Tölvumál - 01.05.1996, Page 20

Tölvumál - 01.05.1996, Page 20
Maí 1996 Öryggisráðstafanir í viðskiptum yfir tölvunet Grein þessi er byggð á erindi semflutt var á ráðstefnu SÍ, Öryggi á Interneti, 16. febrúar 1996 Eftir ÓlafAndra Ragnarsson Það hefur lengi verið framtíðar- sýn manna að þeir geti stundað verslun með tölvu í rólegheitum heima hjá sér. Margir eru á því að viðskipti framtíðarinnar muni að einhverju leiti fara þannig fram. Með vinsældum Internetsins und- anfarin ár hafa skapast forsendur fyrir slíkum viðskiptum. I fyrsta lagi er kominn markaður fyrir heimaverslun með tölvum þar sem milljónir manna um allan heim hafa tengst Netinu og virðist aukn- ingin vera stöðug. I öðru lagi eru slík viðskipti orðin nægjanlega örugg. Það hefur lengi verið sagt að Internetið og öryggi séu andheiti. Hin opna högun netsins, sem sennilega á mestan þátt í útbreiðslu þess, hefur fælt viðskiptaaðila frá netviðskiptum. Mörg fyrirtæki hafa þó sett fram lausnir um hvernig koma má upp öruggum viðskiptakerfum. Viðskipti á Internetinu eru þegar hafín hérlendis og verður hér fjallað um tvær lausnir sem Marg- miðlun hf hefur unnið að, Heima- kringluna og Lengjuna. Þessar lausnir byggja á því að nota örugg- an vefþjón til að setja fram vörur og þjónustu á veraldarvefnum. Verslun í Heimakringlunni Heimakringlan er verslunar- miðstöð á Internetinu þar sem verslanir bjóða upp á vörur og þjónustu (sjá mynd 1). Neytendur nota almenna vefskoðara til að fá fram vörulista og skoða upplýs- ingar um vörur og verð. Vörulistar geta sett fram margmiðlunarefni, s.s. myndir, hjóð og hreyfimyndir. Vörum er safnað saman í inn- kaupakörfu og pöntun er send til viðkomandi verslunar. Heimakringlan keyrir á Net- scape Commerce Server og notar CGI forrit, skrifuð í C++, til að setja fram vörulista, halda utan um innkaupakörfu og afgreiða pantanir. Heimakringlan er á www.mmedia.is/heimakringlan Lengjan á Netinu Islenskar getraunir eru senni- lega það íslenska fyrirtæki sem unnið hefur hvað lengst í rafrænni verslun. Frá árinu 1990 hafa tipp- arar getað keypt raðir með hjálp mótalds og greitt með greiðslu- korti. Næsta skrefið í þessari þró- un er að bjóða upp á Lengjuna á Veraldarvefnum. A Lengjuvefnum (sjá mynd 2) er boðið upp á að velja 3-6 leiki fyrir ákveðna upphæð. Hvert merki á hverjum leik hefur ákveð- inn stuðul sem Getraunir gefa út. Gangi leikimir eftir er greidd út sú upphæð sem spilað var fyrir margfölduð með stuðlunum. Lengjan er skrifuð sem „Server Extention “ fyrir Microsoft vef- þjóninn (Internet Information Server). Lengjan er skrifuð í C++ og notar ISAPI (Internet Server API) frá Microsoft. Lengjuna er að finna á www.toto.is. Öryggiskröfur Heimakringlan og Lengjan gera miklar kröfur til öryggis, en áður en við getum skilgreint öryggis- ráðstafanir þurfum við að vita hver hættan er í raun og veru. Hvað er það sem við þurfum að vernda? Hverjar eru hættumar? Eitt vanda- málið er að tryggja öryggi þeirra upplýsinga sem fara yfir netið. Sá sem gefur upp greiðlukortanúmer yfir tölvunet þarf að treysta því að enginn komist yfir númerið. Heimakringlan og Lengjan þurfa að uppfylla kröfur þriggja mismunandi aðila. I fyrsta lagi þarf að tryggja að notendur geti verslað eða spilað á einfaldan hátt. Kaupandinn vill að kerfið virki þegar hann þarf að nota það og að þær upplýsingar sem hann sendir komist ekki í hendur óvið- komandi aðila. Seljendur gera mikla kröfu um framsetningu upp- lýsinga, uppfærslur upplýsinga, flæði skilaboða og „uppitíma". Greiðslukortafyrirtækin hafa þá kröfu að tryggt sé að kort við- skiptavina séu ekki misnotuð. í dag er þessum öryggiskröfum m.a. náð með því að keyra þjónustu á öruggum vefþjónum. Öryggir vefþjónar gegna til- ætluðu hlutverki hérlendis þar sem markaðurinn er svo lítill að neyt- endur „treysta“ vefverslun af „af- spurn“. Erlendis er staðan önnur, neytendur þekkja ekki verslanir sem þeir vilja versla við, og mikill skrekkur er í mönnum vegna þeirr- ar hættu að verslunin sé skúrk- urinn. Sé svo hjálpar öruggur vef- 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.