Vísir - 22.01.1963, Qupperneq 16
GuOmundur Guðjónsson söngv-
ari heflr verið boðið að syngja
tenórhlutverk í Butterfiy eftir
Puccini við óperuna í Árósum í
vetur.
Það er hlutverk Binkerton, sem
Guðmundi hefur verið boðið að
syngja, en óperan verður færð upp
um mánaðarmótin febrúar—marz.
Guðmundi hefur þekkzt boðið
og fer hann utan næstkomandi
mánudag. Hann verður fyrst um
sinn við æfingar í Khöfn áður en
hann fer til Árósa.
f gærkvöldi var lýst í útvarp-
inu eftir konu og bami af Akra-
nesi, þar eð farið var að óttast
um þau. Samkvæmt frásögn
fréttaritara blaðsins á Akranesi
mun konan hafa farið að heim-
an og tekið barnið með sér upp
úr hádeginu í gær, en þegar
hún kom ekki heim fyrir kvöld-
mat var farið að hringja til
skyldmenna og vina og spyrj-
ast fyrir um hana, en hennar
hafði hvergi orðið vart. Var þá
tekið að óttast um konuna og
barnið og lýst eftir þeim í út-
varpinu í gærkvöldi. Um svipað
leyti kom til orða á Akranesi
að hefja skipulagða leit að þeim,
en þá kom konan heim með
barnið, hafði heyrt orðsending-
una í útvarpinu.
Konan hafði farið í heimsókn
til einhverrar kunningjakonu
sinnar og ekki athugað hvað
tímanum leið. Fréttaritari blaðs-
ins á Akranesi kvaðst hafa
heyrt að þær hefðu eitthvað ver
ið að spá f spil að gamni sfnu
og tók sérstaklega fram, að eng
in óregla hefði verið með í spil-
inu, enda væri hér um reglu-
fólk að ræða.
Smnlendingar segja
Margt hefur þegar verið gert,
rætt og ritað í sambandi við endur
reisn Skálholtsstaðar, hins forna
andlega höfuðbóls Sunnlendinga,
en héraðsmenn eigi ávallt tilkvadd
ir um tilhögun og takmark þeirrar
uppbyggingar, eins og gengur og
gerist. Sunnlendingum þykir þó
sem þeir geti eigi látið þetta stór-
mál vera þjóðmál eitt, heldur beri
héraðsmönnum réttur og skylda til
að leggja sitt af mörkum og segja
sitt orð, enda verði Skálholt svo
bezt tengt byggðarlögunum á Suð-
urlandi að nýju og endurreisnin
3ar í rökréttu, sögulegu samhengi.
I samræmi við þessi sjónarmið
hefur komið upp Skálholtshreyf-
ing á Suðurlandi og munu áhuga-
menn um Skálholt koma saman
þar til fundar n.k. föstudag, 25.
þessa mánaðar, til þess að ræða
óskir og viðhorf Sunnlendinga til
hins forna höfuðbóls síns og leit-
ast við að samræma þau viðhorf
sem bezt. Það er ekkert launungar-
mál að Sunnlendingar vilja ekki
Þrjú slys — ftrír
bílar skemmast
sætta sig við minna en biskup í
Skálholt.
Þrír leiðtogar kirkjunnar á Suð-
urlandi, héraðsprófastur Árnesinga
séra Gunnar Jóhannsson á Skarði,
sóknarpresturinn f Skálholti, séra
Guðmundur Óli Ólafsson á Torfa-
stöðum, og séra Sigurður Pálsson
á Selfossi, hafa forgöngu um að
rita Skálholtsáhugamönnum f hér-
aði bréf og boða þar til fyrrnefnds
l fundar. Þingmönnum og sýslu-
í nótt sprakk vatnsæð í götu
nálægt hringtorginu við Þjóð-
minjasafnið (sem er til vinstri á
myndinni) og varð af óhemju-
legur vatnsflaumur á torginu
sem sézt glögglega ef litið er á
stígvélaða manninn á myndinni,
og var flaumurinn þó tekinn að
sjatna er myndin var tekin. Bíl-
ar, sem óku þarna um og áttuðu
sig ekki á dýpt vatnsins, drápu
á sér og þegar bílstjórarnir
stigu út úr þeim stóðu þeir í
vatni upp í mið læri.
mönnum Sunnlendinga er sérstak-
lega boðið á þennan fund, svo og
ritstjórum blaðanna, sem gefin eru
út á Selfossi, Suðurlands og Þjóð-
ólfs.
Eflaust verður fylgzt með þessu
máli af miklum áhuga, ekki sízt
á Suðurlandi.
