Vísir - 02.11.1962, Side 10
WMH
V í SIR . Föstudagur 2. nóvember 1962.
io
HÆLI HANDA
Háaleitisliverfi — Hvassaleiti
Ný verzlun
Opnum í dag nýja kjörbúð að Háaleitisbraut 68. — Þar mun fást
m. a.: kjötvörur, nýlenduvörur, snyrtivörur, mjólk, brauð og kökur
og einnig fiskur eftir því sem hægt er að koma við.
Við munum leggja áherzlu á fjölbreytta vöru og góða þjónustu.
AUSTURYER h.f.
Háaleitisbraut 68 . Símar 32372 og 38340
Framh. af bls. 4
þær hafa orðið 435 þús. króna.
Eigi má gleyma hlut kvenna
i þessu efni, því að konur innan
félagsins hafa innt af hendi mikið
starf til fjáröflunar, og orðið
mjög vel ágengt. Fé því, sem
konurnar afla, verja þær einkum
til kaupa á húsgögnum og leikj-
tækjum fyrir stofnanir vangef-
inna. Loks er rétt að minna al-
menning á, að félagið hefir á
hendi sölu minningarspjalda, og
hefir haft af þvf nokkrar tekjur.“
Dagheimili 7
félagsins.
„Hvað er að segja til dæmis
um rekstur dagheimila á vegum
félagsins?"
„Félagið starfrækti á árunum
1959 og 1960 leikskóla fyrir van-
gefin börn, og var hann í leigu-
húsnæði. Þó varð s.tarfsemin að
falla niður á nokkru tímabili
vegna skorts á húsnæði. Á árinu
1960 var svo hafizt handa um
að reisa dagheimili fyrir vangefin
börn að Safamýri 5 hér í borg-
inni. Heimili þetta hefur verið
skírt „Lyngás". Hinn 1. júní á sl.
ári var byggingunni svo langt
komið, að unnt reyndist að hefja
rekstur heimilisins að nokkrum
hluta þann dag, og síðan hafa
verið þar 15—22 börn á dag.
Annars er byggingu heimilisins
svo langt komið, að það verður
sem fullgert og er kostnaður orð-
inn um 2,7 millj. kr. Félagið hefir
notið framlaga frá Styrktarsjóði
vangefinna og Reykjavíkurborg,
sem samtals hafa greitt um helm-
ing þeirrar fjárhæðar, sem heim-
ilið kostar nú. Þegar heimilið
verður fullbúið, getur það tekið
40 börn, en fyrir liggja fleiri
beiðnir um heimilisvist en hægt
verður að sinna.
Því má bæta við í þessu sam-
bandi, að síðan starfræksla þessa
heimilis var hafin, hefir félagið
haft í þjónustu sinni Iækni, sál-
fræðing, talkennara og „föndur“-
kennara, sem starfa í þágu barn-
anna hver á sínu sviði eftir því
sem þurfa þykir“.
Styrktir til náms
erlendis.
„Hvernig er það annars —
hefir Styrktarfélagið ekki styrkt
fólk til náms erlendis?"
„Jú, svo er ráð fyrir gert í
Iögum félagsins, að það veiti
nokkra styrki til náms erlendis,
svo að menn geti lært að ann-
ast vangefið fólk. Á þessu ári
hafa til dæmis verið veittir fimm
slíkir styrkir, og eru þeir samtals
70 þús. krónur. Styrkir þessir eru
bundnir skilyrðum, nefnilega að
þeir, sem þá fái, stundi nám er-
lendis eigi skemur en í eitt ár,
og loks verða hlutaðeigendur að
skuldbinda sig til að vinna að
námi loknu eigi skemur en þrjú
ár í þágu vangefinna. Ef menn
gera þetta ekki af einhverjum
ástæðum, verða þeir að endur-
greiða félaginu styrkinn “
»
Athugun
skipulagsnefndar.
