Vísir - 06.11.1962, Side 5
V í SIR . Þriðjudagur 6. nóvember 1962.
Kjaralögin • • • | Kúbumólið —
Frh. af bls. 7.
með athöfnum sínum brotið í bág
við ákvæði laga nr. 55/1962, en
úr því eigi Félagsdómur að skera
samkvæmt 25. gr. laganna, og
samkvæmt 3. gr. þeirra fari
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja með fyrirsvar ríkisstarfs-
manna bæði um kjarasamninga
og aðrar ákvarðanir af hendi
þeirra. Nefnd lög hafi auk þess
verið sett að fengnu samkomu-
lagi með þeim hætti, að segja
megi að þau bindi opinbera starfs
menn eigi aðeins sem lög heldur
einnig sem samningur. Sé mál
þetta því í öllu tilliti réttilega
rekið fyrir Félagsdómi og gegn
réttum aðilja.
Enda þótt uppsagnir þær, sem
um er deilt í máli þessu hafi
farið fram í aprílmánuði s.l. og
.<~?ur en lög nr. 55/1962 tóku
gildi, hamlar það eigi því, að
Félagsdómur fjalli um þær dóm-
kröfur, sem gerðar eru f máli
þessu.
í 2. gr. laganna segir að fjár-
málaráðherra fari með fyrirsvar
ríkissjóðs að því er varðar kjara-
samninga og aðrar ákvarðanir af
hendi ríkisvalds samkvæmt lög-
unum, og í 3. gr. er svo mælt, að
Bandalag starfsmanna ríkis- og
bæja fari með fyrirsvar ríkis-
starfsmanna um kjarasamninga
og aðrar ákvarðanir samkvæmt
sömu lögum. Eru fjármálaráð-
herra vegna ríkissjóðs og Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja
þannig samningsaðiljar um launa-
kjör og aðrar ákvarðanir í því
sambandi. Læknar þeir, sem
sögðu upp stöðum sínum 12. og
13. apríl s.l. og sem stefnt er í
máli þessu, voru allir ríkisstarfs
menn, sem 1. gr. laga nr. 55/1962
tekur til, er þau lög gengu í
gildi, og varð Bandalag starfs-
manna rfkis og bæja þannig
samningsaðili þeirra vegna um
launakjör, sbr. 4. gr. sömu laga,
og fyrirsvarsaðili þeirra að Iög-
um um aðrar ákvarðanir af
þeirra hálfu í sambandi við Iauna
kjör þeirra. Samkvæmt þessu og
ákvæðum 3. mgr. 25. gr. nefndra
laga var stefnanda rétt að beina
gegn nefndu bandalagi sem lög-
giltum fyrirsvarsaðilja hinna
stefndu lækm. málssókn út af því,
að þeir hafi eigi í launakjaradeilu
fylgt fyrirmælum Iaga nr. 55/
1962. Samkvæmt 25. gr. laganna
dæmir Félagsdómur í málum, sem
rísa milli samningsaðilja út af
brofúm á þeim lögum og fneð því
að hér er um þess konar ágrein-
ing að ræða, er því réttilega
stefnt fyrir Félagsdóm. Verður
frávísunarkrafa stefnda sam-
kvæmt því eigi tekin til greina.
Kveðið verður á um málskostn
að þegar málið verður dæmt að
efni til.
Úrskurðarorð:
Frávísunarkrafa stefnda verður
ekki tekin til greina.
Leiðin rudd —
Framhald af bls. 16
ýta að fara tJ' móts við snjóplóg-
inn austur um Barðaströnd og
Þingmannaheiði. Eru miklar fannir
víða á þessari leið og sem dæmi
má geta þess að plógbíllinn var
heilan dag að komast fyrir Gils-
fjörðinn og vestur að Kinnarstöð-
um í Reykhólasveit. Var samt svo
þungfært í slóð hans að olíubílar
áttu fullt f fangi með að komast
hana.
Vegar'álastjörnin taldi nauðsyn
bera til að opna leiðina vestur um
Barðastrandarsýslu vegna þess að
ekki var b,,-ð að flytja bangað
vetrarforða af matvælum og olíu
þegar vegurinn lokaðist á dögun-
um.
