Vísir - 03.01.1963, Side 13

Vísir - 03.01.1963, Side 13
V í S IR . Fimmtudagur 3. janúar 1963. 13 KS-aafc'nu. * '-Htuím RÓLEG ÁRAMÓT Á AKUREYR1 Akureyri í morgun. Akureyringar fögnuðu áramót- um í björtu og stilltu veðri, en í 8-10 stiga frosti. Lögreglan hafði veitt leyfi fyrir 20 brennum víðs vegar í bænum. en auk þeirra voru nokkrar smá- brennur í Uthverfum bæjarins og nærliggjandi býlum. Fjórar brenn urnar voru miklu stærstar og í tveim þeirra var úrgangsefni frá tunnuverksmiðjunni aðaluppistað- an. Safnaðist mikill mannfjöldi að brennunum, jafn fullorðnir sem börn. Flugeldum var skotið, eink- um um miðnættið, en naumast þó eins mikið og oft áður, og var ástæðan helzt talin sú að færra var um skip í höfninni heldur en venjulega um áramót, en frá skip unum er oft skotið mikið af flug- eldum. Einhver brögð voru að sprengjuskotum á götum bæjar- ins um kvöldið og lögreglunni bár ust kærur um að föt vegfarenda hefðu skemmst af þeim sökum. Bþróffablaðið — Framhald at bls 2. Undir þessum lið flutti Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, erindi. Ný reglugerð fyrir unglingaráð ÍSl. Samþykkt var ný reglugerð fyr- ir unglingaráð ÍSÍ og var aðal- breyting frá því sem áður var, að ráðið verður skipað 3 mönnum í stað 11. Útgáfa á íþróttablaði. Eftirfarandi var samþykkt: „Fundur haldinn í sambandsráði ÍSÍ sunnudaginn 2. desember 1962 samþykkir að heimila framkvæmda stjórn ÍSÍ að hefja útgáfu íþrótta- blaðs“. fþróttamerki ÍSÍ. Samþykkt var eftirfarandú „Fundur haldinn í sambandsráði ÍSÍ sunnudaginn 2. desember 1962 samþykkir að hefja útbreiðslu og keppni um íþróttamerki ÍSÍ, sam- kvæmt áætlun íþróttamerkjanefnd- ar í byrjun febrúar 1963.“ Fjármál íþróttasambandsins voru mikið rædd og lagði fram- kvæmdastjórn fram ítarlegt greiðsluyfirlit fyrir árið 1963 og voru eftirfarandi gjaldaliðir sam- þykktir sérstaklega: Kostnaður vegna námskeiða ÍSÍ kr. 80,000,00. Kostnaður vegna námskeiða sérsambanda kr. 130,000,00. Þá gaf gjaldkeri ÍSÍ, Gunnlaugur J. Briem yfirlit yfir úthlutun kennslustyrkja. Að lokum þakkaði forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson, Guðjóni Einars- syni, varaforseta ÍSÍ, fyrir góða fundarstjórn og þakkaði fundar- mönnum komuna á fundinn, og óskaði utanbæjarmönnum góðrar heimferðar. Á þessum 26. fundi sambands- ráðs ÍSÍ mættu: Gísli Halldórsson, Benedikt G. Waage, Guðjón Einarsson, Gunn- laugur J. Briem, Sveinn Björnsson, Axel Jónsson, Þorvarður Árnason, Þórarinn Sveinsson, Þórir Þor- geirsson, Ármana Dalmannsson, Jón F. Hjartar, Jens Guðbjörns- son, Einar B. Pálsson, Erlingur Pálsson, Ingi Þorsteinsson, Bogi Þorsteinsson, Ásbjörn Sigurjóns- son, Guðmundur Sveinbjörnsson, Halldór Magnússon, Örn Eiðsson, Þorsteinn Einarsson og Hermann Guðmundsson. Að öðru leyti var mjög rólegt hjá lögreglunni og enginn maður tekinn úr umferð á gamlárskvöld eða um nóttina. Hjá slökkviliðinu var líka mjög rólegt og var það aldrei kvatt á vettvang um ára- mótin. — Eins og undanfarin gamlárskvöld var komið fyrir skrautlýsingu í Vaðlaheiðinni, og ártalið 1963 Ietrað í heiðina með Iogandi blysum. Það var Guðm. Jónsson, málaram., sem stóð fyrir þessu, nú eins og áður. Dansleikir voru á 5 stöðum á gamlárskvöld, þ.