Vísir


Vísir - 03.01.1963, Qupperneq 16

Vísir - 03.01.1963, Qupperneq 16
ÁFENGISKASSAR FINNAST ÍHELLI í gær gerði lögreglan í Reykja- vík Ieit í helli í Vífilsstaðahrauni að tilvísun skáta sem komið höfðu í heilinn rétt áður og fundið þar marga tóma kassa undan áfengi. Fóru fjórir lögreglumenn héðan úr bænum og gerðu leit í hellinum. Reyndist það rétt sem skátarnir höfðu hermt að þarna voru margir kassar undan áfengi, en voru allir tómir. Enginn veit hvernig stendur á kössunum á þessum stað, hvort þeim hefur verið stolið, eða hvað átt hefur að gera við þá, eða hvort áfengi hefur verið í þeim þegar þeir voru fluttir þangað. Hitt ligg- ur ljóst fyrir að þeir hafa tiltölu- lega nýlega verið fluttir í hellinn, því það er ekki ýkja langt síðan að í hann var komið og var þar þá ekkert að sjá. Hellir þessir er skammt frá Víf- ilsstöðum og er hið mesta völund- arhús. Þó er næsta erfitt að finna hann og til að komast inn í hann þarf að skríða. En þegar inn. úr göngunum kemur tekur við mikil hvelfing og fögur, um 30 metra löng, 20 metra breið og 2—4 metra há. Auk þess ganga einir tveir manngengir afhellar inn úr þessari aðalhvelfingu. í dag var gerður út leiðangur til þess að sækja kassana og voru þeir fluttir til Reykjavlkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru kassarnir 47 tals- ins undan 19 víntegundum og allir Frh. á bls. 5. Úthlutað úr rithöfu ndasjóði Ríkisútvarpsirts 31. desember er árlegur úthlut-1 isútvarpsins, og í þetta sinn var unardagur úr rithöfundasjóði Rík-1 úthlutunarupphæðinni skipt í 96 borgaríbúðum útbhitað Laust fyrir áramótin úthlutaði Reykjavíkurborg 96 íbúðum í þremur nýjum borgarhúsum við Áiftamýri. Upphaflega var gert ráð fyrir að úthiuta 64 íbúðum úr tveimur húsanna, en þegar til kom reyndist unnt að bæta þriðja húsinu við. Fjórða húsið, £ I. her skipasmíðatilboð allt austan frú Japan Tilboðin drífa að þessa| hjá Eimskipafélaginu, og sagði hann blaðinu þetta í sambandi við dagana, og þau koma jafn- vel allt austan frá Japan, en það tekur nokkrar vik- ur að átta sig á þeim endan Iega. Vísir átti í morgun stutt viðtal við Viggo Maack, skipaverkfræðing Jólofrés- fagnaður VÍSIS Jólatrésfagnaður fyrir þau börn, sem bera út Vísi verður haldinn f Breiðfirðingabúð kl. 3 á laugardaginn. Er öllum börn- unum boðið ókeypis til fagnaðar ins. Eru þau beðin að snúa sér til afgreiðslumanns blaðsins f Ingólfsstræti en hann deilir út aðgöngumiðum og veitir nánari upplýsingar. tilboð þau, sem félagið óskaði í smíði þriggja skipa, er ákveðið var á síðasta ári, að fyrirtækið léti smíða. Síðan hefir það gerzt, að félagið hefir fest kaup á dönsku skipi, Ketty Danielsen, sem væntan lega verður afhent um miðjan þenn an mánuð, svo að aðeins verður um smíði tveggja skipa að ræða. Eins og fyrr segir berast tilboðin langt að, eða alla leið frá Japan þau sem lengst eru komin, en auk þess hafa komið tilboð frá Júgó- slavíu, Spáni, Þýzkalandi, Hollandi, Belgíu, Svíþjóð og víðar. Sum er hægt að leggja til hliðar þegar, þar sem verðið er svo hátt, að þau koma ekki til greina, en lengri tíma tekur að vinna úr öðrum, því að gera þarf samanburð á verði, sjá hvað skipin kosta raunverulega, at- huga greiðsluskilmála vandlega og þar fram eftir götum. Annars eru þetta svo lítil skip á mælikvarða annarra þjóða, að sum- ar skipasmíðastöðvarnar treysta sér til að afhenda þrjú samtímis fyrir lok