Vísir - 06.11.1962, Page 4

Vísir - 06.11.1962, Page 4
4 VISIR . ÞíiOjudagur 6. nóvember 1962 Rætt v/ð Guðnýju Gunnarsdótt- ur um Ameri- can Field Service Á undanförnum árum hafa farið til Bandaríkj- anna yfir 70 unglingar á aldrinum 16—18 ára, á vegum stofnunar er nefn ist American Field Ser- vice. Hafa þeir dvalizt vestra í nærri eitt ár og búið hjá fjölskyldum þar. «a» Umsóknarfresti um slíka dvöl er nú senn að ljúka, eða nánar tiltekið þann 15. nóvember, fyr- ir þá sem dveljast munu erlendis næsta ár. Upph%flega stóð til um borgum þar sem American Field Service starfar, eru sér- stakar nefndir, sem sjá um að útvega fjölskyldur, sem vilja taka að sér ungling í eitt ár. Fjölskyldurnar eru valdar með það fyrir augum, að bakgrunnur og áhugamál séu að einhverju levti hliðstæð. Það er vandað mjög til valsins, enda kemur mjög sjaldan fyrir að nokkur óá- nægja verði. Sjaldan óánægja. — Hvað skeður, ef unglingum líkar ekki við fólkið, sem þeir eru sendir til? — Þá eiga menn að skrifa höf uðstöðvunum í New York. Er þá grafizt fyrir um hver ástæðan er og ef um er að ræða hluti, sem ekki er auðvelt að kippa í lag, er skipt um fjöl- skyldu. Þetta kemur þó mjög sjaldan fyrir og yfirleitt eru allir aðilar mjög ánægðir. Það hefur komið fyrir tvisvar, að íslending ur skipti um fjölskyldu og í ann- að skiptið var það aðeins vegna veikinda. — Hefur íslendingum vegnað vel vestra? — Það hefur gengið mjög vel. Enginn hefur orðið til neinna / vandræða. Ef eitthvað er, sem mátt hefur setja Ut á, er það helzt frammistaða í náminu. að halda áfram við nám hér heima, haft gagn af verunni þarna úti, við námið hér? — Það er ekki nokkur vafi. Skólarnir eru yfirleitt þannig, að menn geta ráðið því að talsverðu leyti sjálfir, hvað þeir læra. Tök- um til dæmis mann, sem er í stærðfræðideild í menntaskóla. Hann getur lært alla þá sömu stærðfræði f skólanum úti, sem hann annars væri að læra hér. Guðný Gunnarsdóttir og Erla Þórarinsdóttir (Ljósm. Visis, B. G.) fólk og tók mig alveg eins og dóttur sína. É'g held enn nánu sambandi við þau, og ætla að halda því áfram. Aukin I persónuleg kynni. — Hvenær hófst starfsemi American Field Service? — Fyrst var félagsskapurinn stofnaður í fyrra stríðinu. Sendi vegum American Field Service frá yfir 5Q löndum. Hefur þetta þótt gefa mjög góða raun, og eykst stöðugt fjöldi þeirra, sem koma til Bandarikjanna árlega. Tveir komu hingað. — Er ætlunin að nemendur komi hingað frá Bandaríkjunum? — Hingað hafa þegar komið tveir nemendur, sem voru hér í ara með 16-18 góðar einkunnir 'iujaðm ibv ao I mr.'IöH B ni að fresturinn stæði til 4. nóv- ember. Var honum framlengt vegna þess að margir voru sein- ir fyrir og einnig vegna þess að æskilegt er að geta sent sém flestar góðar umsóknir út. Við hittum að máli unga stúlku, sem starfar að þessum málum á skrif stofu Islenzk-Ameríska félags- ins. Hún heitir Guðný Gunnars- dóttir og dvaldist í South-Dakota árið 1959 —’60, á vegum Ameri- can Field Service. 25-30 í ár. — Hvað má búast við að fari margar út næsta ár? — Við gerum okkur vonir um að það verði 25 — 30. 1 ár eru það 17, sem eru úti. Við viljum hafa sem flestar góðar umsókn- ir, til að nógu sé úr að velja. Valið fer ekki fram hér, heldur í New York og er algerlega far- ið eftir umsóknunum, sem við sendum þeim. — Hvaða skilyrði þarf fólk að uppfylla til að fá að fara? ,— Skilyrðin eru þau, að vera á aldrinum 16 — 18 ára og hafa góðar einkunnir. Þá er einnig lagt mikið upp úr því að fólk hafi ekki verið tii neinna vand- ræða i skóla. — Annars byggist það aðal- lega á því, að finna fjölskyldur, hvað margir komast út. í öll- Menn hafa misjafnlega mikinn á- huga fyrir því. — í hvernig skóla gengur þetta fólk? — Það fer í það sem þeir kalla „high school“, sem gegnir raunverulega hlutverki bæði gagnfræðaskóla og menntaskóla hér, þannig að fólk fær inngöngu í háskóla, eftir