Vísir - 03.01.1963, Side 9

Vísir - 03.01.1963, Side 9
VlSIR . Fimmtudagur 3. janúar 1963. UaHaniMBMHMa9MaBHMaSÍBitfHMnMMNÍNí«H8aBiHanaKb«i Áheyrendur a tónverkið Leifur Þórarinsson tón- káld er nýkominn heim frá Bandaríkjunum, en hann hefur að undan- förnu dvalizt í New York og verið þar m. a. frétta- ritari Ríkisútvarpsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Það hefur þó verið auka- starf hjá Leifi, þar sem hann hefur helgað sig tón smíðum. Er hann þegar orðinn þekktur fyrir tón- verk sín, ekki einasta hér heima, heldur hafa verk hans einnig verið flutt í Bandaríkjunum og Evr- ópu, t. d. bæði á Norður- löndum og Þýzkalandi. Þegar ég innti Leif eftir því, hvers konar tónlist hann semdi, kom í ljós, að hann fæst aðallega við verk fyrir stórar og smáar hljóðfærasveitir. Tjað er ýmsum erfiðleikum bundið, sagði Leifur, að semja tónlist fyrir einleikara og söngvara. Söngvarar eru erfiðari viðureignar, vegna þess að þeir vilja ekki syngja nýja tónlist. Þeir vilja syngja eitthvað, sem er vinsælt. Það er líka miklu auð- veldara fyrir þá. Þeir eru aldir upp við þá tegund tónlistar og geta gengið beint að henni. Raun ar hefur bilið milli tónskálda og flytjenda aldrei verið eins mikið og nú. Flytjendur hafa aldrei ver ið eins miklir verzlunarmenn og nú. Þeir spila alltaf fyrir hinn breiða markað. í dag er allt ann að fólk en áður, sem hlustar á músík. Áður var hún fyrir fá- mennan hóp, útvaldar yfirstéttar. Nú hafa allir tök á að nálgast tónlistina, en þessi nýi áheyr- endahópur hefur ekki eins mikla hefð að baki sér og yfirstétt fyrri tíma. Það hefur einhvern veginn gleymzt að gefa þessu gaum og sinna því. Það er varla hægt að gera ráð fyrir, að fólk, sem aldrei hefur hlustað á Beethoven, geti stokkið yfir I að hlusta á það, sem nú er nýjast. Hér á íslandi er ábyggilega eins stór áheyr- endahópur fyrir nýja tónlist og hvar annars staðar. Það er eftir- Viðtal við Leif Þórar- insson tektarvert, 'að hér er það yngra fólk, sem sækir konserta, en nokkurs staðar annars. Á hinn bóginn er harla lítið gert fyrir þennan áhuga. Ef maður kemur í gagnfræðaskóla í Bandaríkjun- um, mætir manni kanski heil sin- fóníuhljómsveit. Hér er varla kendur söngur í gagnfræðaskól- ýtt eins mikið frá almennum konsertum og nú. Eru það verzlunarsjónarmið, sem þar ráða. Já, vegna þess að Chopin eða Schuman og Liszt eru miklu cryggari verzlunarvara en nýja tónlistin. Þess vegna er hún helzt ekki með á tónleikum eða að hún Leifur Þórarinsson um, hvað þá að ungu fólki sé kennt og gefið tækifæri til að hlusta á tónlist. Jgr ekki að einhverju leyti kost- ur að hafa áheyrendur, sem eru lausir við kreddubundna hefð? Það er alltaf verið að deila um það, hvort skortur á tradition sé kostur eða ekki. En því er haldið - fram, að fólk þurfi að fá ákveðið magn af gamalli tón- list í eyrað, áður en það geti tileinkað sér hið nýja. En þetta er mikið vandamál, því þarna er tónlistarsagan stöðvuð, og hvenær á þá að sleppa fólkinu út í nútímann? Ég held reyndar að þetta sé hvergi skipulagt, held ur ráði kylfa kásti. yj^n nú eru uppi háværar raddir um það, að nýja tónlistin sé mjög óaðgengileg. Nýja tónlistin er vitanlega fyrst og fremst óaðgengileg fyrir þá, sem aldrei hafa heyrt hana Beethoven er mjög óaðgengileg- ur fyrir mann, sem aldrei hefur hlustað á tónlist, að ekki sé minnzt á menn eins og Stravin- sky. Nú er eins og tónskáldin hafi verið lokuð inni í einhverj- um hring. Þeim hefur aldrei verið er sett einhvers staðar á efnis- skrána, þar sem lítið ber á. Það má kannski segja, að þetta sé að einhverju leyti skiljanlegt. Mikið af nýrri tónlist eru tilraunir, hálf- sögð saga, er í deiglu — eins og reyndar alltaf. Öll ný verk, sem hljóma skringilega, þurfa ekki að vera meistaraverk. En þau þurfa að heyrast. Tónskáldið verður að vita, hvað hefur heppnazt. Og það er eins með tónlistina og skáldskapinn, að það eru ótal leirskáld á bak við hvern meist- ara. ~p^n hvað um Iaglínuna, sumum finnst vanta Iaglínu í nýju tónlistina? Það er fyrst og fremst öðru vísi laglína. Webern. sem er eins konar guðfaðir tónlistar eftir- stríðsáranna. hefur áreiðanlega skrifað laglínur, sem jafnast á við Schubert. Annars er reyndar hægt að láta fólk hiusta á hvað sem er, og það er Ifka hægt að láta menn gera næstum, hvað sem er, ef auglýsingatækni er beitt á réttan háét. Ef við tök- um dægurlag til dæmis, þá er ekki víst. að það borgi sig frá sjónarmiði sölumanna að setja fram eitthvað, sem endist Iengi. Það getur vstöðvað framleiðsluna. Það er