Fiamhald at 16 slðu:
Kennedy var kjörinn forseti 1960,
en það er yfirleitt reynslan að
stjórnarflokkur tapi fylgi milli kosn
inga, sem fara fram samtímis for-
setakjöri. Menn hafa yfirleitt búizt
við þó nokkru fylgistapi demokrata
samkvæmt hinni gömlu reynslu, en
nú eykur það óvissuna hver áhrif
Kúbumálið hefur haft á afstöðu
kjósenda. Að margra ætlan hefur
aðstaða flokksins eflzt á ný vegna
framkomu forsetans og stjómar
hans í þessu máli.
1 öldungadeild þjóðþingsins eiga
nú sæti 64 þingmenn demokrata og
36 republikana. Verður nú kosið
um 39 sæti, en af þeim hafa demo
kratar 20 og republikanar 19. Demo
kratar hafa 43 sæti af 61, sem ekki
er kosið um, republikanar 18. Ríkin
eru nú 50 og sendir hvert þeirra
2 fulltrúa í öldungadeildina.
í fulltrúadeildinni eiga sæti 261
demókrati og 174 republikanar. —
Nokkuð mismunandi skilyrði eru
sett fyrir kosningarrétti í hinum
ýmsu fylkjum, en yfirleitt hafa all
ir fullorðnir kosningarrétt frá 18
eða 21 árs aldri.
Meðal heimskunnra manna, sem
eru í kjöri, eru þeir Nelson Rocke-
feller ríkisstjóri í New York og
i Richard Nixon fyrrverandi vara-
forseti Bandaríkjanna, sem býður
sig fram ríkisstjóraefni. —- Sigri
Rockefeller, stórbatnar aðstaða
hans til keppni uni að verða valinn
forsetaefni republikana í næstu
forsetakosningum. Móti honum
bjóða demokratar fram M. Morg-
enthau.
Nixon keppir í Kaliforninu við
Pat Bron ríkisstjóra, sem er demo
krati og mjög vinsæll; maður. Alls
er kosið um 35 ríkisstjóra Edward
(Teddy) Kennedy býður sig fram
sem öldungadeildar-þingmannsefni
eða til þess að skipa það sæti, sem
bróðir hans, forsetinn skipaði áður.
Keppinautur Teddy eru George
Cabot Lodge (sonur Henry Cabot
Lodge sem var fulltrúi Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum í
forsetatíð Eisenhower), og S.
Hughes, en það nefn er einnig
viðkunnugt. Afi hans var Charles
Evan Hughes, sem var dómforseti J
hæstaréttar Bandaríkjanna.
Miana framboð— i
Framhald af bls. 16
um vera minna en venjulega. Helzt
er skortur á tveggja og þriggja
herbergja íbúðum, en meira fram-
boð er á stórum íbúðum. Virðist
aukin eftirspurn fremur hafa haft
þau áhrif að hækka útborganir, en
að hækka verðið. Þær hækkanir
sem orðið hafa á byggingarkostn-
aði að undanförnu, hafa ekki kom-
ið fram á íbúðaverði enn.
Heldur er verð á íbúðum hærra
á hitaveitusvæði. Þó er sá munur
miklu minni en áður og nú orðið
er mjög lítill ,-erðmunur á íbúðum
utan og innan Hringbrautar. Áður
voru þær í verulega hærra verði.
Er talið að hinn mikli bílafjöldi í
bænum valdi þessu.
Verkbann —
Framhald ,ai bls. 1.
aðfaranótt sunnudags hafi varð-
skipið Óðinn orðið vart við mik-
ið síldarmagn þar: Síldin mæld-
ist í nærri samfelldum torfum á
18 metra dýpi, 26 metra þykk-
um. Síldin er á um 20 mílna
svæði vestur af Þrídröngum í
áttina að Þorlákshöfn eða nánar
tiltekið frá 68.26 N til 20.48 V
i og 63.32 N 21.27 V. i
Þessi mynd er einnig frá hinu nýja Sjálfstæðishúsi. Hún sýnir yfir á vinstri væng hússins
og innganginn í salinn. (Ljósm. Vísis I .M.) (Sjá forsíðu.)
Blotim bætir bog bænda
Talsverður snjór er enn víða um i Það fór að hlýna þegar á laugar- næstu 2 daga að minnsta kosti.
sveitir, þar sem mestan snjó settiidag s. 1. og hefur farið batnandi , Standi blotinn viku tíma má gera
niður, og fé óvíða farið að geta, síðan og að því er Veðurstofan ; ráð fyrir, að jörð komi upp all-
notað sér jörð enn, en hún er nú
að koma upp, svo að horfur eru
mjög batnandi að blotinn sem nú
er kominn, verði að verulegu
tjáði Vísi í morgun eru ekki sjáan- ; víða, og batnar við það hagur
legar snöggar veðurfarsbreytingar j bænda, þar sem fé þeirra og hross
öruggt ætti að vera með hláku fara aftur að ná til jarðar.
