Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 24

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 24
Maí 1996 Viðskiptavinur Fyrirtæki 1 pöntun Bankastofnun 2 reikningur 3 greiösla 6 kvittun/höfnun 4 greiösla 5 kvittun/höfnun Data Security, leyndarkóðunarvott- orðum og tölvuundirskrift. I ljósi markaðshlutdeildar þessara fyrir- tækja er líklegt að hér sé kominn staðall sem allir geti sameinast um. Öruggt greiðslufyrir- komulag Til að tryggja kaupanda og bankastofnunina fyrir því að fyrir- tækið sé það sem það segist vera, þarf vottun frá óháðum aðila. Vott- unaraðili, t.d. bankastofnun eða hugbúnaðarfyrirtæki úthlutarfyr- irtækinu einkenni (leindarkóðunar- vottorð) og án þess getur fyrir- tækið ekki tekið við greiðslu eftir viðurkenndum leiðum. Til að tryggja kaupmanninn og bankastofnina fyrir því að kaup- andinn sé rétthafi greiðslunnar, þarf að einkenna hana með tölvu- undirskrift, sem gefin er út af óháðum aðila. Til að tryggja trúnað og koma í veg fyrir að hægt sé að falsa eða skemma millifærslurnar er notuð aðferð sem byggir á „public key“ dulritun. Til að viðskipti geti átt sér stað þarf að vera gagnkvæmt traust milli fyrirtækis og viðskiptavinar. Fyrirtækið vill ekki láta vöruna af hendi fyrr en viðskiptavinurinn er búinn að borga og viðskiptavin- urinn vill ekki borga fyrr en hann er viss um að varan verði send. Til að leysa þessa sjálfheldu þarf þriðja aðila, t.d. fjármálastofnun, til að tryggja báða aðila meðan viðskiptin fara fram. Fjármála- stofnunin þarf að viðurkenna leyndarkóðunarvottorðin og tölvu- undirskriftirnar til að gefa grænt ljós á millifærslu peninganna. Sérhver greiðsla sem er milli- færð á netinu þarf að vera einnota. Það þýðir að annaðhvort hefur greiðslan farið fram eða ekki. Með öruggri dulritun og kvittanakerfi á að vera tryggt að gagnaruglingur eða bilanir á netinu geta ekki kom- ið í veg fyrir þetta. Einföldun á öruggu greiðslu- fyrirkomulagi má rekja í 6 eftir- farandi skrefum (sjá meðfylgjandi mynd): 1. Viðskiptavinur hefur ákveðið að versla ákveðna vöru eða þjónustu og sendir beiðni til fyrirtækisins. 2. Fyrirtækið sendir til baka reikning með vörunúmerum, upplýsingum um aukakostnað og heildarupphæð. 3. Reikningurinn ásamt dulrit- uðum „greiðslupakka“ og raf- rænni undirritun er send til kaupmannsins með „public key“ dulritun. 4. Fyrirtækið skilur pöntunina frá greiðslunni og sendir hana með „public key“ dulritun til banka- stofnunar. Fyrirtækið sér ekki innihald greiðslupakkans. 5. Bankastofnunin tekur við send- ingunni og fer með hana af net- inu á bak við eldvarnarvegg. Þar er pakkinn opnaður og inni- hald hans sannreynt. Síðan er kvittun/höfnun send með „pub- lic key“ dulritun til fyrir- tækisins. 6. Fyrirtækið kannar kvittunina/ höfnunina og sendir hana síðan áfram með „public key“ dul- ritun til viðskiptavinarins. Þetta ferli á ekki að taka lengri tíma en 25-30 sekúndur. Landamærin eru ekki horfin Þó að við Islendingar lítum heimsmarkað veraldarvefsins hýru auga er hann ekki jafn nálægt okkur og hann sýnist fyrir framan tölvuskjáinn. Það skiptir máli hvaðan er verið að kaupa vöruna. Neytandinn þarf að gera sér grein fyrir ýmiskonar aukakostn- aði sem leggst ofan á vöruverðið. Afgreiðslutími frá söluaðila og flutningur getur tekið sinn tíma. Ofan á verð vörunnar leggst flutn- ingskostnaður, tryggingargjald, kostnaður við gjaldeyrisyfirfærslu, virðisaukaskattur o.fl. Að auki getur komið til kostnaður vegna tolla, vörugjalda eða annara jöfn- unargjalda. Ymsar hindranir geta verið fyrir innflutningi vörunnar. Yaran getur þurft að uppfylla ákveðna staðla, hún getur verið skráningar- eða prófunarskyld, það getur verið innflutningsbann á vörunni eða það getur verið útflutningsbann á henni frá upprunalandinu. Það skiptir máli frá hvaða efnahags- svæði varan er keypt, því við- skiptalög og alþjóðlegar sam- þykktir geta hindrað innflutning. Frh. á næstu síðu 24 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.