Vísir - 02.11.1962, Síða 5
VlSIR . Föstudagur 2. nóvember 1962.
5
Sovézkt geimskip
á SeiB til Marz
Sovézkt geimskip er á leiðinni
til plánetunnar Marz og mun vera
7 mánuði á Ieiðinni. í morgun var
það komið 150.000 mílur vegar. —
Sovézkir vísindamenn segja, að ef
ailt gangi að óskum, kunni að
fást óyggjandi vissa um það, hvort
líf sé á Marz, en löngum hefur
verið álit vísindamanna, að sé líf
ijúpur —
Framhald af bls. 16
firðingar þráfaldlega orðið varir
við skyttur sem komið hafi sunn
an Kaldadal og farið síðan að
skjóta niður undir bæjum Borgar-
fjarðarmegin.
— Telur þú að það sé lítið
um rjúpu?
— Ég held,, sagði Guðbjörn, að
það sé dálítið af henni, en ekki
mikið. Og þessa dagana verðum
við mjög lítið varir við hana vegna
þess að til fjalla er algerlega hag-
laust fyrir hana. Hún heldur sig
sennilega meira niðri í Þjóðgarðin-
um, þar sem er kjarr og lyng
og auðveldara fyrir hana að ná sér
í fæðu.
Aðeins einn —
Framhald af bls. 1.
urvöktum, sagði Hauk-
ur að lokum.
í heimild ríkisstjórnarinnar
er tekið fram, að yfirlæknar
megi kalla sérfræðinga til að-
stoðar ef um brýna lífsnauðsyn
er að ræða. Getur þetta orðið
mjög teygjanlegt og hafa lækn
arnir ekki komið sér saman
um hvernig þeir eigi að skilja
þetta.
Þannig vita þeir ekki hvort
þeim er heimilt að kalla til
lækna á bakvaktir, þ.e.a.s. fá
lækna til að hlaupa fyrir sig í
skarðið ef um útkall er að ræða
að nóttu til.
Einnig er þeim ekki ljóst
hvort nota má heimildina í því
tilfelli að þeir geti ekki annað
þörfum sjiíklinga, sem eru ekki
í brýnni lífshættu.
Einhverjar viðræður munu
hafa farið fram um þetta mál,
en niðurstaða hefur ekki feng-
izt. Sennilegast er þó að hver
yfirlæknir verði að taka sjálf-
stæða afstöðu til þessa atriðis
í mörgum tilfellum.
Aðeins einn læknir hefur not
að heimildina til aðstoðar sér-
fræðings þegar þetta er skrif-
að, það er Óskar Þórðarson,
yfirlæknir Borgarsjúkrahússins.
Hins vegar steðja alls kyns
vandamál að yfirlæknunum og
fyrirsjáanlegt að þeir þurfi
aukna aðstoð.
á öðrum stjörnum, sé helzt að
vænta, að það sé á Marz. — Geim-
skipið nefnist Marz I.
Eldflaug af nýrri gerð bar geim-
skipið á braut kringum jörðu og
því næst var því skotið á braut
áleiðis til Marz. Athuganir hafa
leitt f ljós, að Marz I fer næstum
þá braut, sem gert var ráð fyrir.
Geimskipið vegur 893,5 kg, og er
útbúið hinum fulikomnustu ljós-
mynda- og sjónvarpstækjum, auk
margvíslegra vísindatækja. Vonir
standa til, að sjónvarpsmyndir ná-
ist af Marz. Verður slíkra mynda
beðið af eftirvæntingu.
Það er vitað, að gufuhvolfið á
Marz er þunnt og kuldi mikill, en
þar fyrir ætla vísindamenn, að
þar kunni að vera líf, og er bent
til þess, að líf þróist einnig á jörðu
við erfið skilyrði, m. a. af völdum
kulda. /
Síldarleit
Framhald af bls. 16
togarinn), sem kom hingað til
lands, og verið gerður út á tog-
veiðar, nema á síldarvertíðinni í
sumar var hann með hringnót.
