Tölvumál - 01.12.1994, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.12.1994, Blaðsíða 12
Desember 1994 Neyðaráætlanir Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á Öryggisráðstefnu SI í október 1994. Eftir Jónas Sturlu Sverrisson Inngangur Neyðaráætlanir eru nauð- synlegaröllumíyrirtækjum. Þær stuðla að öruggari rekstri og fljótari endurreisn fyrirtækis eftir áfall. Staðreyndin er hins vegar sú að mjög fá fyrirtæki á Islandi hafa virkar neyðaráætlanir af einu eða öðru tagi. Allir vita um hætturnar og tala fjálglega um þær, en því miður er lítið um raunverulegar framkvæmdir sem stuðla að því að minnka áhrifa áfall á rekstur fyrirtækja. Auðvitað eru keypt fínustu afritunartæki og varaafl- gjafar en oft vantar talsvert upp á að þessi tæki eru notuð rétt og reglulega. Stundum læðist að manni sá grunur að þessi tæki séu aðeins keypt til þess að friða samviskuna fremur en til raun- verulegranota. Mjögmargirhugsa þannig að litlar líkur eru á því að eitthvað alvarlegtkomi fyrirþeirra fyrirtæki og þess vegna er ekki þörf fyrir sérstakar ráðstafanir. Líkur á flugslysi eru margfalt minni en líkur ábílslysi, en myndir þú lesandi góður stíga um borð í flugfarsemaldreieryfírfarið? Ég held ekki, þrátt fyrir mjög litlar líkur á slysi! Hvers vegna á þá að taka áhættuna með líf fyrir- tækisins? Er ekki eðlilegra að undirbúa fyrirtækið fyrir áfall áður en það er of seint? Áhrif áfalla Til þess að gera okkur betur ljóst hvaða áhrif stöðvun rekstrar hefur á fyrirtæki sem ekki hefur virka neyðaráætlun þá skulum við taka tvö dæmi. V erðbréfafyrirtæki Siíktfyrirtæki stendurogfellur með öflugumupplýsingamiðlum. Ef stórslys verður þar sem öll upplýsingakerfí eyðileggjast þá á fyrirtækið sér ekki mikla við- reisnarvon, þrátt fyrir það að eiga afrit af gögnum í bankahólfi. Langan tíma getur tekið að koma nýju upplýsingakerfí á fót aftur og erfitt getur reynst að vinna upp þær upplýsingar sem töpuðust. Viðskiptavinir geta ekki leyst út Qánnuni og ekki er víst að hægt verði að finna út hversu mikið hver viðskiptavinur á í sjóðum fyrirtækisins. Vegna þess að engin neyðar- áætlun er til staðar mun taka enn lengri tíma að koma íyrirtækinu af stað aftur ef það er þá hægt. Fjárhagslegt tap gæti verið það mikið að endurreisn teldist ekki kostur. Skipafélag Stöðvun sliks fyrirtækis hefur mun víðtækari áhrif en verðbréfa- fyrirtækis. Vörur sem eru fluttar með skipum félagsins komast ekki til kaupenda sinna. Þeir geta þá ekki selt sínum viðskiptavinum sem verða auðvitað óánægðir með þjónustuna. Oánægjanfæristalla leið til skipafélagsins sem veldur því að viðskiptavinir missa traust og færa sig til samkeppnisaðila. Stöðvun fyrirtækisins hefúr mikil áhrif í því sjálfú og umhverfi þess. An neyðaráætlunar mun endur- reisn taka iengri tíma og þar með kosta fyrirtækið mikið bæði í tjár- munum og viðskiptavild. Ef stöðvunin varir ekki of lengi getur fyrirtækið endurreist reksturinn, en þó ekki til fyrri stöðu, nema á löngumtíma. Við áfall þar sem ekki er til nein neyðaráætlun mun grípa um sig stjómleysi. Ekki er ljóst hver skal stjóma neyðaraðgerðum og allir líta til forstjóra eða fram- kvæmdastjóra. Sá aðili gæti hins vegar verið í taugaáfalli og gjör- samlega óhæfur til að stjórna aðgerðum. Hver á þá að taka af skarið? Þetta auk ýmissa annara vandamála sem koma í ljós er hægt að leysa með því að hafa virka neyðaráætlun. Hönnunarferli neyðaráætlana Helstu markmið neyðaráætl- ana em að minnka áhrif áfalla á rekstur og stytta þann tíma sem tekur að endurreisa helstu tölvu- 12 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.