á.m. bæði í Menntaskólanum og Gagnfræða- skólanum. Þau óhöpp urðu um áramótin, að 4 bifreiðar ultu, allar á sama staðnum, en það var í Hafnarstr., móts við hús nr. 5. Var þar flug- hálka í beygju og orsökuðust velt urnar af þvf að bifreiðum, sem voru á allmikilli ferð, var skyndi- lega hemlað. Sem betur fór urðu ekki slys á fólki, og bílarnir skemmdust furðanlega lítið nema einn þeirra. Á gamlársdag kom enskur tog- ari inn til Akureyrar vegna leka, sem að honum hafði komið. Gaf skipstjóri þá skýringu að hann hafi siglt á ísjaka og við það dæld uðust nokkrar plötur og bönd beygluðust við fremstu Iestina. Slökkviliðið var fengið til að dæla sjónum úr skipinu, en að því búnu fór athugun á skemmdum þess fram í slippnum. Togarinn var í morgun enn á Akureyri. Myndsjá — Framhald af bls. 3. Loksins stendur bálkösturinn aftur tilbúinn, stækkaður og end urbættur. Allir hlaupa inn til að skipta um föt til að vera fínir á helgideginum. Meðan allir eru að þvo sér, skeður óhappið mesta, bálkösturinn hefur verið varðgæzlulaus um stund og það fer eins og oft í styrjöldum, að óvinirnir í næstu hverfum nota tækifærið og læðast utan úr myrkrinu. Hraðboði er sendur í húsin þar sem strákarnir standa við vaskana og eru að þvo sér upp úr sólskinssápu: — Það er eldur uppi, og allir þjóta út. Þeg ar komið var að kestinum* var Iiann í björtu báli og það voru þögulir og þreyttir drengir sem horfðu á eldinn og margur felldi tár í hljóði. Þeir höfðu haft mik ið erfiði, en svo mikil var illska heimsins, að þeir fengu ekki sitt áramótabál. 15 ára drap föður sinn Fimmtán ára finnskur drengur í Jurva í Österbotten situr í gæzlu- varðhaldi fyrir að hafa drepið föð- ur sinn. Drengurinn hafði beðið eftir föð ur sínum með byssu £ hendi, er föðurins var von úr vinnu, og skaut hann um leið og hann lauk upp útihurðinni á heimili þeirra. Síðan fór hann á fund granna sinna og bað þá að kalla á lög- regluna. Nágrannar skýra svo frá. að maðurinn, sem var 38 ára gam all og mjög þunglyndur, hafi mis- þyrmt konn sinni og börnum dag- lega. en hann var veginn. Dreng / am, sem ódæðið vann, var elztur barna hans. Barist / Katanga Enn var barizt í Katanga um nýárið og féllu 4 hermenn Sam einuðu þjóðanna á nýársdag en 14 særðust. Var það á milli Elizabetville og Chataville, sem er námubær skammt frá landa- mærum Norður-Rhodesiu. Sæk ir lið SÞ fram til þessa bæjar, en annars var U Thant nýbú- inn að tilkynna, að hernaðarað- gerðum SÞ f Katanga væri lok ið, er fréttist um þessi átök. Staðfest er, að Tsjombe sé í Chataville og sé fús til við- ræðna á grundvelli tillagna Breta, sé honum heitið ferða- frelsi og vopnahlé gert milli Chataville og Elisabetville. togar ar á Grænlandsmiðum Málgagn danska fiskiiðnaðarins hefir birt fregnir um, að Japanir sé að hugleiða að senda togara á veiðar á Grænlandsmiðum. Dansk Fiskeri Tidende segir um þetta, að þrjú af togaraútgerðar- félögum Japana sé að athuga mögu leika á að senda eitthvað af skip- um sínum þegar á næsta ári á þessi