„Og þá er komið að framtíð-
inni. Hvað getur þú sagt Vísi um
það, sem framundan er í þessum
málum?“
„Ekki verður annað sagt en að
stórfelld verkefni sé framundan,
því að það, sem gert hefir verið
fram að þessu, er sáralítið sam-
anborið við það, sem ógert er og
verður að gera.
í því sambaDdi er þá fyrst að
geta þess, að á árinu 1960 var
starfandi svonefnd „skipulags-
nefnd“ á vegum Styrktarfélags
vangefinna. Nefndarmenn voru
Jón Sigurðsson borgarlæknir,
Halldór Halldórsson arkitekt,
Broddi Jó’ annesson skólastjóri,
Jón Pálsson sálfræðingur og Að-
alsteinn Eiríksson námsstjóri.
Nefndin aflaði m. a. fyllri upp-
lýsinga en fyrir voru um fjölda
vangefins fólks í landipu. Niður-
staða nefndarinnar varð sú, að
vangefnir einstaklingar í landinu,
sem nauðsynlega þyrftu á hælis-
vist að halda, væru eigi færri en
850 talsins. M. ö. o. ástandið var
enn verra en menn ætluðu, þegar
félagið var stofnað.
Tíu ára bygg-
ingaráætlun.
Nefndin gerði áætlun, er við
það var miðuð, að á næstu 10
árum yrðu byggð hæli fyrir 400
vangefna, eða rúmlega helming
þess fólks, er þá var talið hafa
þörf fyrir hælisvist, en dvaldist
ekki þegar í hælum. Auk þess var
í áætlun þessari gert ráð fyrir
að byggja 15 rúm á hverju ári
vegna árlegrar fjölgunar vangef-
inna í landinu, sem talið er að
verða muni 10 — 15 manns. Bygg-
ingarkostnað á hvert rúm i fá-
vitahæli taldi nefndin þá vera kr.
250 þús., en hafa ber í huga, að
í þeirri upphæð er reiknað með
nauðsynlegu húsnæði handa
starfsfólki, fyrir leikstofur,
kennslustofur og annað, sem til-
heyrir slíkum stofnunum.
Áætlun nefndarinnar leit þann-
ig út:
1) Til að ljúka þeim byggingar-
framkvæmdum, er þá stóðu yfir
í þágu vangefinna, taldi nefndin
þurfa kr. 6,25 millj.
2) Rúm fyrir 400 manns á 250
þús. kr. hvert kr. 100,00 millj.
3) Vegna árlegrar fjölgunar, 15
rúm á ári I 10 ár kr. 33,75 millj.
Samtals er þessi áætlun kr.
140,00 millj., sem þýðir einfald-
lega það, að til þess að ná þessum
áfanga á 10 árum þurfa að vera
til umráða að meðaltali 14 millj.
kr. á ári.
Þess verður og að geta, að síð-
an áætlun þessi var gerð, hefir
orðið stórfelld hækkun á öllu
verðlagi í landinu, svo að varla
mun ofsagt, að það, sem þá var
talið kosta kr. 250 þúsund, kosti
nú um 300 þús. kr.“
Undirbúnings
er þörf.
„Það virðist því liggja í augum
uppi, að þær áætlanir, sem þið
hafið gert í upphafi um tekjuöfl-
un og annað, eru alls endis ófull-
nægjandi, ef unnt á að vera að
koma þessum málum á sómasam-
legan grundvöll."
„Já, því að þótt þessi áætlun
sé ekki óyggjandi plagg, sem
treysta megi til hlítar, sýnir hún
ljóslega, hversu geysilegs fjár-
magns er þörf og hve nauðsyn-
legt er að vinna af stórhug og
dug, ef unnt á að vera að ná við-
unandi árangri.
