Vísir - 08.12.1962, Page 6
i i i
VI S IR . Laugardagur 8. desember 1962.
GKggl
Jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar hafin
Nú er Mæðrastyrksnefnd að
hefja hina árlegu jólasöfnun
sína, sem hún hefur gengizt fyr-
ir undanfarin 33 ár. Frá og með
deginum í dag verður skrifstof-
an á Njálsgötu opin frá kl.
10,30—18 og verður þar tekið
á móti peningagjöfum og um-
sóknum um styrki. Fatamóttaka
og fataúthlutun verður aftur á
móti í samráði við Vetrarhjálp-
ina og verður fötum veitt mót-
taka í Ingólfsstræti 4 kl. 2—6
daglega.
Stjórn Mæðrastyrksnefndar
boðaði nýlega til fundar með
fréttamönnum og skýrði þeim
frá starfsemi nefndarinnar.
Starfsemi Mæðrastyrksnefnd-
ar má segja að sé þríþætt. I
fyrsta lagi ýmiss konar réttar-
bætur handa konum og er lög-
fræðingur nefndarinnar, frú
Auður Auðuns, til viðtals á
vissum tímum allt árið um
kring. í öðru lagi er það ýmiss
konar styrktarstarfsemi, t. d.
jólasöfnunin. 1 þriðja lagi er svo
nefndin með hvíldarheimili fyr-
ir mæður.
Fyrsta jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar var árið 1928 og
söfnuðust þá 120 krónur. Árið
1961 söfnuðust 231 þúsund krón
ur, auk fata og matvæla og er
það það mesta, sem safnazt hef
ur hingað til. 1 fyrra var hægt
að veita aðstoð 700 — 800 heim
ilum, og voru það einkum gaml- :
ar konur, ekkjur, einstæðari
mæður eða fyrirvinnulaus heim,-1
ili, sem aðstoðar nutu.
Mæðrastyrsknefndin hefur nú
sent söfnunarlista til verzlana
og fyrirtækja i Reykjavík, og,;
sagðist frú Jónína Guðmunds-
dóttir, formaður nefndarinnar,
vona, að undirtektir yrðu einis
góðar og í fyrra.
Nefndin vill beina þeim tíl-
mælum til fólks, að það konii
fatagjöfum sem allra fyrst, því
oft þarf að laga fötin áður en
hægt er að nota þau, og það
tekur sinn tíma. Umsóknir xim
styrki þurfa einnig að berast
sem fyrst, því fyrr sem þærfoer
ast, því fleirum verðuh hægt að
hjálpa. Nauðsynlegt er, að þ«iir,
sem eru á listum hjá nefndinni
frá liðnum árum, endurnýi um-
sóknir sínar.
Að Mæðrastyrksnefndínni
standa 19 félög og fulltrúar
allra félaganna vinna að jóla-
söfnuninni. í úthlutunarnefnd-
inni eru þessar konur: Jánína
Guðmundsdóttir formaður, Jó-
hanna Stcíánsdóttir, Guðfiinna '
Jóhannsdóttir, Ásta Björnsdótt-
ir, Unnur Skúladóttir og Guð-
rún Snæbjörnsdóttir.
Söluskrifstofa F.L
/ nýju húsnæ ði
Fréttamenn blaða og útvarps
skoðuðu f gær í boði Flugfélags ís-
Iands hið nýja húsnæði söluskrif-
stofu þess, sem undangengin 17 ár
hefur verið í Lækjargötu 4, en nú
er flutt í húsnæði það, sem Iðnað-
arbankinn áður hafði í Lækjargötu
2. Þar hefur allt verið endurskipu-
Iagt til stórbættrar aðstöðu til þjón
ustu við innlenda og erlenda við-
skiptamenn félagsins. Er húsnæðið
vistlegt og allt með glæsibrag.
Á götuhæð er afgreiðslusalur,
þar sem sala farseðla fer fram,
bæði með eigin flugvélum félags-
ins svo og með öðrum félögum,
hvert sem er í heiminum. Á 2. hæð
verður upplýsingaþjónusta fyrir
farþega og aðra, sem til skrifstof-
unnar leita og þar mun farþegaaf-
greiðsla fara fram eftir þv£
sem þörf gerist.
Á 5. hæð hússins er farpantana-
deild félagsins staðsett. Farpant-
anadeild sér um allar farpantanir
með flugvélum Flugfélags fslands
milli landa, svo og pantainir á á-
framhaldsleiðum, pantanir á hótel-
herbergjum, sé þess beiðst, o. fl.
í farpantanadeild er TELEX-
þjónusta félagsins, en TELEX-
tækið er I sambandi við sölu-
skrifstofur félagsins erlendis,
svo og önnur flugfélög og
margar ferðaskrifstofur. Tekur
t. d. aðeins 6 mfnútur að ná
sambandi við Japan.