Dagsafli á línu
50 tonn
gagni.
Nú er komið þíðviðri um land
allt og var mestur hiti í morgun
9 stig á Hólum í Hornafirði, en
víða 4—5 og 6 — 7 stig, og mest
frost 2 stig (Nautabúi í Skagafirði).
Tundurhleðsl-
um stolii
Brotizt var inn í verzlunina
Goðaborg á Vatnsstíg um síðustu
helgi og stolið þaðan nokkru magni
af tundurhleðslum.
Innbrotsþjófurinn hafði komizt
inn í geymslu verzlunarinnar, þar
sem m. a. voru geymdar rakettur.
Hafði þjófurinn brotið tundur-
hleðslur, 24 að tölu, framan af rak-
ettunum og farið með þær, en skil-
ið raketturnar sjálfar eftir. Hvort
meiru hafði verið stolið þarna, var
enn ekki ljóst f morgun.
Akranesbátar, sem eru á línu,
hafa aflað vel undangengna góð-
viðris daga, og er aflinn mest-
^piegnis ýsa.
Það eru fimm vélbátar, sem eru
með línu og hefur aflinn verið
þetta 5—9 tonn á bát. Er mun
betri veiði nú en um sama leyti í
j fyrra. Líklegt er, að fleiri bátar
fari á línu, ef síldveiðideilan leys-
ist ekki, en um það eru menn mjög
bölsýnir, og munu 2 — 3 bátar bæt-
ast við á línu nustu daga. Dags-
aflinn þessa góðviðrisdaga mun
' nema alls um 50 lestir og jafnvel
! allt upp í 60 á Akranesbáta, og er
I þess og að geta, að hópur af trill-
um er dagiega á sjó og líka tneð
línu.
*
Utflufningur —
Framhala at bls 1
Útflutningurinn á tíma-
bilinu jan.-sept. nam um 2,5
milljörðum kr., en innflutning-
urinn um 2,6 milljörðum, og
hefur vöruskiptajöfnuðurinn
fram til 1. október því verið
óhagstæður um 100 milljónir
króna. Á sama tímabili í fyrra
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag
stæður um 190 milljónir króna.
Mótþróafulli skipstjórinn
fókk 250 þús. kr. sekt
Bæjarfógetinn á ísafirði
Jóhann Gunnar Ólafsson hef
ur kveðið upp dóm yfir Art-
hur Wood Bruce, 43 ára skip-
stjóra af Grimsby togaranum
Lincoln City, sem Ægir tók
að ólöglegum veiðum innan
Iandhelgi við Kóp aðfaranótt
miðvikudagsins.
Skipstjórinn hlaut 250 þús-
und króna sekt, en afli og
veiðarfæri togarans voru gerð
upptæk. Hann hefur ákveðið
að áfrýja dómnum.
Réttarhöldin yfir skipstjór-
anum tóku nokkru lengri
tíma en venjulega þar sem
hann neitaði því með öllu að
hafa verið að veiðum inna
landhelgi. Skipsmenn á Ægi
sáu hann fyrst að veiðum inn
an landhelgi og létu þar út
dufl, en þar sem togarinn
sigldi í burtu og hlýddi ekki
í fyrstu fyrirmælum um að
nema staðar var hann kom-
inn 0,7 sjómílur út fyrir íand-
helgina, þegar náðist í hann.
Síðar var farið að finna dufl
ið, en það hafði þá losnað
upp og virtist sem það hefði
verið skotið á það, en alln.’ -
ið var af togurum á þessu
svæði.
feruce skipstjóri mótmælti
því frá upphafi að hafa verið
að veiðum innan landhelgi
og sýndi hann mikla þverúð,
þegar honum var skipað að
sigla af stað til ísafjarðar.
Bannaði .hann öllum mönnum
sínum, að veita nokkra að-
stoð til að sigla skipinu til
hafnar. Urðu varðskipsmenn
þá sjálfir að sigla skipinu og
tók 2. stýrimaður á Ægi við
stjórn skipsins meðan 4. vél-
stjóri og 3. stýrimaður fóru
í vélarrúm, settu vélar togar
ans af stað og sigldu skipinu
til ísafjarðar.