Vísir - 20.10.1962, Blaðsíða 15

Vísir - 20.10.1962, Blaðsíða 15
/5 TT§Yr . Laugardagur 20. október 1932. Friedrich Diirreiimatt GRUNURINN ©0 „Eigið þér við, að ég trúi ekki á neitt,“ spurði Emmenberger og rödd hans var gjörsamlega laus við beiskju. „Ég fæ ekki skilið, að orð mín geti haft nokkra aðra merk- ingu,“ svaraði gamli maðurinn í rúmi sínu, með hendurnar á á- breiðunni. „Á hvað trúið þér, lögreglu- fulltrúi?" spurði læknirinn og leit forvitinn og spenntur á gamla manninn. Bárlach þagði. Klukkan tifaði, hvíldarlaust. Miskunnarlausir vísarnir fær-ð- ust hægt og sígandi nær tak- marki sínu. „Þér þegið,“ sagði Emmen- bergar, og rödd hans hafði tap- að hinum háttprúða yfirborðs- kennda hreimi. Hún hljómaði nú há og hvell: „Þér þegið. Nútíma- maðurinn svarar helzt ekki spurningunni: Á hvað trúið þér? Það þykir ekki lengur sæma að spyrja þannig. Maðurinn vill ekki taka of mikið upp í sig, eins og það er kallað og allra sízt gefa ákveðið svar og segja til dæmis: Ég trúi á guð föður, son og heilagan anda,“ eins og kristnir menn voru vanir að svara hér áður fyrr, og voru stoltir af trú sinni. í dag vill maðurinn helzt þegja, þegar hann er spurður, alveg eins og ungpía, sem spurð er óþægilegr- ar spurningar. Hann veit ekki fyllilega á hvað hann trúir. En guð veit þó, að hann á sína trú, þótt hún sé ef til vill nokkuð þokukennd. Og auðvitað trúir nútímamaðurinn á mannúð, kristindóm, umburðarlyndi, rét.t- læti, jafnrétti og bræðralag, orð, sem að vísu hafa nokkuð hjá- róma hljóm, en svo hugsar nann líka: Það er heldur ekki allt und ir orðunum komið. Hið þýðingnr mesta er að lifa siðsömu lífi og að breyta samkvæmt sinni betri vitund. Og svo reynir hann það. Sumir leggja hart að sér, en aðrir láta berast með straumn- um. Allt, sem maðurinn tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er gott eða illt, er undir heppni komið. Hið góða og hið illa fell- ur honum í skaut af einskærum tilviljunum. Af tilviljun verður maðúr réttlátur, af tilviljun ó- réttlátur. En svo hikar hann ekki við að kalla aðra trú- lausa, ef han þykist sjá eitthvað viðsjárvert í fari þeirra. Ég held ég þekki þá þessa menn, sem eru sannfærðir um, að þeir hafi rétt til að halda því fram að þeir viðurkenni, að einn plús einn séu þrír, fjórir eða jafn- vel 99. Þessir menn láta sér ekki detta í hug,’ að' til dæmis róttækur kommúnisti, sem af öllu hjarta sínu trúir á nauðsyn byltingarinnar, og að hún sé eini vegurinn, sem að lokum leiðir til góðs, þrátt fyrir milljónir mannfórna, séu miklu síður trú- lausir, heldur en þeir sjálfir, eða einhver Pétur eða Páll, sem hvorki trúir á guð né nokkuð annað, hvorki á himnaríki né helvíti, heldur aðeins á réttinn til að græða — trú, sem þeir væru of ragir til að viðurkenna sem sína. Svo lifa þessir menn eins og ormar í leðju, sem úti- lokar alla heilbrigða dómgreind, og loka augunum fyrir því, sem gott er og rétt“. „Ég hafði ekki grun um, að böðull gæti búið yfir slíkum orðaflaumi", sagði Bárlach „Ég hef haldið að þér og yðar líkar væru fremur orðfáir“. „Bravó“, hló Emmenberger. „Þér virðist vera að fá kjark- inn á ný. Bravó. Ég þarfnast hug rakkra manna, til að gera til- raunir mínar hér í tilrauna- stofunni. Og það er reglulega leiðinlegt, að sýnikennslan mín skuli alltaf þurfa að enda með dauða nemandans. Jæja, nú skul um við gæta að hver mín trú er, og síðan skulum við leggja hana á vogarskálina, og þegar við höf um lagt yðar trú á hina skál- ina, þá skulum við sjá, hvor okk ■ar á heitari trú, Nihilistinn, eius og þér kallið mig eða hinn kristni. Þér hafið komið hingað til mín, í nafni mannúðarinnar, til þess að eyðileggja mig. Ég vona að þér neitið mér ekki um þessa ánægju“. „Ég skil“, svaraði lögreglu- fulltrúinn, sem lagði sig allan fram við að leyna ótta sínum, sem stöðugt jókst, eftir því sem klukku vísarnir færðust áfram. „Svo að þér ætlið að segja mér frá yðar trú. Ég hafði ekki búizt við, að fjöldamorðingi eins og þér ætti nokkra trú“. „Klukkuna vantar fimm mín- útur í hálf tólf“, sagði Emmen- berger. „Hversu vingjarnlegt af yður að minna mig á það“, andvarp- aði gamli maðurinn titrandi af reiði og vanmætti. „Maðurinn, hvað er maður- inn?