Þegar tryggður hafði verið
með lögum fastur tekjustofn til
byggingaframkvæmda, var orðið
tímabært að gera sér fulla grein
fyrir, með hvaða hætti skyldi
unnið að þessum málum i fram-
tíðinni. Stjórn Styrktarfélágsins
skrifaði því félagsmálaráðuneyt-
inu síðla á sl. vetri og fór þess
á leit, að heilbrigðisyfirvöldin
hæfust þegar handa um að gera
áætlun um framtíðarskipun þess-
ara mála. Það varð úr, að land-
læknir bauð til landsins á sl
sumri Bank Mikkelsen forstöðum
þeirrar deildar danskraheilbrigðis
málaráðuneytisins, er fjallar urr
málefni vange'inna þar í landi
Mikkelsen dvaldist hér í viku og
kynnti sér þessi málefni hér. Mun
hann síðar sW'' áliti um, hvernig
framkvæmdum verður bezt hagað
hér í þessum efnum. Danir eru í
fremstu röð í þessum efnum, og
vonandi verður því góður árang-
ur af heimsókn Mikkelsens."
„Hvernig getur allur almenn-
ingur veitt málinu stuðning?"
„Það er skoðun mín, að félagi
okkar væri að því mikill ávinn-
ingur, ef unnt væri að fjölga
félagsmönnum til muna. Eink-
um tel ég æskilegt, að ævifélög-
um fjölgi, og þvf fleiri sem bind-
ast formlegum samtökum í félags
skap til að veita hugsjón félags-
ins lið, þvf meiri lfkur eru til
þess að félaginu vaxi svo fiskur
um hrygg, að það nái viðunandi
árangri í starfi sínu. Ævifélaga- j
gjaldið er kr. 500, en árstillag
kr. 50.
í öðru lagi vil ég minna
almenning á happdrætti það, sem
félagið hefur efnt til og stendur
yfir um þessar mundir. Sala miða
stendur yfir og er margt góðra
vinninga, þar á meðal Volkswag-
en af nýjustu gerð. Ég vona, að
sem flestir góðir menn annað
hvort kaupi miða eða greiði fyr-
ir sölu þeirra. Þá bið ég menn
að minnast félagsins í næsta
mánuði, þegar merki þess verða
seld almenningi hér og víða úti
um landið.
Félagið h-.!ur að vísu náð all-
góðum árangri með lögfestingu
flöskugjaldsins, en samt skortir
mikið á, að það hafi bolmagn til
að ljúka aðkallandi verkefnum
á skömmum tíma.“
„Og hvað viljið þér segja að
endingu um þessi mál?“
„Ég vil aðeins endurtaka, að
okkur er nauðsyn á stuðningi
sem flestra góðra manna, því
að róðurinn verður þeim mun
léttari sem fleiri leggjast á árar.
Á heimilum víða um Iand ríkir
hreint neyðarástand, af því að
ekki er unnt að veita viðtöku
á hæli vangefinna fólki á þvf
stigi, að útilokað má telja að
ala önn fyrir því í heimahúsum j
við nútíma aðstæður. Þess vegna !
ítreka ég, hve frjáls fjáröflun
er mikilvæg og nauðsynleg.
Annars er rétt og skylt að taka
fram, að félagið hefur átt skiln-
ingi og samúð að mæta af hálfu
ráðamanna jíjóðarinnar og hecnn-
ar allrar í mjög ríkum mæli.
Margir hafa sagt ,-em svo, að í
þakkarskyni fyrir að hafa notið
þeirrar hamingju að eiga sjálfir
hraust og heilbrigð börn, væri
;tuðningur við Styrktarfélag van
gefinna ' eim næsta kærkomin
fórn. ’ vort sem urn væri að ræða
kaup á happdrættismiðum eða
framlag á annan hátt. Félaginu
hafa líka borizt margar góðar
gjafir, sem tala sínu máli um hug
gefenda til félagsins, og nýjasta
stórgjöfin var frá íslenzkri konu,
sem búsett er í Danmörku, dótt-
ur Símonar Dalaskálds, sem gaf
féla inu d. kr. 5000, en það jafn-
gildir rúmlega 31 þús. ísl. kr.
Að endingu aðeins þetta: Það
er verðugt verkefni fyrir alla
góða menn að eiga hlut að því,
að sú hugsjón, sem félagið hefur
ásett sér að gera að veruleika,
rætist sem allra fyrst."
