
kr. 4.60, í heilflöskum kr. 4,85
og í hyrnum kr. 5,25. Enn hef-
ur ekkert verið ákveðið um
verð á rjóma eða öðrum mjólk-
ur'afurðum og ekkert verð á
neinum öðrum landbúnaðarvör-
um og eru þær því enn seldar
á gamla verðinu, en búast má
við nýju verði eftir helgi.
Eins og Vísir hefur skýrt frá
náðist fullt samkomulag í sex
manna nefndinni nú 1 vikunni
um verðlagsgrundvöllinn og
þarf málið því ekki að fara fyrir
yfirnefnd að þessu sinni.
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um það á fulltrúa-
fundum bænda að gera ráðstaf
anir til undirbúnings sölustöðv-
unar á landbúnaðarvörum. Nú
hafa samningar tekizt auðveld-
lega og er full ástæða til að
meta störf sex manna nefndar-
innar í þessu efni. En sú spurn-
ing hlýtur að vakna upp um
leið, hvort það hafi ekki verið
óþarfi hjá bændasamtökunum
að fara að veifa verkfallsvopn-
inu jafn ógeðfellt sem það er og
alvarlegt, jafnt fyrir framleið-
endur sem neytendur.
BEN-GUMON t VEIZLU FORSETA
Bessastöðum í gærkvöldi. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, býður Ben-Gurion og frú hans velkomin að Bessastöðum.
Á myndinni eru forsetinn, Ben-Gurion, frú hans og dóttir og yzt til hægri forsætisráðherrann Ólafur Thors.
‘1
í gærkvöldi sátu ísraelsku for-
sætisráðherrahjónin kvöldverðar-
boð forsetahjónanna að Bessa-
stöðum ásamt föruneyti sínu, is-
lenzku forsætisráðherrahjónunum
og fleiri gestum. í gærmorgun
ræddust forsætisráðherrarnir við í
hálfa aðra klukkustund, en upp-
haflega hafði verið áætlað, að við-
ræður þeirra stæðu einungis í
hálfa klukkustund. Hefur forsætis-
ráðherra Ólafur Thors lýst aðdá-
un sinni á Ben Gurion og talið
hann með allra viðfelldnustu
mönnum, sem hann hafij nokkurn
tímann kynnzt. Að viðræðunum
loknum skoðaði Ben Gurion og
frú hans íslenzka Þjóðminjasafnið
í fylgd dr. Kristjáns Eldjárns,
þjóðminjavarðar, og Gylfa Þ.Gísla-
sonar, menntamálaráðherra. Nánar
er skýrt frá þeirri heimsókn í
Myndsjá á 3. síðu í blaðinu í dag.
í morgun skoðuðu hinir erlendu
gestir Háskóla íslands en héldu
síðan til Þingvalla og snæddu þar
hádegisverð. Mikill fjöldi íslenzkra
og ísraelskra blaðamanna fylgdu
þeim þangað. í kvöld sitja hinir er-
lendu gestir kvöldverðarboð borg-
arstjórnarinnar í Reykjavík, og á
morgun hefur Ben Gurion fund
með íslenzkum fréttamönnum. Á
sunnudagsmorgun halda hinir
tignu gestir okkar á brott frá
Keflavíkurflugvelli með þotu frá
ísrael.
Hraðskeyti til
flugvélar
Það gerðist dálítið óvenjulegur
atburður, þegar Sinfóníuhljóm-
sveitin var að fljúga norður til Ak-
ureyrar í gær.
Þegar flugvélin, sem var Ský-
faxi, hafði verið á lofti í um 20
mínútur barst flugstjóranum
skeyti með gleðilegum fréttum til
eins hljóðfæraleikarans. Sendi
hann flugfreyjuna Sigrúnu Marí-
nósdóttur aftur í farþegarýmið
með tilkynninguna.
Hún gekk rakleiðis að Birni
Guðjónssyni trompetleikara og til-
kynnti honum: Það var að berast
skeyti um að þér hefðuð eignazt
dóttur. Móður og barni líður vel.
Eins og geta má nærri urðu mik-
il fagnaðarlæti í flugvélinni meðal
félaga Björns og óskuðu þeir hon-
um til hamingju.
jVerðmaetin
fundin
Vísir skýrði frá því í gær að
skjalamöppu hafi verið stolið úr
bifreið á Brautarholti i fyrra-
kvöld. Nú er innihald möppunn-
ar allt komið til skila, en mappan
sjálf ekki.
í gærmorgun þegar Bergþór
Jónsson byggingameistari var að
koma til vinnu sinnar að háhýs-
inu við Hátún 6, sá hann blöð á
víð og dreif kringum húsið. Hann
veitti þessum blöðum athygli og
þóttist sjá að þarna væri um plögg
að ræða sem ekki væru einskis nýt
Frarrv"’J á bls 5
David Ben-Gurion, forsætisráðherra, frú Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú, og Ólafur Thors, forsætisráðherra, í kvöldverðar-
boði forseta íslands að Bessastöðum í gærkvöldi.