Vísir


Vísir - 22.01.1963, Qupperneq 3

Vísir - 22.01.1963, Qupperneq 3
VISIR . Þriðjudagur 22. janúar 1963. 3 GINA LJÓSHÆRÐ OG UNG Á NÝ Gina Lollobrigida ítalska fegurðardísin og kvikmyndaleikonan er nú að vísu tekin að eld- ast nokkuð. Slíkar þokkagyðjur eru ófúsar að gefa úlpp réttan aldur sinn, en ekki er ólíklegt að Gina sé farin að nálg ast fertugsaldurinn. Þrátt fyrir það skeður það nú, að Gina tekur að sér kvik- myndahlutverk þar sem hún leikur kornunga, iífsglaða dans- mær og eru myndirnar i Mynd- sjánni í dag teknar úr þessari kvikmynd. Þar sést hvernig til hefur tekizt. Gina birtist hér sem stelpugopi, glæsileg og full af einhverium tryilingi og skemmtifíkn. ★ Kvikmyndin kallast „Fegurð- ardísin frá Ippolito“. Gina lif- ir sig inn í hlutverkið og tækrii- dcildin hefur einnig gert sitt, því að hér birtist Gina ljóshærð og er þó að eðli til kolsvört að háralit. ★ Þeir sem kunnugir eru í kvik myndaheiminum segja að viss ástæða sé til þess hve Gina Lollobrigida er nú athafnasöni í kvikmyndum, þar sem hver glæsikvikmyndin á fætur ann- arri kemur nú með henni í aðal hlutverki. Bak við þetta er á- kveðin metnaðargirni. Hún var fyrir nokkrum árum viður- kennd frægasta leikkona Ítalíu, en síðan kom Soffía Loren upp á stjörnuhimininn og Gina átti á meðan í nokkrum erfiðieik- um, varð að flytja tll Kanada með eiginmanni sínum Mirko Skofic til að sleppa við hán skatta. ★ Gina er mjög metnaðargjörn og hjá því hefur ekki farið, að hún hefur mjög fundiö til þess að Sofffa hefur skyggt á hana að undanförnu. Nú ætlar hún sér með þessu nýja hlutverki að sýna að hún sé Soffíu frcmri. Þess végna leggur hún sig alla fram. Ef þetta misteks' er talið líklegt að Gina hætti aiveg kvikmyndaleik og setjist í helgan stein sem rík og mik- ilsvirt læknisfrú, en eiginmaður hennar er starfandi læknir. .

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.