Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 27

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 27
Maí 1996 Lokaverkefni við tölvuháskólann Eftir Helgu Sigurjónsdóttur Nú er að ljúka 9. starfsári Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands (TVI) og tæplega þrjátíu nýbakaðir kerfisfræðingar eru teknir til starfa við hugbúnaðar- gerð og þjónustu. Síðustu náms- önnina eru nemendur TVÍ önnum kafnir við að vinna lokaverkefni sem er hápunktur verklegrar þjálf- unar þeirra við skólann. í þessari grein ætla ég að segja frá tilhögun lokaverkefna við TVÍ og þeim við- fangsefnum sem nemendur hafa verið að vinna að á síðustu árum. Efni greinarinnar er að hluta til byggt á erindi mínu um Skipulag hugbúnaðarverkefna við TVI sem var flutt á ráðstefnu Skýrslutækni- félagsins um greiningu og hönnun í maí 1994. Hagnýt þjálfun í TVÍ hefur alltaf verið lögð áhersla á verklega hlið námsins og stefnt er að því að nemendur hafi öðlast verulega hagnýta þjálfun þegar þeir ljúka námi. Fyrstu þremur námsönnum lýkur með 3ja vikna verklegu námskeiði undir leiðsögn kennara, þar sem nem- endur vinna í litlum hópum að raunhæfum hugbúnaðarverkefn- um. Á þessum námskeiðum læra nemendur einnig verkefnisstjóm og hópvinnu, en það er mjög mikil- vægt fyrir þá sem ætla að starfa við hugbúnaðargerð. Á Mynd 1: Skipting kerfisfræðináms kemur fram að fjórðungur þess eru verkleg námskeið og lokaverkefni. Hápunktur verkefnavinnunnar er lokaverkefnið sem nemendur vinna að síðustu fjóra mánuði námstímans í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir utan skólans. Markmiðið er að nemendur vinni sjálfstætt að því að greina, hanna og smíða nothæfan hugbúnað og beiti til þess viðurkenndum að- ferðurn við hugbúnaðargerð. Oft leita nemendur sjálfir að viðfangs- efnum en það færist í vöxt að fyrir- tækin snúi sér sjálf til skólans og óski eftir samvinnu. Skólinn hefur átt gott samstarf við fjölmörg fyrir- tæki og stofnanir. Meðal sam- starfsaðila eru AKS, Búnaðarfélag íslands, Eimskip, Flugleiðir, Haf- rannsóknarstofnun, Kerfi, Marel, OZ, Rannsóknarstofnun landbún- aðarins, Strengur, Tölvumiðlun og VKS ásamt mörgum öðrum aðilum. Viðfangsefni nemenda Alls hafa tæplega 80 lokaverk- efni verið unnin við skólann frá upphafi. Allt að níu af hverjum tíu verkefnum hafa verið skrifuð fyrir Dos, OS/2, Windows og System 7 á Macintosh, flest ætluð til notk- unar í nettengdu tölvuumhverfi. Eins og sjá má á Mynd 2: Viðfangsefiii í lokaverkefnum er stór hluti verkefna almennur við- skiptahugbúnaður svo sem sölu- keifi, launakerfí, starfsmannakerfi, tollakerfi og upplýsingakerfi fyrir stjórnendur. Mörg þessara kerfa hafa verið tekin í notkun eða orðið söluvara sem er til marks um þá vinnu og metnað sem nemendur leggja í þau. Örfá kennsluforrit hafa verið samin af nemendum, en áhugi er fyrir því að fjölga slíkum verkefnum ef það mætti verða til þess að ýta undir tölvunotkun í almennri kennslu. í flokki sér- hæfðra kerfa eru mörg athyglis- verð verkefni sem sum hver má líta á sem rannsóknar- og tilraunaverk- efni. Af nýlegri verkefnum í þeim hópi má nefna myndræna fram- setningu jarðskjálftagagna á inter- netinu, rafræna verslun á internet- Mynd 1: Skipting kerfisfrœðináms Tölvumál - 27

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.