Vísir - 14.09.1962, Side 3
Föstudagur 14. september 1962.
V'lSIR
3
í gær heimsótti Ben-
Gurion þjóðminjasafn
ið ásamt föruneyti
sínu og skoðaði safn-
ið undir leiðsögn
þeirra dr. Kristjáns
Eldjárns Þjóðminja-
varðar og Gylfa Þ.
Gíslasonar mennta-
málaráðherra. — Ben-
Gurion hefur þegar
unnið hug og hjarta
allra með vingjarn-
legu brosi sínu og lif-
andi áhuga á öllu, sem
fyrir augu hans ber.
Hann skoðaði ýmsa
gripi safnsins af at-
hygli og spurði margs.
Myndsjáin í dag rekur
för hans um safnið.
Dóttir ísraelsku forsætisráð-
herrahjónanna, dr. Renana
Ben-Gurion Lesheim, ritar
nafn sitt í gestabók Þjóð-
minjasafnsins.
ísraelsku forsætisráðherrahjónin ganga upp tröppurnar á Þjóðminjasafninu í fylgd Birgis
Thorlacius ráðuneytisstjóra. Mtlli þeirra sést einn af ísraelsku öryggisvörðunum. Að baki
blaktandi fánar ísraels og íslands hlið við hlið.
MYNDSJÁ
David Ben-Gurion ritar nafn sitt í gestabók Þjóðminjasafnsins, fyrst á hebresku frá hægri
til vinstri, síðan með latínuletri frá vinstri til hægri. Frú Paula Ben-Gurion sést við hlið hans.
Þá eru og á myndinni Krístján Eldjám, Gylfi Þ. Gíslason og Sigurgeir Sigurjónsson, ræð-
ismaður ísraels.
Ben-Gurion forsætisráðherra skoðar gamlan stól ásamt dr.
Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra. Á myndinni sjást
einnig tveir fréttamenn frá ísrael.