Nokkur smávegis umferðaróhöpp
urðu í Reykjavík í gær.
Meðal annars varð sex ára dreng
; ur fyrir bfl um áttaleytið f gær-
; kvöldi á gatnamótum Lokastfgs og
j Baldursgötu. Drengurinn hlaut
! skurð á hnakka og vör og auk þess
Brenndist
á höndum
1 gærkveldi brenndist stúlka á
höndum við það að eldur kviknaði
f ether, sem hún var með.
Slys þetta varð á Skúlagötu 4,
en þar var stúlka að vinna nieð
ether, hún missti hann niður, en
um leið kviknaði f honum og stúlk
an brenndist við það á höndum.
Sjúkrabifreið var fengin til að
flytja stúlkuna í Slysavarðstofuna.
kúlu á ennið.
Annar drengur hljóp á bíl á
Amtmannsstíg rétt eftir hádegið
og skrámaðist á fæti. Báðir dreng-
irnir voru fluttir í slysavarðstof-
una til aðgerðar.
Ungur piltur, sem var á skelli-
nöðru á Álfhólsvegi í gærkvöldi,
varð fyrir bifreið og meiddist eitt-
hvað, Hann var einnig fluttur >
slysavarðstofuna.
Þá urðu þrjár bifreiðir fyrir
meiri eða minni skemmdum í gær.
Sú þeirra, sem mest skemmdist,
lenti á allmikilli ferð utan á hús-
inu nr. 16 við Barónsstíg. Ástæðan
var sú, að hemlar bílsins höfðu bil-
að og rann bíllinn á húsið. Húsið
slapp að mestu við skemmdir, en
bíllinn skenundist þeim mun meira
Annar bíll skemmdist niður við
höfn við það að festar frá togaran-
um Hallveigu Fróðadóttur slógust
utan í hann. Ekki veit blaðið hve
miklar þær skemmdir urðu.
ÆGIR TIL SlLDARLEITAR
Varðskipið Ægir, og með því
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur, mun leggja upp í sjórann-
sókna- og síldarleitarleiðangur
kl. 2 í dag, ef ekki er útlit fyrir
mjög slæmt veður. Hefur Fiski-
deildin fengið skipið til afnota
í mánuð. Blaðið hafði tal af
Jakobi í morgun og sagði hann
svo frá:
— Við byrjum á sjórannsókn
um frá Reykjanesi að Vest-
mannaeyjum. Eru það mælingar
á hita og seltu sjávarins, með
sérstöku tilliti til hrygningar-
stöðva á vetrarvertíð. Þetta
mun taka 2-3 daga, ef veður
/
leyfir.
— Að öðru leyti er aðalverk-
efni okkar að fylgjast með
göngu síldarinnar. Það hefur
verið einna erfiðast um þetta
leyti. Það er nóg síld í sjónum.
Það er bara að finna út hvar
hún er. Það er misjafnt frá ári
til árs, hvenær hún gengur
austur með landi og hvaða hluti
hennar það er. Bátarnir miða
sig fyrst og fremst við það að
veiða hatia frá höfnum við Faxa
flóa, en ekki öðrum höfnum
landsins, og það er þetta sem
hefur gert eyðurnar I veiðina.
— Það er ekki enn ljóst hvar
sumargotssíldin heldur sig í
febrúar og marz, enda er stutt
síðan að farið var að fylgjast
með göngu síldarinnar að vetr-
arlagi. I fyrra voru slæm veður
um þetta leyti og varð því ár-
angur af rannsóknunum minni-
enefni stóðu til. í hittifyrra
var fyrsta árið, sem fylgst var
með göngu síldar að vetrinum.
— Seinni hluti febrúar og
fyrri hluti marz hefur reynzt
einna daufasti síldveiðitlminn I
fyrra og hittifyrra. Það er ekk-
ert öruggt um hvernig þetta
verður í ár og ætlunin með þess
ari ferð, að athuga þetta nánar.
Samkvæmt lögreglusamþykkt
Reykjavíkur mun vera bannað
að bera nokkurn þann áburð
á garða eða aðrar landeignir I
bænum, sem vond lykt stafaði
af. Það kom því nokkuð flatt
uppá fólk sem býr við Miklu-
braut, þesgar hinum lyktar-
versta af öllum illa lyktandi
áburði, skarna, var dreift eftir
graslengju þeirri sem skilur
Miklubrautina í tvær akreinar,
og einnig á „eyjamar".
Leggur af þessu daun mikinn
fyrir vit íbúa, og hefir að sögn
rænt nokkra mektarmenn,
matarlystinni. Er að vonum
nokkur óánægja út af jarðar-
bótum þessum.