Vísir - 21.01.1963, Síða 2

Vísir - 21.01.1963, Síða 2
2 VlSIR . Mánudagur 21. janúar 1963. . m \ 1 Jl \W*2l I . I | T=* ffn"! f/////Æ //////////á. M W/////Æ M Handknattleikur: FHOGFRÁMHÁFA TEKIÐ FOR YSTUNA / 7. DEILD Sama harkan og sagt er frá í frásögn um 2. deild- irleikina í blaðinu í dag, hélzt í leikjunum í 1. deild í gærkvöldi. FH vann KR með yfirburðum, 30:20. Þó varð dómarinn að vísa 6 mönnum af leikvelli um stundarsakir til að „kæla“ skap þeirra, en hinn leik- inn vann Fram ÍR með 36:27, en 4 mönnum var vísað út. FH tók þegar alla forystu í sln- ar hendur í leiknum gegn KR. — Snemma voru þeir komnir I 5:2, síðar í 10:4, 15:6, alltaf jókst markahlutfallið með sama hraða og í hálfleik var staðan 16:7 fyrir FH. 1 síðari hálfleik hélt KR heldur í við Hafnfirðingana og úrslit þess hálfleiks voru í sjálfu sér ekki ó- hagstæð, 14:13 fyrir FH, en úr- . ■ .»:V- .. slitin voru 30:20 fyrir FH, stærri sigur en fyrirfram hefði mátt gera ráð fyrir. FH lék nú sinn fyrsta leik í þessu móti, sem talizt getur góður og sýnir að með fleiri leikjum þeirra batnar liðið jafnframt. Pét- ur Antonsson átti nú allgóðan leik og fer vaxandi, Hjalti var mjög góður og varði ótrúleg skot, en Birgir og Einar komu bezt út úr leiknum og Örn Hallsteinsson á- gætlega. Ragnar Jónsson var ekki með og veikir það liðið til muna, en Ragnar mun meiddur á hand- legg og ekki talið ráðlegt að hann keppi þannig á sig kominn. KR-ingar náðu allgóðum síðari hálfleik, þegar FH var farið að slaka heldur á hröðu spili sínu. Karl var að venju mjög góður, en Reynir heldur óöruggur með grip og annað. Sigurður Óskarsson er greinilega með betri llnuspilurum sem við eigum og Guðjón mark- vörður sýnir að lengi lifir I göml- um glæðum, oft varði hann mjög vel. Hannes Þ. Sigurðsson dæmdi og gerði það ágætlega. Síðari leikurinn I gærkvöldi var leikur íslandsmeistaranna Fram og iR. Lengi vel var leikurinn jafn og skemmtilegur. IR leiddi þar til I 5:4 að Guðjón færði Fram foryst- una, sem ÍR tók aftur með skoti Gunnlaugs 7:6 fyrir ÍR. Hilmar aldursforseti Fram tók aftur for- ystuna I 9:8 og eftir það var ekki um annað að ræða en sigur Fram. Að vlsu jafnaði Gunnlaugur 10:10, en samt virtist sigur Fram augljós, einkum vegna þess að vörn ÍR fór að sýna þreytumerki og áður en varði var iR I 13:10 og síðar I 17:12 en I hálfleik var staðan 19:15. Gabortil Þróttar sem þjólfari í knatfspyrnu „Við erum staðráðnir í að komast I 1. deild í sumar“, sagði formaður Þróttar, Jón Ás- geirsson í viðtali við okkur í morgun. „Við höfum ágætis efnivið innan meistaraflokksins og nú höfum við ráðið hinn á- gæta ungverska þjálfara Sim- onyi Gabor til ojíkar og vænt- um mikils af starfi hans. Ég horfði á hann æfa strékana í gær og leizt mjög vel á. Hann virðist skilja knattspyrnuna og knattspyrnumennina til hlltar, enda háskólamenntaður þjálfari og að auki alvanur knattspyrnu þjálfun heima fyrir og náði góð um árangri með llð það sem hann þjálfaði síðast, en það fór úr 16. I 6. sæti. Við vonum að margir muni verða til þess að notfæra sér kennslu hans og bjóðum nýjum meðlimum að koma og vera með, en við æf- um í KR-húsinu á sunnudögum kl. 4,20 og fimmtudögum kl. 10, 10“ sagði Jón að lokum. Síðari hálfleikurinn var ekki spennandi né sérlega vel leikinn. Allsæmilegur handknattleikur, en ekkert meira. Of mikið „clinch“, sem virðist vera að verða tízku- fyrirbrigði á Hálogalandi og bakar erfiðleika fyrir dómarana. Fram jók við forskot sitt og enginn var lengur I vafa um hvort liðið var betra, enda sýnir lokatalan 36:27 talsverða yfirburði yfir annars batnandi lið ÍR. Beztu menn Fram voru þeir Sig- urður Einarsson, sem gerði margt mjög fallegt á línunni, Guðjón Jónsson og Ingólfur sem skoraði manna mest þetta kvöld. Hjá ÍR bar mest á Gunnlaugi Hjáimars- syni, en Matthías og Hermann eru einnig mjög góðir, og markvörður- inn og lyftingajakinn Finnur Karls son er lunkinn I markinu. Valur Benediktsson dæmdi og fórst það allvel. Ruddaskapur og fúlmennska sat í hásætinu í 2. deild — en handknotfleikur lát- inn sigla lönd og leið inmDnyTíi uialo s ■ UimDnyr Þrír