mið, og muni þeir að líkindum láta verksmiðjuskip fylgja veiðiskipun- um til að vinna aflann á staðnum. í síðasta hefti Ægis, málgagns Fiskifélags íslands, er birt fregn um þetta mál eftir Journal of Commerce, sem gefið er útí Banda- ríkjunum. Frásögn Ægis er á þessa leið: Ýmis konar takmarkanir og minnk andi fiskmagn á veiðisvæðum, sem íslenzltu riti dreift með aðstoð rafeindaheila Félag viðskiptafræðinema við háskólann hefir sent frá sér annað hefti ritsins Hagmála, sem hóf göngu sína sl. vor. Meðal greina í riti þessu eru Gjaldeyrissparnaður, stofnfjárstuðlar og fjárfestingar- ákvarðanir eftir próf. Árna Vil- hjálmsson, Meðferð kvartana £ fyr irtæki, eftir cand. oecon. Sigurpál Vilhjálmsson, Er hægt að sam- ræma stöðugt verðlag og atvinnu handa öllum?, eftir Magnús Ár- mann, cand. oecon., Samanburður á vexti þjóðartekna £ kapitalist- isku og sósfalistisku hagkerfi, eft- ir Björn Matthiasson stud. oecon., Hagfræðinám við háskólann í Köln, eftir stud, rer, pol. Sigfinn i Sigmundsson og Þættir úr Berlín- i arför eftir Gunnar Finnsson, stud. I oecon. í Dreifing blaðsins er með óvenju I legum hætti, þv£ að ekkert fslenzkt rit hefir notazt við sömu aðferð fram að þessu. Um hana segir svo í heftinu: Það má telja til tiðinda, að Hag- mál er fyrst islenzkra rita til að taka rafeindaheila f sina þjónustu. Hefur blaðið komið sér upp IBM gat-spjaldakerfi yfir alla þá er blað ið fá, og annast al-sjálfvirkar vél- ar útskrift til áskrifenda. Einnig má með kerfi þessu velja úr á- kveðna hópa manna á augabragði. Fyrirtæki Ottó A. Michelsen, IBM-umboðið, hefur veitt Hagmál- um alla hugsanlega aðstoð i þessu efni. Þess má geta, að flest meiri háttar rit erlendis, svo sem Time, Newsweek o. fl. byggja dreifingu sína á sams konar kerfi. í ritstjórn Hagmála eru Ottó Schopka, Helgi Hákon Jónsson og Marinó Þorsteinsson, en prentun annaðist Borgarprent. áður gáfu mikið í aðra hönd, hefur orðið þess valdandi, að Japanir renna nú vonaraugum til miðanna í Norður-Atlantshafi, og er fyrsti togarinn þegar lagður af stað þang- að. Fiskveiðar Japana við Afríku eru ótryggar vegna fyrirætlana nýju ríkjanna þar um stækkun fiskveiði- takmarkanna i 12 rnílur, og sagt er að lftið sé orðið um fisk á miðunum við Ástralíu og Nýja Sjáland. Japanski togarinn, sem er á leið- inni til Norður-Atlantshafsins, heit- ir Aoi Maru no. 2, og er frá Aoi- útgerðarfélaginu í Tokyo. Hann hef ur 42 manna áhöfn og mun aðal- lega stunda veiðar á þorski, rækju og flatfiski á svæðinu frá Nýfundna Iandi til Englands, en þar eru talin þriðju auðugustu fiskimið heims. Aflinn verður frystur og fluttur til Bandaríkjanna, Kanada og Mið- Ameríkuríkja. Búizt er við, að togarinn verði hálft annað ár að heiman, og eru þá meðtaldar ferðir til og frá Japan. Notuð verður bæði skuttogun og venjuleg hliðartogun. Atlantor flytur Atlantor, ■ útflutningsfyrirtæki Magnúsar Z. Sigurðssonar, er að flytja úr Aðalstræti 6 i Austur- stræti 0. Flytur fyrirtækið £ stærri húsakynni, sem það hefur haft brýna þörf fyrir. Flutningar standa a.m.k. yfir í dag.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.