brottfararpróf frá þeim. Þessir skólar eru mjög misjafnir, en allir þeir, sem American Field Service sendir fólk f, eru sérlega góðir skólar. Sjást ekki í ár. — Hvenær fer þetta fólk til Bandaríkjanna, sem nú er að sækja um? — Það fer út næsta september. Það fer allt héðan í hóp til New York, en þar dreifist hópurinn um öll Bandaríkin. Síðan sjást þau ekki allt árið, þangað til viku fyrir heimkomuna, að þau hittast í Washington. Það er sér- staklega athugað, að ekki séu fleiri en einn frá hverri þjóð á sama stað. — Unglingarnir dveljast svo hjá fjölskyldunni yfir árið og kynnast þannig á ómetanlegan hátt lifnaðarháttum og siðum. Raunar er það svo með flesta, að þeir eiga á eftir tvenna foreldra, hér heima og þar. Fólkið, sem ég var hjá, var sérstaklega gott hann þá sjúkraliðssveitir til víg- vallanna í Evrópu. Á milli stríð- anna lá starfsemin alveg niðri, en hófst aftur í annarri heims- ’styrjöldinni, og voru þá meðlimir allsstaðar að úr Evrópu með í félagsskapnum, sem áður hafði aðeins verið amerískur. — Eftir stríðið fóru menn að hugsa um hvað hægt væri að gera á friðartímum, til að reyna að koma í veg fyrir að aðrir slík ir hildarleikir ættu sér stað. Komst félagsskapurinn að því, að aukin persðnuleg kynni þjóða á milli væri ein vænlegasta leiðin til friðar og eindrægni. Var þá byrjað að veita styrki til náms- manna. Frá 50 löndum. — í fyrstu voru það háskóla- stúdentar, sem hlutu þá. Það þótti ekki gefa nógu góða raun, þar sem þeir komust tiltölulega lítið I snertingu við fólkið. Var það álit félagsins, að ekki væri hægt að kynnast þjóðinni til hlít- ar, nema með því að fólk dveldist á heimilunum hjá því. Varð það því ofan á, að árið 1947 var starfseminni breytt í það form, sem nú er á henni. — Síðan 1947 hafa 2222 nem- endur komið til Bandaríkjanna á tvo mánuði f sumar. Félagsskap- ur okkar, sem höfum verið úti, er ekki enn nógu stór til að við fáum hingað vetrarnemendur. Til þess áð geta það, þarf félagsskap urinn að hafa starfsmenn á laun- um. Það er samt ágæt byrjun að fá nemendur yfir sumarið. Þeir búa hjá fjölskyldum hér, eins og úti, og kynnast þannig landi og þjóð á þann bezta hátt, sem hægt er. — Hvar í Bandaríkjunum eru flestir nemendur? — Þeir <?ru flestir í Californiu. Það er eitt af mannflestu ríkj- unum og er að jafnaði með flesta nemendur. Þá er einnig mikið í Mið-norðurríkjunum, en tiltölu- lega lítið í Suðurríkjunum. Umsækjendur héðan hafa ekk- ert vald yfir því hvert þeir fara. Þeir eru sendir á staði, sem á- kveðnir eru í New York. Gagnlegt nám. Það færist raunar í vöxt að nem endur úr menntaskólunum sæki mikið gagn hægt að hafa af þessu um og sleppi einu ári. Það er og svo er það ekki lftils virði að bæta við einu tungumáli, sem maður ræður fullkomlega við. Reynslunni ríkari. — Hvað telur þú þig hafa-haft upp úr dvölinni? - Ég vil fyrst telja ensku- kunnáttuna, sem er algerlega'ó- og sjálfstæði á því að vera að metanleg. Þá fær maður reynslu heiman. Maður lærir einnig mik- ið á því að koma í ólíka skóla. Raunar held ég að þeir, sem hafa áhuga fyrir því, geti lært meira í skólum þar vestra en hér. Við hittum einnig hjá Guðnýju einn af umsækjendum um styrk- inn fyrir næsta ár. Það er ung stúlka að nafni Erla Þórarinsdótt ir, sem er í Kvennaskólanum og hefur væntanlega góðar einkunn ir, því að Guðný segist vera mjög vongóð með að hún komist vestur. Við spyrjum hana hvers vegna hana langi að fara. — Mig langar til að kynnast öðru en ég þegar þekki og sjá eitthvað nýtt. Þá er það mjög mikils virði að læra ensku bg sjá eitthvað fyrir sér. Þess er rétt að geta, ef ein- hverjir skyldu hafa áhuga á að athuga þetta nánar, sem verður að teljast líklegt, að skrifstofa Íslenzk-Ameríska félagsins í Hafnarstræti 19, er opin á þriðju j dögum og fimmtudögum kl. 5 — 7 eftir hádegi. — Geta nemendur, sem ætla

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.