ekki margt fólk, sem sækir konserta með gamalli tón- list. Hvað heldur þú, að margir sæki konserta að staðaldri í New York? Það eru kannski svona 20 þúsundir. Ekki getur það nú tal- izt mikið. Og þar af eru kannski þúsund manns, sem fer á hljóm- leika með nýrri tónlist. En verst er þó ef til vill, að það er að rísa upp í heiminum ný stéttar- skipting. Það er fólk, sem er í raunverulegum tengslum við list og andlegar hræringar svokall- aðar, og svo annað fólk, sem beinlínis er haldið niðri með aug- lýsingatækni. Sums staðar er þetta jafnvel orðið svo mikið, að er tvímælalaust mesta menning- arborg Bandaríkjanna. Sumir segja, að hún sé höfuðborg heimsins, og það gefur auga leið,, að þar gerist margt á sviði list- anna. Þar eru kannski 40 — 50 málverkasýningar í gangi í einu. og ve'ia má á milli 5 — 6 kon- serta á dag. í vetur hefur verið óvenjumikið um tónleika með nýrri tónlist og verið uppselt á hvern konsertinn á fætur öðrum löngu fyrirfram. Og hvað er svo af þínum tón- smíðum að segja? Ég hef nýlega lokið við tvö hljómsveitarverk. Tvíþætt sinfón- iskt verk og svo annað stutt manni er hætt að lítast á blik- una. Það var til dæmis á nor- rænu tónlistarhátíðinni í Kaup- mannahöfn stór hluti þeirra manna, sem stóðu fyrir hljóm- leikunum, sem vildu kalla þetta ráðstefnu tónskálda, þar sem þau ættu bara að hlusta hvert á annað. Það var engu líkara en þeir vildu beinlínis halda þessu fyrir einhvern þröngan hóp. Tón- skáld verða að vera í sambandi við áheyrendur, þótt þau vilji kannski ekki öll viðurkenna það og segist ekki vera að semja fyrir aðra en sjálfa sig. Tónverk er ekki fullskapað fyrr en það er komið til áheyrendanna. Tjú hefur kunnað vel við þig 1 í New York? Já, það hef ég gert. New York hljómsveitarverk, sem verður líklega flutt af Sinfóníuhljóm- sveit íslands seinna í vetur. Á tveimur síðastliðnum árum hef ég lokið við 4 kammerverk, sem hafa verið flutt í Bandaríkjun- um og Evrópu. Og framundan? Það er ýmislegt í smíðum, en það er víst bezt að segja sem minnst um það nú. Mitt starf er að semja tónlist og því liggur það eitt fyrir. Maður verður að helga sig því og reyna að fram- kvæma það sem bezt og leitast við að taka afkomuna ekki alltof hátíðlega, þó kannski sé það nú kokhreysti að taka þannig til orða. En ef maður er nógu heið- arlegur gagnvart því, sem maður er að gera, þá gengur þetta allt saman. N.P.N. Bál á fjúllstmdi Siglfirðingar fögnuðu nýju ári í sumarblíðu og ljósadýrð. 8 piltar úr Skíðafélagi Siglufjarðar fóru með efni í bálköst upp á hæsta topp Hólshyrnunnar, fyrir botni fjarðarins, og kveiktu bál þar uppi kl. 6 á gamlárskvöld. Einnig skutu þeir miklum og fögrum svif- blysum og sáu menn niðri í Siglu- firði glöggt er bálið og blysin bar við himin. Það er sjaldgæft að kveikt sé bál uppi á Hólshyrnu og naut það sin einkar vel f björtu og kyrru veðri. Á sömu stundu og kveikt var í bálkestinum uppi á fjallinu var kveikt á rafmagnsljósum á brún- inni neðan við Hvanneyrarskál og er það í fyrsta sinn um áramót að rafmagn er notað til þess að lýsa upp mynni Skálarinnar. Undanfar- in ár hefir verið kveikt þar á blysum. Kl. 9 á Gamlárskvöld var síðan kveikt á ljósum í hlíðinni neðan við Hvanneyrarskál og mynduðu þessi Ijós ártalið 1963. Sumarblíða hefir verið í Siglu- firði síðan um áramótin og er það fágætt á þessum tíma árs að að- eins sé grátt í fjöllum. Svo milt hefir tíðarfarið verið að ekkert frost er í jörðu í Siglufirði. Frétta- ritari Vísis á staðnum, Ragnar Jónsson, kvað hátíðahöld bæjarbúa um áramótin hafa verið sérlega á- nægjuleg. Á Ráðshústorgi á Siglu- firði er fagurt jólatré sem er gjöf frá vinabæ Siglufjarðar Herning, en Herning hefir verið nefnd höf- uðborg Jótlandsheiða. Ánægjuleg áramót í Eyjum. Sigfús Johnsen, fréttaritari Vís- is í Vestmannaeyjum, kvað einnig hafa verið ánægjuleg áramót þar í bæ. Brennur voru á ýmsum stöð- um, t. d. uppi í hlíðum Helgafells og í Hánni, sem er annað fjall i Eyjum. Á þrettándanum fara íþróttafélög og skátafélög bæjarins blysför um bæinn og upp um fjöll. Norskur rithöfundur, — Sigurd Hölmebakk — hefur gengið fram fyrir skjöldu og gert hatramma árás á Ólaf 5. Noregskonung. Hefur hann gert árásina í grein, sem birt er í tímaritinu „Veien frem“, og þar segir meðal annars, að kominn sé tími til þess, að kon- ungdæmið sé lagt niður í Noregi. Ólafur konungur sé fylgismaður Efnahagsbandalagsins, tákni þjóð- legrar uppgjafar og sé því ekki lengur konungur norsku þjóðarinn- ar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.