Vísir - 19.11.1962, Síða 15

Vísir - 19.11.1962, Síða 15
V1SIR . Mánudagur 19. nóvember 1962. /5 Hún brast í grát og hann tók hönd hennar, og strauk hana. — Gráttu nú ekki, en veittu nú einu sinni athygli því, sem ég hefi að segja. Ég hefi á und- anförnum mánuðum iðulega þurft á ungum stúlkum að halda sem fyrirsætum, og m. a. hefir ein frönsk verið fyrirsæta hjá mér. Meðan þær eru fyrirsætur hjá mér greiði ég dvalarkostnað þeirra á gistihúsi og önnur út- gjöld þeirra. Það sem ég geri fyrir manneskjur, sem ég þékki ekki neitt, ætti mér að leyfast að gera fyrir yður. Honum til undrunar gleypti Karólína við tilboðinu. — Auðvitað tek ég boðinu. En Karólína átti við annað en Collins hugði þegar hún féllst á það. Hún tók því ekki einvörðungu til þess að verða fyrirsæta hjá honum og geta hætt að lifa gleðisnauðu, erfiðu lífi, — hún tók því til þess að verða ástmey hans, sannfærð um, að sá væri tilgangur hans tilboðinu undir niðri. ** Hann fylgdi henni til gisti- húss í nágrenninu, sem var þokkalegt, og í alla staði við- unandi, þótt ekki væri þar neinn bragur skrauts og óhófs á neinu. Hún fékk rúmgott og bjart her bergi með snotrum húsgögnum. Það furðulega var, að það var eins og Collins skildi alls ekki, að nú gat hann gert við hana allt, sem hann vildi — það var svo langt frá því, að hónum væri neitt sama í hug og Karó- línu, að þegar liðið var á fyrsta kvöldið, sem þau voru saman, sagði hann allt í einu, að það væri orðið svo áliðið, að hann yrði að fara. Daginn eftir, þegar hún kom inn í vinnustofu hans, sá hún þrjár fyrirsætur í hóp. Þær voru allar naktar. Karólína var svo viss um, að hún ætti líka að sitja fyrir nakin, að hún fór að hneppa frá sér kjólnum, en Collins stöðvaði hana. — Setjizt niður andartak, sagði hann. Röðin kemur að yður seinna. Þegar hann nokkru síðar þurfti á henni að halda, átti hún ekki að sitjá fyrir nakin, heldur klædd fallegum kjól, en sá sem hún var i, var ekki nógu falleg- «u% og notaði hann það sem á- tyllu til þess að gefa henni tvo forkunnar fallega kjóla. Karólínu féll vel að vera fyr- irsæta og kunni vel andi msloft inu og fór vel á með henr ' og hinum fyrirsætunum. Hún svaf út á morgnana, var komin í vinnustofuna á hádegi, og þurfti ímhbhi sjaldnast að sitja fyrir lengi, og þegar hún fór slóst hún gjarnan í lag með hinum ungu fyrirsæt- unum. — Einkum féll vel á með henni og Solange, frönsku fyrir- sætunni, sem var 19 ára. Hún var fræg Bourgogne, af gamalli aðalsætt, de Chiprey. Faðir hennar hafði verið tekinn af lífi í byrjun byltingarinnar, einn af bræðrum hennar drukknaði, er flóð var í Loire og annar bróð- ir hennar var í her Condé og féll í orrustu. Solange bjó nú í Lund- únum með móður sinni. Síðdegis sat Karólína fyrir og var þá klædd öðrum nýja kjóln- um. Eftir á bauð Collins henni oft til miðdegisverðar, og kom það þá fyrii;, að einhver af vin- um Johns lávarðar heilsaði henni, — hafði þá gleymt hneyksli því, sem hún hafði valdið. Og svo, að miðdegisverði loknum, er kvöld var komið, fylgdi Collins henni heim í gisti- húsið og dró sig svo hæversk- lega í hlé. Stundum bbrðaði hún hjá Solange og komst eitt sinn að því, að móðir hennar hafði ekki hugmynd um, að hún sæti fyrir nakin. Hún hélt að hún starfaði hjá handritagrúskara og væri að þýða gömul frönsk hand rit eða skrifa upp úr þeim. Og stundum fór Karólína í heim- sókn til Louise og var þá klædd öðrum fallega kjólnum og kom akandi í vagni Collins. Dag nokkurn mætti hún ungri konu á götunni og störðu þær orðlausar hvor á aðra stutta stutta stund. — Inez, hrópaði Karólína svo, eru það þér í raun og veru? j — Voithrt Við ékki farnar að þúástT"klaTt5trinu? sagði Inez, — Jú, vissulega, en það er svo óralangt síðan. Karólína leið ekki sem bezt. Hún mundi vel með hverjum hætti samvistum þeirra í klaustr inu lauk og játaði fyrir sjálfri Menn spyrjn undrnndi hvað valdi þessu óvenjulega skæra ljósi frá hinum nýju OREOL KRYPTON ljósaperum. Svarið er að með þrotlausu tilraunastarfi hefur OREOL tekizt að finna lausnina, nú eru OREOL perurnar fylltar með Krypton-efni, sem hefur þann eiginleika að perur, sem fyllt- er eru ineð því, gefa 30% skærara ljós. Biðj- ið um OREOL KRYPTON, þær fást í flestum raftækja- og nýlenduvöruverzlunum. Murs Trnding Company Klapparstíg 20 . Sími 17373 A A FKESH TKAIL LcV away froia SATEfASA. THE JDWGLE LOKF F0LL0IVE7 WARILY, FETEKWIWEF’LY— Dagurinn rann og Tarzan bjóst Hugh hann við, að maðurinn er til brottferðar. „Mundu, varaði vitskertur“. Tarzan fann strax sporin og en ákveðinn. Fljótlega fann hann þau lágu frá Batemba. Konung- svarta tusku, sem rifnað hafði ur skóganna fylgdi þeim, gætinn úr slá hins flýjandi óvinar. Barnasagan KALLI ftjL super- filmu- fiskurinn Froðufellandi af reiði hlupu Kalli og meistarinn að bíl Jóseps Bizniz: „Marhnúturinn hann Joe P. Deal frá Visiorma filmu félag- inuhefur leigt alla járnbrautar- vagnana það sem eftir er af deg- viðskipti“, sagði Bizniz og hló innilega, „vitið þið fyrir hve mikið?“ „Tuttugu þúsund“ sagði Kalli jmngur á brún. Bizniz hróp aði glottandi: „tuttugu þúsund, ha, ha, ha, og haldið oið að hann slái Súperskópfilmu félagið út? Nei, komið gömlu vinir, við bjóð- um helmingi meira“. En Kalla líkaði það ekki. „Ég þoli ekki HIBIIIP »'1111 IIII l|| þessi viðskiptabrögð“ hugsaði hann, „ef landkrabbinn heldur þessu áfram verða engir pen- ingar eftir handa okkur. Við verð um að breyta um stefnu.“. Nærfatnaöur Karlmanna og drengja, t'yrirliggjandi L. H MULLER Ódýrt KULDASKÖR og BOMSUR r Odýrar barnasokkabuxur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.