Vísir spurði Jón hvort hann
hefði frétt nokkuð um, að síldar
hefði orðið vart í flóanum. Hann
kvað Ægi hafa orðið iftils háttar
varan í Miðnessjó fyrir skömmu,
en hann hefði aðeins leitað ef tæki
færi var til frá öðrum störfum, og
þess væri að geta að tfð hefði ver-
ið umhleypingasöm að undanförnu
og leitarskilyrði ákaflega erfið.
Líkiegt er að Guðmundur Péturs
verði tilbúinn til sfldarleitar um
eða upp úr næstu helgi.
Fundur var haldinn í gær-
kvöldi um síldveiðikjörin, og
náðist ekki samkomulag. Blað-
inu er ekki kunnugt, að nýr
fundur hafi verið boðaður.
Kirkjuþing —
Framh. af 1. síðu.
ur í sér, nái fram að ganga.
Frumvarp um að leggja niður
prestskosningar hefur verið bor
ið fram á Alþingi. Gerðu það
Sigurður Bjarnason og Gylfi Þ.
Gíslason, en það náði ekki fram
að ganga.
í dag er síðasti fundur kirkju-
þings.
Bænduhöllin —
Fran.halri ai bls. 1
um 80 milljónir og vélar og
innbú um 20 milljónir. Hver
rúmmetri f Bændahöllinni kost-
ar þá nær 2400 krónur, ef kostn
aður við búnað hennar er reikn
aður með, en um 1900 krónur,
ef aðeins er miðað við kostnað
við sjálfa húsbygginguna. Til
samanburðar mú geta þess, að
Byggingarþjónustan gefur upp
að meðalkostnaður á rúmmetra
í íbúðarblokk sé 1400 krónur á
rúmmetra.
Þegar blaðið spurði Sæmund
um það, hvort rekstur Bænda-
hallarinnar myndi geta staðið
undir byggingarkostnaðinum
við hana, kvaðst hann ekki geta
svarað því. Það færi mikið eft-
ir rekstri hótelsins þar, en Hótel
Saga myndi hafa til afnota rúm-
lega tvo þriðju hluta af bygg-
ingunni um það er lyki. Sæm-
undur kvað vonir standa til að
það tækist að útvega það fjár-
magn sem þörf er á til að full-
gera bygginguna.
Áformað er að Búnaðarfélag
Islands og Stéttarsamband
bænda flytji skrifstofur sínar í
BæVidahöllinni næsta vor.
Þessi mynd var tekin fyrir Vísi af landhelgisbrjótnum liggjandi við bryggju á ísafirði.
Gamall og nýr
landhelgisbrjétur
hafði ekki verið kveðinn upp rétt
fyrir hádegið.
Brezki skipstjórinn, sem hér um
ræðir, Arthur Wood Bruce, er gam
all landhelgisbrjótur. Hann var
dæmdur í fulla sekt á Akureyri
1955 fyrir iandhelgisbrot, en þá
var hann með annan togara.
KI. 18.14 sl. þriðjudag tók Ægir
brezka togarann Lincoln City frá
Grimsby út af Dýrafirði og fór með
hann til ísafjarðar. Togarinn er
grunaður um landhelgisbrot og
var hann rétt utan við fiskveiði-
takmörkin er hann náðist. Skip-
stjóri er Arthur Wood Bruce, 43
ára gamali.
Ægir gaf togaranum stöðvunar
merki með ljósum og lausu skoti.
Skipstórinn kveðst ekki hafa orðið
merkjanna var, en stöðvaði skip
sitt er Ægir þeytti eimpípur sínar.
Skipstjórinn neitaði landhelgis-
broti og neitaði einnig að sigla
togaranum inn á ísafjörð svo að
skipsmenn af Ægi urðu að fara
um borð og taka við stjórn og vél-
gæzlu.
Radartæki togarans voru biluð.
Rannsókn málsins er lokið og sak
sóknari ríkisins hefir ákveðið að
höfða skuli mál gegn skipstjóran-
um fyrir landhelgisbrot. Dómur
Viljo svipta —
Framhald af bls. 16
sóknarmenn og kommúnistar mynd
uðu minnihluta, þó hvor í sínu lagi,
og lögðu til að frumvarpið yrði
fellt. Ólafur Björnsson mælti fyrir
munn meirihlutans, Karl Kristjáns-
son fyrir Framsókn og Björn Jóns-
; son fyrir komma. Nánar er vikið
i að umræðum á 7. síðu (Alþingi).