leikir fóriffrám'í 2. deild um helgina, þar af tveir sem verður að telja með því ljótasta, ruddaleg asta og viðbjóðslegasta, er íslenzkur handknattleikur hefur boðið upp á undan- farin ár, en það voru leik- ir Vals og Hauka og Ár- manns og Akurnesinga, en bæði Reykjavíkurliðin eiga sökina í þessum til- fellum. Alvarleg yfirsjón var það og að láta Hafn- mikið „inn í“ Ármenninga, sem greinilega voru betri aðilinn, en þetta þétta spil Akurnesinga setti taugakerfi Ármenninga algerlega úr skorðum og hvað eftir annað mátti sjá hnefa Ármenninga á lofti og sömuleiðis sást til Ármenninga sparka I Akurnesinga. Verður þetta fyrst og fremst skrifað á syndareg- istur dómarans, Óskars Einarsson- ar, sem ekki tók nándar nærri nógu hart á grófum brotum, en vlsaði hins vegar 4 leikmönnum út af fyr- ir mun minni sakir. Leikgangurinn I seinni hálfleik var annars þannig, að Akurnesing- ar áttu greiða leið að marki Ár- manns og brátt var staðan orðin 19:16. Úthald Ármenninga reyndist Hka mun lakara löku úthaldi Akur- nesinga. Akurnesingar voru ó- , ! heppnir með vítaköst og tel ég að ifirðingana leika tvo leiki ■ þau hafi komið I veg fyrir sigur ;meS aðeins 20 tíma milli-1 “ S, ! bili, enda var þreyta greini I Armenningum tókst að halda sigri, !, , ,__.___ - . . j 31:28 og má þakka Herði Kristins- leg í llði þeirra í seinni syni mest fyrir að það tókst. leiknum. Ármannslið þetta hefur nú verið talið „efnilegt" í nokkur ár, leikur góðan handknattleik, hefur ágæta „taktík“, en vantar allt sem heitir „temperament", rétt keppnisskap. Andstæðingar eru farnir að stunda það að æsa liðsmenn upp þannig að þeir fari úr jafnvægi. Þetta er galli, sem hægt er að laga og því fyrr sem Ármannsliðið missir þessa geðillsku, þvl betra. Kjartan Sigurðsson, ÍA, skorar I leik ÍA og Ármanns I 2. deild. Ármenningar létu hina æsa sig upp 1 hin verstu óhæfuverk I leik sínum gegn Akranesi á laugardag- inn og sýndu þeir einhvern Ijótasta leik, sem íslenzkt lið hefur sýnt að Hálogalandi um langt skeið. Leik- menn eltu hvorn annan og spörk- uðu, kýldu og tuskuðust, — en við- brögð dómarans voru engin, en mönnum 'ft vísað út af fyrir litlar -em engai sakir. Leikurinn hófst með nokkrum yf irburðum Ármenninga 1 spili og mörkum og komust þeir I 4:1 og 7:2, en seinni hluta fyrri hálfleiks komust Akurnesingar I 8:11, en I hálfleik tókst Ármenningum að hafa 5 mörk yfir, 17:12. Síðari hálf- leikinn keyrði „hazarinn um þver- bak og logaði allt í úlfúð og hefni- girni. Akurnesingar léku nokkuð Beztu menn liðanna voru Lúðvík Lúðvíksson og Hörður Kristinsson hjá Ármanni, en Kjártan Sigurðs- son, Björgvin Hjaltason og Hall- grímur Þorsteinsson, sem áður lék með ÍR en er nú fluttur á Akranes og er góður liðsstyrkur þó ekki virðist hann I þjálfun. Haukar léku fyrsta leik sinn þetta laugardagskvöld og unnu léttan sig ur með 27 marka yfirburðum yfir Breiðablik, 44:17. Haukar virðast mjög góðir og ekki ólíklegt að þeir vinni 2. deild Framhald á bls. 10. Staðan í deildunum ★ FH—KR 30:20 ★ FRAM—ÍR 36:27 Staðan í 1. deild er nú þessi: FH 4 3 0 1 6 117:87 Fram 4 3 0 1 6 115:92 Víkingur 3 2 1 0 5 65:57 KR 4 2 0 2 4 102:99 ÍR 4 0 1 3 1 104:123 Þróttur 3 0 0 3 0 53:98 Markhæstu menn: Ingólfur Óskarsson, Fram, 40 m. Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, 35 Karl Jóhannsson, KR, 33 Reynir Jóhannsson, KR, 30 Hermann Samúelsson, ÍR, 23 Birgir Björnsson, FH, 22 Ragnar Jónsson, FH, 21 Örn Hallsteinsson, FH, 18 Ólafur Adolfsson, KR, 16 Guðjón Jónsson, Fram, 16 Matthías Ásgeirsson, ÍR, 16. * ★ Ármann—Akranes 31:28 ★ Haukar — Breiðablik 42:17 ÍK Valur—Haukar 26:18 Staðan í 2. deild er nú þessi: Valur Ármann Haukar ÍA ÍBK Breiðablik 2 2 0 0 4 59:43 1 1 0 0 2 31:28 2 1 0 1 2 60:43 2 1 0 1 2 60:58 1 0 0 1 0 27:32 2 0 0 2 0 42:75 Markhæstir I 2. deild: Bergur Guðnason, Val, 19 m. ViSar Símonarson, Haukar, 19 Sigurður Dagsson, Val, 18 Björgvin Hjaltason, ÍA, 17 Kjartan Sigurðsson, ÍA, 14 Ásgeir Magnússon, Haukar, 14 Reynir Jónsson, Breiðabllk, 13 Karl Hermannsson, ÍBK, 12 Lúðvík Lúðvíksson, Á, 12.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.