Vísir - 02.11.1962, Blaðsíða 9
VÍSIR . 2. nóv/5,~!ber 1982.
Uppdrátturinn sýnir, hvar Rússar höfðu komið sér upp hættulegum eldflaugastööum á Kúbu,
kafbátabækistöðvum og hvar sprengjuflugvellir eyjarinnar eru. _
Rússneska
hreiðrið á KÚBU
• Þorsteinn Thorarensen rekur
• gang Kúbumálsins — 2. grein
Guflntdnam
$anáarís\' f|í
ítób ;á!,
Enn er það í fersku
minni, þegar Rússar
skutu bandaríska njósna-
flugvélina af gerðinni
U-2 niður yfir Síberíu
þann 1. maí 1960.
Enn gleymist það ekki
hvílíkum hamförum Krús
jeff einræðísherra Rússa
fór þá, hvernig hann
hneykslaðist yfir þessum
fádæmum, að Bandaríkja
menn skyldu senda Ijós-
myndaflugvél inn yfir
Sovétríkin til að taka
myndir af vígæði Rússa á
sama tíma og Rússar sjálf
ir sendu þó tugi svokall-
aðra „fiskiskipa‘‘ út um
öll höf til njósna með-
fram ströndum vest-
rænna landa.
Verra var þó, að menn á Vest-
urlöndum skyldu leyfa sér að
taka undir áróður kommúnist-
anna og fordæma U-2 flugvélina.
sem hafði þó gert mikið gagn.
Og verst af öllu var að hin lin-
gerði þáverandi forseti Banda-
ríkjanna Eisenhower forseti, tók
því með þögn og þolinmæði, að
Krjúsjeff svívirti hann og vest-
rænar þjóðir með dólgshætti sín-
um vegna U-2 málsins.
U-2 hjálpa enn.
Cíðan þetta gerðist hafa U-2
njósnaflugvélar Bandaríkja-
manna lítið komið við sögu. Það
var ekki fyrr en nú um miðjan
október, sem þær komu aftur að
stórkostlegu gagni til þess að af-
hjúpa eitt skelfilegasta stríðssam
særi sem sagan getur um. Það
var með hjálp U-2 njósnaflugvél-
anna, sem fljúga hærra erni og
öllum flugvélum, sem falsanir
Rússa í Kúbumálinu voru opin-
beraðar og það kom í ljós, að
Rússar voru að koma sér þar
upp einu ægilegasta víghreiðri í
heimi.
Það er nú kunnugt orðið að ein
hvern tíma á fyrri hluta þessa árs,
missti Castro á Kúbu allt sjálf-
ræði í hendur Moskvuvaldsins.
Það er enn ekki vitað með vissu,
hvernig þetta gerðist, en margt
stuðlaði að þyí, t.d. að Kúba var
orðin Rússum mjög háð efnahags
lega og ennfremur að hópur rót-
tækra alþjóðakommúnista hafði
smámsaman grafið um sig £ kring
um Castró og hafði mikil áhrif á
hann.
Hernaðar-
samningur.
Áður en til þessa kæmi höfðu
Rússar selt Kúbumönnum mikið
af vopnum, en svo er litið á að
það hafi mátt kalla varnarvopn,
þ.e. léttir skriðdrekar, fallbyss-
ur í strandvirki og orrustuflug-
vélar með fremur litlu flugþoli.
Það mátti þá til sanns vegar
færa, eftir hina heimskulegu inn
rásartilraun í Svínaflóa, að Kúbu
menn gætu óttazt bandaríska inn-
rás, enda hafa raddir heyrzt um
slíkt í Bandaríkjunum.
En eftir að Castro komst með
öllu í klær Krjúsjeffs varð skyndi
leg breyting á þessu. Formlega
gerðist það hinn 2. sept. sl., að
Che Guevara hermálaráðherra
Kúbu undirritaði samning við
Rússa austur í Moskvu um hern-
aðaraðstoð. Það er nú komið á
daginn, að þessi samningur var
aðeins ætlaður tU að fela það,
að Rússar voru sjálfir búnir að
taka að sér stjórn hermála Kúbu.
Hinir gífurlegu vopnaflutningar
hófust um mitt sumar og héldu
áfram í stöðugt auknum mæli,
þar til bandaríski flotinn stöðvaði
þá, 22. sept. sl.
Orðrómur
á Kúbu.
Þegar kom fram á sumar tóku
að heyrast á Kúbu miklar sögu-
sagnir um að verið væri að koma
upp risavöxnum eldflaugabæki-
stöðvum þar. Vestrænir blaða-
menn sem fengu tækifæri til að
Framhald á bls. 2
Þessar myndir voru teknar 23. október yfir rússneskri eldflaugastöð á Kúbu. Tölumar sýna eftirfarandi: 1) Þungir vörubílar
2) Stjómturn með rafstöð og símalínum, 3) Skotbakki fyrir eldflaugar, 4) Stöð til að fjarstýra eldflaugum, 5) Löng tjöld
sem eldflaugar eru geymdar undir, 6) Þungir dráttarbílar, 7) Tankbílar með eldsneyti á eldflaugar, 8) Tankbílar með súrefni
á eldflaugar.
f l
! !
T'l i I !
I