Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 2
2
tan
VfSIR . Fimmtudagur II. október 1962.
BikcarÍRin um helgmu:
KR-ÍBA á laugardag
Fram-IBK á sunnud.
Ákveðið er að leikur KR og Akureyrar í bikarkeppninni fari
fram á laugardaginn kemur á Melavellinum og mun hann hefjast
klukkan 4. Leikur nýliðanna í 1. deild Keflavíkur og íslandsmeist-
aranna úr Fram verður hins vegar að öllum likindum kl. 2 á
sunnudag.
Greinilegt er, að mikill áhugi er á undanúrslitum bikar-
keppninnar og hefur aldrei verið meiri. Kemur þar til forvitni
fólks að sjá hvort Akureyringum tekst eins vel upp gegn KR og
þeir gerðu gegn Akranesi á sunnudaginn, svo og hvað Keflvíkingar
geta gegn íslan'dsmeisturum Fram, en lið Keflavíkur hefur aðcins
tapað einum leik í sumar, en það var gegn Þrótti í 2. deildinni,
en síðan hefur liðinu vaxið mjög fiskur urn hrygg og ekki að vita,
hvernig næsta barátta þeirra verður.
Þessi rnynd var tekin i fyrra í einu leikfimihúsanna, þar sem ráðsettar frúr brugðu á leik eina kvöldstund,
en Ieikfimin var mjög vinsæl og færri frúr en vildu fengu tíma þá.
Vinsæl íþróttagrein:
Frúaleikfími víðs-
vegar um borgina
Nýr þjálfari
enska iands-
liðsins
Allan Wade, 36 ára ganiall í-
þrótta„prófessor“ var í gær skip-
aður þjálfari enska landsliðsins í
knattspyrnu af knattspyrnusam-
bandinu enska. Wade Iék um eitt
skeið knattspyrnu með Notts
County.
Fyrrverandi þjálfari við cnska
landsliðið var hinn heimsfrægi
Walter Winterbottom, sem þykir
einhver mesti knattspyrnuspeking-
ur heimsins. Starfi Winterbottoms
verður nú tvískipt og Wade tekur
við þjálfunarliðinu. — Eitt starfið
verður leiðtogastarfið, en það hef-
ur enn ekki verið veitt.
Masahiko Maraía frá Japan vann
í gær heimsmeistaratitilinn í flugu-
vigt í hnefaleikum í keppni við
Pone Kingpetch frá Tailandi. —
Marata sló Kingpetch í gólfið í 22.
Iotu og gerði út um keppnina.
S.I. vetur hófu nokkur
íþróttafélaganna að veita
konum kost á hressingar-
leikfimi. Var starfsemi
þessi vel þegin og sóttu
fjölmargar konur þessar
æfingar sér til hressingar
og upplyftingar.
Nú er þessi starfsemi að hefjast
að nýju og verður á þessum stöð-
um:
Miðbæjarskóli:
Í.R. hefur æfingar á mánudög-
um og fimmtudögum, 2 skipti
hvort kvöld, kl. 8.00 og 8.45.
K.R. hefur æfingar á miðviku-
dögum, báða daga kl. 8.00.
Austurbæjarskólinn:
K.R. hefur æfingar á mánudög-
um og miðvikudögum, báða daga
kl. 8.00.
Brciðagcrðisskólinn:
Ármann hefur æfingar á mánu-
dögum og fimmtudögum kl. 8.15.
Laugarnesskólinn:
Þar verða tvískiptar æfingar á
vegum Ástbjargar Gunnarsdóttur
kl. 8.30 og 9.30, mánudaga og
fimmtudaga.
Þær konur, sem hug hafa á a
nota sér þessar æfingar, geta látið
skrá sig í leikfimisölum þessara
skóla á ofannefndum tímum, en
námskeiðsgjald til áramóta verður
kr. 250.00.
Reykjavíkurmótið í hand-
knattleik eftir rúma viku
Eins og kunnugt er hefst
handknattlcikur vetrarins um
aðra helgi, að Hálogalandi
sem enn cinu sinni verður aðal
bækistöð og Iífæð íþróttaæsk-
unnar í Reykjavík, en vonandi
verður innan skamms hægt að
hefja keppni f iþróttahöllinni
í Laugardal.
Hið vandasama og erfiða verk
Glostrup
ásamt Bent
Mortensen
til Þróttar?
að raða niður leikjum hand-
knattleiksmótanna er nú hafið
og má vænta frétta af því starfi
áður en langt um líður.
Kvennarlokkar.
Athyglisvert er að aðeins þrjú
félög taka þátt í mótinu, Ár-
mann, Valur og Víkingur, en
handknattleikur kvenna hjá
öðrum félögum virðist svo gott
sem að lognast út af, þ.e. í
eldri flokkunum, hverju sem
um er að kenna.
Þjálfarar ráðnir.
Flest öll félögin hafa ráðið
sér þjálfara og hafa nú nokkrar
æfingar að baki, Framarar þó
langbeztu æfinguna, sem sjá má
af þvl að á sunnudaginn var
léku þeir æfíngaleik gegn tveirn
liðum sem fengin voru. úr
Reykjavíkurfélögunum og var
leikurinn í einn og hálfan tíma
og skipt óspart inn á hjá „úr-
valinu", sem dugði ekki til því
Fram vann með yfirburðum.
Víkingar verða líklegast skeinu
hættastir Fram í keppninni u>"
Reykjavíkurtitilinn.
Fyrsta heimsóknin
Glostrup á vegum Þróttar?
Heyrzt hefur af samninga-
umleitunum Þróttar í Danm.,
en þeir reyna að fá hingað
danska 2. deildarliðið Glostrup
ásamt styrktarmönnum, þar á
meðal hinum góðkunna lands-
liðsmarkverði Bent Mortensen
Þróttur mun um þessar mundir
hafa menn í Danmörku fyrir sig
og ræða þeir málið við forráða-
* .1
KVENNAHANDKNATTLEIKUR í ÖLDUDAL —- AÐEINS 3 LIÐ I MFL
Á REYKJAVÍKURMÓTINU.
menn Glostrup. Verði af þessari
heimsókn koma Glostrup-leik-
mennirnir í kringum mánaða-
mótin næstu. Um síðustu helgi
vann Golstrup Efterslægten I
2. deildarkeppninni.