þessa árs, aðrar telja sig geta afhent þau á tveggja til fjög- urra mánaða tfmabili umhverfis ára mótin. Öll þessi atriði þarf að vega og meta vandlega, áður en endan- leg ákvörðun verður tekin um, hvaða tilboði skuli taka. þrennt, en styrkina hlutu Guð- mundur Daníelsson rithöfundur og ljóðskáldin Jón Óskar og Þorsteinn Jónsson frá Hamri. Heildarúthlut- unarupphæðin var að þessu sinni allmiklu hærri en nokkru sinni fyrr eða 45 þúsund krónur, svo að 15 þúsund hafa komið í hlut hvefs styrkþega fyrir sig. Formaður sjóðsstjórnar, dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, afhenti styrkinn og skýrði frá því jafnframt, að þetta væri í 7. skipti, sem úthlutað væri úr sjóðri- , um, en styrki hefðu hlotið alls 10 með 32 íbuðum er bygg.ngu, rithöfundar. Myndin er tekin, þegar dr. Kristján Eldjárn afhenti Jóni Óskari og Þorsteini frá Hamri styrki sína, en Guðmundur Daníels son gat ekki verið viðstaddur at- höfnina, sem fór fram í húsi Þjóð- minjasafnsins. en ekki er ákveðið hvenær því verður úthlutað. íbúðunum fylgdu rífleg lán, en þær hafa verið byggðar sem liður í útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis í borginni. Allar fjöl- skyldurnar voru ýmist í leigu- húsnæði borgarsjóðs, húsnæðis laust, úr herskálum eða öðru heilsuspillandi húsnæði. Hverri tveggja herbergja íbúð fylgdu 220 þúsund króna lán, og þriggja herbergja íbúðum 240 þúsund króna lán. Stærri íbúð- irnar eru 72 talsins en minni íbúðirnar 24. Stærð fjölskyldna voru frá þriggja til 8 manna fjölskyldum. Þrjátíu og tvær íbúðir eru þegar tilbúnar. 2550 drekstrar Bifreiðaárekstrar urðu um það bil 500 fleiri á síðastliðnu ári, held- ur en á árinu 1961. Endanlegar tölur eru að vísu ekki komnar fyrir árekstrafjöldann í ár, en búið er að bóka tæplega 2550 árekstra til áramóta. Árið 1961 voru þeir hins vegar 2057 að tölu og var þá algert metár hvað árekstrafjölda snertir. Halldór Pólsson búnaðarmólastjóri: .,Auka þarf ræktað laad um helmiag Blaðið hafði í morgun tal af hinum nýskipaða búnaðarmála- stjóra, Halldóri Pálssyni, sem tók við embætti nú um nýárið um framtíð landbúnaðarins. og spurði hvað liann vildi segja Fórust honum meðal annars þannig orð: „Hér hafa á undanförnum árum orðið mjög stórstígar breytingar i landbúnaðinum og þeim er langt frá því að vera lokið enn. Þær eru svo stórvægi- legar, að segja má að verið sé að endurnema landið. Nú er byggt úr miklu varanlegri efn- um en áður, ræktun er miklu meiri o. s. frv. „Þessar breytingar hófust snemma á öldinni, en fóru hægt fyrst í stað, en hafa fleygt fram á síðustu áratugum. Þó vantar enn, mikið á að til sé nóg ræktað Frh. á bls. 5. ► Lögreglunni í Kanada tókst í byrjun vikunnar að vinna á manni sem orðið hafði þrem lögreglu- mönnum að bana. Geðbilaður mað ur hafði ógnað skógarhöggsmanni með byssu og er 3 lögreglumenn voru kvaddir á vettvang, vann hann á þeim öllum. Áramótaspilakvöld Sjálfstæðisfélaganna Sjálfstæðisfélögin í Reykjavik formaður og varaformaður Sjálf halda áramótaspilakvöld sitt i stæðisflokksins flytja ávörp Sjálfstæðishúsinu og á Hótel munu verða ánægjuleg skemmti Borg í kvöld. atriði og loks glæsileg verðlaun Eins og venjulega er vandað fyrir sigur í félagsvistinni. Að til spilakvöldsins. Auk þess sem félagsvistinni Iokinni verður stig inn dans. ^wmrn—mm Fimmtudagur 3. janúar 1963

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.