Sömu lún út á landbán-
aBarafurBir
Framsóknarmenn fóru halloka
fyrir Ingólfi Jónssyni landbúnaðar-
ráðherra í þinginu I gær. Hann
hrakti enn eina af þeim staðleys-
um, sem þeir hafa lengi haldið á
Iofti frammi fyrir bændum.
Ásgeir Bjarnason (F) kom með
þá fyrirspum, hvað liði lánum til
landbúnaðarafurða, og hvenær
bændur yrðu settir á sama bekk
og útvegsmenn. Sagði Ásgeir að
það hefði tíðkazt í langan tíma, að
útvegsmenn fengju allt upp í 20
prósent hærri lán en bændur út á
afurðir sínar.
Landbúnaðarráðherra var ljúft að
svara fyrirspurninni. Hann hafði
kynnt sér málið mjög, þar sem hér
var á ferðinni eitt stærsta mál
bænda og komið höfðu fram sömu
fyrirspurnir á þingi Stéttarsam-
bands bænda.
Á árunum 1956—1959 lánaði
Seðlabankinn 67 prósent af verð-
mæti landbúnaðarafurða út á land
búnaðarafurðir og það sama út á
sjávarafurðir.
1960 60,8 út á landbúnaðaraf-
urðir, en 58,0 út á sjávarafurðir.
1961 55,3 út á landbúnaðaraf-
urðir, en 55,0 út á sjávarafurðir.
Báðir atvinnuvegirnir hafa síðan
fengið viðbótarlán og vissi ráðherr-
ann ekki hverju þau næmu, enda
væri það ekki hiutverk hans að á-
byrgjast slík lán fyrir einstaka
menn. Gilda hins vegar engar fast-
ar skorður um viðbótariánin og
væri það aðeins metið hverju sinni.
Ráðherrann fullyrti þó, að menn
fengju ekki verri fyrirgreiðslu í
bönkum varðandi lán út á landbún-
aðarafurðir en aðrir.
Hann fullyrti ennfremur, að
vænta megi þessara lána í næsta
mánuði og yrðu þau ekki lægri en
á síðasta ári, og ekki minni en
lán út á sjáv'arafurðir.
Deyfílyfinkomu frálæknum
samkvæmt skýrslum lög-
reglustjóra, sakadómara
3g yfirsakadómara, er
Ijóst, að tiltölulega lítill
liópur lækna hér í Reykja-
vík, hefur gefið út lyfseðla
ýrir deyfilyfjum í svo
yerulegu magni, að ákveð-
ið Iiefur verið að rann-
saka þá hlið málsins. Títt
ír að í höndum lögreglunn
ar lendi fólk, sem fengið
'iefur deyfilyf hjá þessum
ákveðnu læknum, tiltölu-
lega takmörkuðum hópi.
Hér er um mikið alvörumál að
| ræða fyrir læknastéttina í heild,
í ef rétt reynist að lyfseðlar út á
i deyfilyf frá þessum iæknum séu
grunsamlegir og óeðlilegir að
í’ölda.
Það kom skýrt fram í skýrslum
ofangreindra opinberra aðila, að
mjög hefði borið á óeðlilegri notk
un lyfja út á lyfseðla lítils hóps
' lækna, og virtist sem mestur hluti
neyttra lyfja hér væri frá læknun-
um kominn. Einnig væri ótrúlega,
mikið úr lyfjabúðunum sjálfum Á-
lyktuðu þeir að þau lyf væru feng
in í gegnum kunningskap neytenda
við starfsfólk lyfjabúðanna. Þá
væru gefnir út falsaðir seðlar og
eitthvað, en tiltölulega lítið væri
um smygl.
Heilbrigðismálaráðherra, Bjarni
Benediktsson, kvaðst hafa fengið
skrá yfir nöfn þessara ákveðnu
lækna, sem hann hefði aftur af-
hent landlækni. Mun landlæknir.
Sigurður Sigurðsson, láta fara
fram rannsókn á því á nve mjklum
rökum ummæli lögregluyfirvald-
1 anna væru byggð.
>