í kjallara hússins eru geymslur
og aðstaða til innpökkunar á aug-
lýsinga- og útstillingavarningi. í
söluskrifstofu Flugfélags fslands í
Lækjargötu 2 vinna til jafnaðar
8—10 manns. Skrifstofustjóri er
Birgir Ólafsson. Við hlíð söluskrif-
stofunnar, einnig í LæSkjargötu 2,
er afgreiðsluskrifstofa vöruflutn-
inga millilandaflugs. Yfirmaður
hennar er Sveinn Þorsteinsson.
Með því að kaupa
JÓLAKORT
RAUÐA KROSSINS
styðjið þér
Alsírsöfnunina
Kortin eru gerð eftir myndum frú Barböru
Árnason.
fyiesti viiburður í útgófu islenzkro
fræðirita í garðyrkju"
Garðblóm í litum
eftir Ingólf Daviðsson
t bókinni eru 508 litmyndir af tegundum, ættum og af-
brigðum, teiknaðar af danska listamanninum Vemer
Hancke. Myndimar em allar gerðar eftir lifandi fyrir-
myndum. Texti bókarinnar er stuttur og gagnyrtur og
algerlega miðaður við íslenzka staðháttu. Því er þeim
tegundum, sem hér þrífast bezt, gerð meiri og betri skil
en hinum, sem minni reynsla er fengin af hér á landi.
Tré og runnar
litum
i
eftir Ingólf Daviðsson
Hér er að finna 357 litmyndir af trjám og mnnum, og
er bókinni skipt í þrjá kafla. í hinum fyrsta eru allir
fegurstu Iaufrunnar og lauftré, sem henta í litla og
stóra garða, þar á meðal eru flest nýjustu rósaafbrigði,
sem nú eru mest eftirsótt. I öðrum kaflanum eru al-
gengustu og fegurstu vafnings- og klifurplöntur. Loks
eru í þriðja kafla bókarinnar mikið úrval af fögrum og
sérkennilegum barrtrjám og barrtrjárunnum. Texti Ing-
ólfs er allur miðaður við hérlenda staðháttu og lýsing-
ar allar stuttar og óvenju greinilegar.
Um þessar tvær óvenjufögru bækur segir Hafliði Jóns-
son, garðyrkjufræðingur, í ritdómi:
„Það :n: hiklaust telja útkomu þessara tveggja lit-
myndabóka með mestu viðburðum, sem til þessa hafa
átt sér stað í útgáfu íslenzkra fræðirita í garðyrkju, og
ég efast ekkert um að þær eiga eftir að hafa mikil áhrif
á blómaþekkingu alls almennings á næstu árum... “
GARÐBLÓM ! UTUM og TRÉ OG RUNNAR í LITUM
eru ómissundi hundbækur ullru úhugumunnu um gúrðrækt
— SKUGGSJÁ —
[C
ALLAR HELZTU
málningarvörur
ávallt fyrirliggjandi
SENDUM HEIM
HELGI MAGNÚSSON & CO.
Hafnarstræti 19.
Símar 13184 - 17227
• •
Okukennsla!
Get útvegað kennslu í
bifreiðarakstri í Hafnar-
firði, Kópav. og Reykja-
vík.
Bila og Bilpartasalan
Hellisgötu 20, Hafnar-
firði, sími 50271.
Hrafnista DAS — Starfsstúlkur
Konur og stúlkur óskast til starfa hálfan eða allan daginn. Uppl. í
slma 35133 og 50528 eftir kl. 7.
Sjóstakkar á hálfvirði
Sjóstakkar á hálfvirði fyrir hendi, en er farið að fækka. Vopni, Aðal-
stræti 16.
Saumavél til sölu
Husquarna-saumavél til sölu. Sími 32910.
Til sölu
Philco-ísskápur, 12,2 kúbikfet, með sjálfvirkri affrystingu, eldhúshús-
gögn frá S ’húsgögnum, kaffimávastell, 12 manna (ónotað), og segul-
bandstæki, River. Uppl. £ sfma 34656.
Stofusett
Stofusett, áklæðið grátt og svart, selst ódýrt, einnig svefnsófi og svefn-
stóll, Laugavegi 68, inn sundið.
Ökukennsla
Kennt er á nýja Volkswagen-bifreið. Uppl. f sfma 18158.
Skrifborð — fiskabúr — fatnaður
Skrifborð (fyrir ungling) fiskabúr, tvenn karlmannaföt og frakki, lítið
notað, á meðalmann, til sölu. Uppl. í sfma 12091.
Föst atvinna — framtíðarstarf
Oss vantar verklagið og reglusamt fólk til vinnu f verksmiðju vorri
nú þegar, 10 manns, bæði karla og konur. — Vaktavinna — yfirvinna
— gott kaup fyrir duglegt fólk. — Talið við verkstjórann. — Hamp-
iðjan h.f., Stakkholti 4, sími 24490.