“ sagði læknirinn og hló. „Ég skammast mín ekki fyrir trú mína. Ég þegi ekki eins og þér. Alveg eins og kristnir trúa á þrjá hluti, sem í rauninni er einn og sami hluturinn, hin heilaga þrenning, eins trúi ég á tvo hluti, sem í rauninni er einn og sami hluturinn. Ég trúi á efnið, sem í feikn sinni býr yfir kyngikrafti, og á hnöttinn, sem við getum gengið um, sem við lifum á, og þjótum á í gegn- um endalausan geiminn. Ég trúi á efnið (hversu fátæklegt og tómlegt er að segja: Ég trúi á guð, í samanburði við það). Ég trúi á efnið, sem er áþreifanlegt eins og dýrin, jurtirnar og kolin, og getur verið óáþrefanlegt og varla reiknanlegt, eins og atóm- ið. Og enginn guð getur verið skýring, á hinum óskiljanlega leyndardómi tilveru þess. Og ég trúi því, að ég sé aðeins hluti þessa efnis, alveg eins og þér, og að tilvera mín veiti mér rétt til að gera það, sem ég vil gera. Sem hluti efnis, er ég aðeins sjónhending, aðeins tilviljun, al- veg eins og lífið sjálft í þessum óskapléga heimi er tilViljun. Væri jörðin ofurlítið nær sól- inni, væri ekki um neitt líf að ræða. Og mit líf er aðeins andar tak í ómælanlegu rúminu. Ó, ég man hina stórfenglegu nótt, er I A f* A rs ...THE NEXT PWyj ALL THAT WAS LEFT WEKE EA\BEKS--AN7 MANV S07IES CHAE.KE7 5EYON7 KECOGNITION. UPON KEACHING FOfC HIS 7UKCHASE, HIS FACE SECAME EX70SE7. THE AGENT SAWANP SHKANK. SAC<. IN TEKKOK! ...MUCH LATEK,AT A STEAMSHIP OFFICE, A MYSTEKIOUS TKAVELLEK BOUGHT A TICKET. |.|b.57Sð Daginn eftir voru búðirnar Löngu siðar keypti mjög dular- Pegar hann ætlar að taka við Afkreiðslumaðurinn sá það og rjúkandi rúst — og fjölmörg lík fullur náungi sér far með skipi. miðanum, kom andlit hans í ljós. hrökk til baka af hræðslu. voru óþekkjanleg. Barnasagan KALLl $>g super- filmu* fiskurim Vélameistarinn íauk við að setja saman hjólið á einu andar- taki og þeyttist af stað gegn- um Mudanooze. Hann stanzaði úti fyrir húsi sem stýrimaðurinn hafði leigt herbergi í. Gestgiafi hans var einmitt að færa honum te þegar heimilisfriðurinn var rof inn af meistaranum. „Við Iéttum akkerum eftir skamma stund. Sill, en ég veit ekki hvert víf1 förum. Kalli var mjög íbygginr á svi, Heldurðu að við getun' fundið Tomma?" Það reyndist erfitt að hafa upp á honum en að lokum fundu þeir káetudreng- mn þar sem hann var að leika fótbolta. mér skildist þetta. Ekkert er efn inu heilagra: Maðurinn, dýrin, jurtirnar, tunglið og stjörnurnar, eða hvað sem ég lít augum, eru tilviljunarkenndir hlutir, smámunir, alveg eins og sjávar löðrið og öldur hafsins. Það gild ir einu hvort lilutirnir séu eða séu ekki, þeir eru forgengilegir. Ef þeir væru ekki til, kæmi eitt hvað annað í þeirra stað. Slokkni lífið á þessari plánetu, kviknar það á annarri, einhvers staðar úti í geimnum, alveg eins og stóri vinningurinn kemur allt af af einskærri tilviljun, eftir því hvernig tölurnar koma út. Það er hlægilegt, að tala um eilíft líf til handa manninum, því að það verður aldrei annað en blekking. Og það er fásinna að gera sér rellur út af velferð mannsins í heimi, sem byggist á einu stóru happdrætti. Eins og það væri nokkurt vit, að sér- hvert númer hlyti vinning, í stað þess að flest vinna engan. Hvað ætti þá að verða um löngunina til að verða sá eini útvaldi og óréttláti, sem vinnur vinninginn. Það er fásinna að trúa á efnið á sama tíma og mannúðina. Það er aðeins hægt að trúa á efnið og sitt eigið ég. Réttlæti er ekki til — hvernig gæti efnið veri^ réttlátt - aðeins frelsi, sem enginn getur aflað sér — því það hlyti að vera réttlæti — frelsi, sem ekki er hægt að veita — því að hver ætti að veita það — heldur frelsi, sem maðurinn verður að taka sér með valdi. Frelsið er hugrekki til glæpa, vegna þess að það sjálft er glæp ur“. „Ég skil“, hrópaði lögreglu- fulltrúinn, samanhnipraður eins og deyjandi dýr, „Þér trúið ekki á neitt annað en réttinn til að pynta mann- inn“. „Bravó“, svaraði læknirinn og klappaði saman höndunum. „Bravó. Þetta kalla ég góðan nemanda, sem þorir að draga slíka ályktun. Bravó, bravó“ (Hann - klappaði aftur saman höndunum). „Ég hef þorað að vera ég sjálfur, og ekkert ann- að. Ég gaf mig á vald þess, sem gerði mig frjálsan, morðum og pyntingum. Þegar ég drep mann — og það geri ég enn einu sinni klukkan sjö - þegar ég stíg út fyrir siðmenninguna, sem veikleikar okkar hafa skapað, verð ég frjáls, verð ég ekkert nema eitt augnablik, en hvllíkt augnablik. Sigur minn og frelsi endurspeglast í kraftinum, sem er óskaplegur eins og efnið sjálft, eins voldugur og það, og eins óréttlátur og það, í angist ar veinunum og kvölunum, sem skína úr gljáandi, galopnum aug um, í vanmáttugu hvítu holdi, sem skelfur undir hnífnum mín- um“. Ódýr barnanærföt Verzluntn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.