Vísir - 03.01.1963, Side 6
V í S IR . Fimmtudagur 3. janúar 1963.
j - ^ -
Með kvikmyndinni Kleópötru kom ný hárgreiðsla, Kleópötrugreiðslan.
Af henni eru til mörg afbrigði og hér er eitt þeirra: Hárið er greitt
frá gagnauganu og aftur fyrir eyrun og fest þar með spennu. Uppi ;■
’ivirflinum er hárið túberað og aftan við eyrun og í hnakkanum er
það rúllað inn á við.
4
Gerfihár er nú mikið f
tízku bæði heilar hár-
koliur -og einstakir
toppar. Ef einhverjar
skyldu eiga lausan hár
lokk er hér ein
greiðsia þar sem gott
er að nota hann: Lausa
hárið er sett í hnút á
hvirflinum og fest vel.
síðan túberið þið ykk
ar eigin hár og greiðið
í stóra „brúsandi
rúllu“ í hliðunum.
Nokkur hluti ennis-
toppsins er burstaður
aftur með hnútnum til
að mörkin sjáist a!Is
ekki.
Þessi dömulega
greiðsla klæðir margar
konur vel, en til þess,
að hægt sé að greiða
hárið á þennan hátt,
verður hárið að vera
hálfsftt, nema í hnakk
anum, þar er það stutt.
Ef hárið er lingert
ná túbera það eilítið.
Ef lagningin helzt ekki lengi á hári ykkar er þessi hárgreiðsla til-
valin, því að með henni þarf ekki að hugsa um nema aðra hliðina.
Hárið er burstað frá vinstra gagnauga, yfir eyrað og til hægri í hnakk-
anum. Síðan er það túberað eftir þörfum, og frá hvirflinum er það
látið leggjast niður á hægri augabrúnina.
HÁRGREIDSLAN1963
I