Tölvumál - 01.05.1996, Síða 16

Tölvumál - 01.05.1996, Síða 16
Maí 1996 að móttakandi geti sannreynt hana. Hann sannreynir undirskriftina með því að reikna bæði sína eigin vartölu og tölvuundirskrift með sínu eintaki af sannprófunarlykl- inum. Sjámynd 2. Sá dulritunaralgoritmi sem not- aður er til að finna undirskriftina byggist á því að nota sama lykilinn til að rugla og afrugla, svokölluð samhverf aðferð. Helsti veikleiki hennar er að þurfa að skiptast á lyklum því hver sá sem á afrit af þeim lykli sem notaður var til að rugla, getur einnig afruglað. Þegar tveir notendur vilja hefja samskipti sín á milli þurfa þeir að skiptast á sannprófunarlyklum. Til skamms tíma skiptust notendur á þessum lyklum með því að prenta þá á blað klippa í tvennt og senda helmingana í sitthvoru umslaginu í pósti. Nú eru lyklarnir sendir yfir netið og eru þeir þá dulritaðir með ósamhverfri aðferð, nánar tiltekið RSA-aðferðinni. Osamhverf aðferð byggist á því að notaður er einn lykill til að rugla en annar lykill til að afrugla. Þessir lyklar eru útbúnir í pörum og kall- aðir leynilykill og almennur lykill (private og public keys). Notandinn geymir leynilykilinn eins og sjáaldur augna sinna og gefur hann aldrei upp. Almenna lykilinn sendir notandinn hverjum þeim sem vill hafa samskipti við hann. Allt sem dulritað er með leynilyklinum er einungis hægt að lesa með almenna lyklinum og öfugt. Notandinn framleiðir sitt lykla- par (leyni- og almennan lykil) með tölvukorti (smartcard) og þar til gerðum kortalesara. Leynilykillinn er geymdur í kortalesaranum og fer aldrei þaðan. Kortalesarinn er þannig útbúinn að ef reynt er að taka hann í sundur til að nálgast leynilykilinn þá þurkar hann út allar upplýsingar sem hann geymir og eyðileggst. Almenni lykillinn er sendur til SWIFT sem gefur út svokallað lyklavottorð. Yottorðið inniheldur almenna lykillinn, BlC-kóda eig- andans, dagsetningu, tíma og gildistíma vottorðsins. Vottorðið er dulritað með leynilykli SWIFT. Notandinn getur þá sent sinn almenna lykil hvert á land sem er í formi þessa vottorðs. Móttakandi vottorðsins getur staðfest að vott- orðið komi frá SWIFTog sé löglegt með því að nota almenna lykil SWIFT til að lesa það. Lyklaskipti yfir netið ganga þannig fyrir sig: (sjá mynd 3) 1. Notandi B sendir A vottorð sitt og þá um leið almenna lykil sinn. 2. Notandi A sendir skeyti sem inniheldur: 2.1. Nýjan sannprófunarlykil dulritaðan með almenna lykli B (köllum hann SB). Það tryggir að enginn nema notandi B getur lesið sann- prófunarlykilinn. 2.2. Notandi A dulritar einnigSfí sannprófunarlykilinn með sínum leynilykli (köllum hann SA). Það tryggir að B getur sannreynt að skeytið kom frá A og engum öðrum. 2.3. Vottorð A, til að B geti lesið SA 2.4. Skeytið er tölvuundirskrifað með nýja sannprófunarlykl- inum. 3. Notandi B þarf að lesa (af- rugla) tvo sannprófunar- lykila, SB með sínum leyni- lykli og SA með almenna lykliA. 4. Séu lyklarnir eins eftir að þeir hafa verið afruglaðir þá er allt með felldu. 5. Notandi B reiknar út sína eigin tölvundirskrift til prófa nýja sannprófunarlykilinn. Sé tölvuundirskriftin sú sama og er í skeytinu þá er í lagi að nota nýja lykilinn. 6. B sendir síðan staðfestingu um að allt sé í lagi og reiknar út tölvuundirskrift á stað- festinguna með nýja sann- prófunarlyklinum. 7. Þegar A móttekur staðfest- inguna getur hann einnig sannreynt tölvuundirskrift- ina og sannfærst um að allt hafi gengið. Gangi allt eðlilega hafa báðir notendur eintak af nýja sannpróf- unarlyklinum. I þessari umfjöllun er alveg sleppt að lýsa því ferli sem farið er í gegnum við notkun og upp- setningu á tölvukortum og korta- lesurum, sem er töluvert flókið. Hlutverk Reiknistofu bankanna RB hefur séð um að halda við kerfi því sem bankamir nota til að tengjast SWIFT. Kerfið var sett af stað 1989 og nota allir bankar og sparisjóðir á landinu þetta kerfi ásamt Kaupþingi. Um kerfið fara að meðaltali 2.300 skeyti á dag. Fjöldi skeyta hefur aukist um 20% á hverju ári. Þór Svendsen Björns- son er forstöðumaður Upplýsingaveitu Reiknistofu bankanna 16 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.