Vísir tekur undir þessi loka-
orð með þeirri ósk, að sem flest-
ir leggi þessu þarfa málefni lið,
svo að því verði komið í höfn
sem allra fyrst.
Skipaútgerðln
Herðubreid
fer austur um land í hringferð 6.
þ.m. Vörumóttaka á föstudag og
árdegis á laugardag til Hornafjarð
1 ar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
i Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar, Borg-
' arfjarðar, Vopnafjarðar, Bakka-
fjarðar, Þórshafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
Skialdbreid
fer vestur um land til Akureyrar
5. þ.m. Vörumóttaka í dag til á-
ætlunarhafna við Húnaflóa og
Skagafjörð og Ólafsfjarðar. Far-
seðlar seldir á þriðjudag.
FÉLAGSLÍF
AÐALFUNDUR Handknatt-
leiksdeildar Víkings verður hald-
inn laugardaginn 3. nóvember, í
félagsheimilinu. Stjórnin.
Körfuknattleiksdeild K. R. Kvenna-
flokkur: Sunnud kl. 18,45 í K. R.-
heimili. Karlaflokkar: 4. fl. sunnud.
kl. 18,00 -18,45 í K. R.-heimili. 3.
fl. sunnud. kl. 19,30-20,15 í K. R,-
heimili. miðvikud. kl. 21,25—22,10
í K. R.-heimili. 2. fl. sunnud. kl.
20.15 -21,15 í K. R.-heimiIi. Mið-
vikud. kl. 20,35—21,25 í K. R.-heim
ili. 1. fl. Sunnud. kl. 21,15-22,10 í
K. R.-heimili. Fim.ntud. kl. 20,30—
21.15 (Háskólinn). Tími fyrir alla
deildina sunnud. kl. 9,30—10,15
árdegis (Háskólinn).
Geymið auglýsinguna.
Stjórnin.
S?r. Friðrik —
Frh. af 7. síðu:
Iæknana um batahorfur sjúklinga,
eða um bætta eftirmeðferð sjúkl-
inga, eftir að þeir eru útskrifaðir
af spítala, og þó ekki alltaf orðnir
frískir. Við skulum líka leiða hjá
okkur .ið sinni að tala um heil-
brigðisstjórnina okkar, bæði fyrr
og síðar, og hvernig hún hefur
rækt störf sín með tilliti til nú-
tíðar og framtíðar. Kannske gefst
tilefni til þess síðar.
Friðrik Einarsson.
SkáBdsagan
BCarólína
Franska skáldsagan „Karólína",
eftir Cecil St. Laurent, er nýkomin
út í bókarformi og nýkomin í bóka
verzlanir. — Sagan var birt í
Vísi og reyndist ein vinsælasta
framhaldssaga, sem blaðið hefur
birt. — í sögunni sem blaðið nú
flytur koma fram sömu persónur
og í Karolínu og segir þar frá
nýjum ævintýrum hennar. — Sög-
ur þessar gerast, eins og lesendum
er kunnugt, á tíma frönsku stjórn-
arbyltingarinnar.
-4
Innilegar þakkir til allra hinna mörgu nær
og fjær, sem með vinsamlegum kveðjum,
blómum dýrmætum gjöfum og heimsóknum,
heiðruðu mig á 60 ára afmæli mínu 27. okt. sl.
Emil Jónsson.
-BÍLAVAL-
Volswagen allar árgerðn Ford Consui 62. 4ra dyra Taunus Stadion ’59
faunus 58. 2ja dyra Opel Record 62, '60. '59, '56 Opel Caravan '62
61 '59. 55 Fíat stadion 1800 60 Ford 58 Taxi, mjög góðui Chervolei
59. 57 og 55 Öen? 220 55 og '57 Landrovei '62, lítið keyrðui Gjörið
svo vel og skoðið bílana, þeir eru á staðnum. B I L A V A L .
Laugavegi 90—92, símar 1896Ö, 19092 og 19168.
■■■■■HHHnBagMMHHBMaHiiMBiaMMMiSnKDMMiK.
t