Vísir - 14.09.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 14.09.1962, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. september 1962. V/'ISIR 7 UMFERÐARSÍÐA VÍSIS Verkstjórar Gott dæmi um trassaskap. Ekkert hefur verið unnið við verkið í tvo mánuði / skotgrafahernaði? Það barf ekki annað, en bregða sér í stutta ökuferð um borgina og líta við á nokkrum stöðum þar sem framkvæmdir við umferð- argötur standa yfir, þá get ur maður í fljótu bragði séð á flestum stöðum kæru leysislegan og lélegan frá gang á aðvörunarmerkj- um og girðingum, sem af- marka svæði það, sem unnið er á. — Einnig er mjög áberandi hvernig menn staðsetja vinnuvélar hættulega gagnvart um- ferð. Okkur datt í hug að bregða okkur í smá ökuferð með Sigurði Ágústssyni um bæinn og rabba við hann og sjá hvernig þessum mál- um er háttað. Við höfðum ekki ekið nema nokkuð hundruð metra, þegar við komum að einum slík- um stað. — Þá komumst við ekki lengra. Hvað er á seyði hér? —- Það er einn af þessum sí- felldu skurðgröftum sem einkenna bæinn. og girðingar sem afmarka þetta svæði? — Jú, vissulega á það að vera. Það efast enginn um að í flestum tilfellum verður að gera þessi mannvirki, en það er enginn leikur að koma verkstjórum og öðrum þeim er m þessi verk sjá í skiln- ing um það að það verður að gera viðeigandi ráðstafanir um öryggi og leiðbeiningar. Um þessi atriði segir í umferðarlögunum: Þar sem unnið er að vegagerð eða vegir raskast af öðrum ástæð- um, þannig að hætta stafi af>^r þeim er stjórna verkinu, skylt að sjá um, að sett verði upp greini- leg aðvörunarmerki, — og í 65. gr. segir m. a. að í kaupstöðum geti yfirvöld bæjar takmarkað eða bann að um stundarsakir umferð um vegi ef nauðsynlegt er vegna vega- vinnu, að fengnu samþykki lög- reglustjóra. I lögreglusamþykktinni er m. a. sagt í 20. gr.: Enginn má gera skurð í götur gangstétt eða torg bæjarins né raska þeim á neinn hátt, nema hann hafi til þess leyfi bæjarverk- fræðings og samþykki lögreglu- stjóra. Sá sem slíkt leyfi fær verð- ur að setja í sartia lag það er rask- að var og halda því við í eitt ár eftir að umbótum er lokið og tekn- ar gildar af bæjarverkfræðingi. — skal unnið svo, að sem Stórhættuleg staðseining á mikilli umferðargötu. minnstur farartálmi sé að og ætíð skal þess gætt, að vegfarendur séu aðvaraðir um farartálma með nægilega greinilegum Ijósum, er lýsa skulu frá því að dimma fer að kvöldi til þess bjart er að morgni. Að öðru leyti setur lög- reglustjóri verkhafa þau skilyrði c. þurfa þykir til að afstýra hættu fyrir vegfarendum, svo sem banna umferð um göturnar að nokkru eða öllu leyti meðan á verkinu stendur eða skipa fyrir hvernig umferðinni skuli hagað. Ef verkið dregst úr hófi fram getur iögreglustjóri eftir að byrjað er á því látið ljúka verkinu eða setja götuna í sama Iag aftur á kostnað þess, sem verkið*átti að framkvæma. Af þessu getum við séð, að það er þó nokkuð starf sem lögreglunni er ætlað, til að fylgjast með að réttilega sé að farið og umferðinni j sé ekki hætta búin, né ökumönnum i j og gangandi vegfarendum valdið ó- j I þægindi af slíkum verkum. —• Ekki áræða verkstjórar að ! I standa upp í hárinu á ykkur oftar en einu sinni, þegar þið hafið gert athugasemdir við.slóðaskap þeirra? Hvað sýnist ykkur, sjáið þið j stjóra breytingu ár frá ári í þessum I hlutum. Eða heldurðu kannske að j við séum þeir slóðar að láta þetta afskiptalaust? -— Þegar þið hafið svona sterkar ; laga og reglugerðir bak við ykkur | þá hljótið þið að hafa töglin og i hagldirnar? — Ég veit varla hvernig á að I svara þvi. Það sem við kemur verk- j um sem unnin eru af starfsmönn- j um bæjarins, er mjög mikið um; sömu verkstjórana að ræða ár frá ári. Þetta eru hinir mestu dugnað- j arforkar, bæði í gatnagerð, raf- j magni, áíma og vatnslögnum. En þeim gleymist að sinna þeirri framkvæmd þægindanna fyrir borg arbúa, að sýna þeim fyllstu nær-; j gætni og tillitssemi um frágang og i öryggi. — Þið sjáið t. d. þennan j skurð hér í Álfheimum. Snemma i : sumar kom hingað skurðgrafa og á I svipstundu reif hún upp jarðveg- j inn. Meiningin var eflaust sú að steypa girðingu kringum lóðina. Nú er komið haust með myrkri og , innan skamms rigning og slydda j og ef þið farið um Álfheima í slíku | veðri gangandi, þá vitið þið eflaust hvar þið eigið að finna ykkur fót- mál. Uppgröfturinn á gangplássinu og bílarnir öslandi forina og .aus- andi henni yfir gangandi. Þá verð- ur þægilegt að nota skurðinn þann arna sem skotgröf. — Því talar lögreglan ekki við húsráðendur? — Jú, það hefur verið talað við húsráðendur, þeir lofuðu aðgerð- um. Þá kom þessi timburhlaði, sem liggur þarna. — Þetta eru fram- kvæmdirnar. LÁTNIR GRAFA OG GRAFA. Næst ökum við um Hlíðarnar, þar sem miklar framkvæmdir standa yfir. — Finnst ykkur ekki smekklega Ekkert hirt um hvert efninu Eitt dæmi af ótalmörgum. og reglulega gengið frá merkingum hér og girðingum við gatnagerðina? Þið sáuð þegar við ókum upp Barmahlíðina. Þar voru engin að- vörunarmerki þegar við komum upp götuna að Lönguhlíð, enginn búkki og engin önnur merki. Þetta allt er einhver búinn að færa suður fyrir gatnamótin. — Þið sjáið hvernig umhorfs er hér, þar sem hitaveituframkvæmdir standa yfir. Við skuluni aka hér um og mæla í huganum lengd skurðanna og svo aftur hve miklum hluta af þeim er þegar verið að ganga frá. Það sem auðveldast er að fá eru skurðgröf ur, þegar þær eru komnar á stað- inn er um að gera að nota þær og láta þær grafa og grafa. Framhald á bls. 10. hent. Ljósm. S. Á.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.