Vísir - 08.02.1963, Page 3

Vísir - 08.02.1963, Page 3
VÍSIR . Föstudagur 8. febrúar 1963. Xr. 40 BROT jT A 40 MÍN- ÚTUM t tiléfhi hinna tíðu Og miklu slysa sem hafa orðið í umferð- íj inni upp á síðkastið brugðu ijósmyndari og blaðamaður Vísis sér i smáferð um bæinn með einum kunnasta ökukenn- ara Reykjavíkur. Var ætlunin að athuga hversu mörg brot á umferðarlögunum við yrðum varir við og þá einkum í sam- bandi við, hvemig menn leggja bílum. Eftir rúmlega þriggja stundarfjórðunga akstur voru þau orðin 41. Það er athyglisvert að minni- hluti ökumanna í Reykjavík virðist kunna að leggja bílnum sinum rétt. Hvarvetna í miðbænum má sjá langar raðir af bílum sem er bandvitlaust lagt. Stórir vöru- bilar em uppá gangstéttum, jafnvel 2-3 saman. Leigubílstjór ar hika ekki við að stöðva bíia sfna vinstra megin í Banka- éiiæti mcðan þeir eru að tala við kunningja sína. Og menn eru jafnvel svo djarf ir að Ieggja bílum sínum undir skilti sem merkt er: Bifreiða- stöður bannaðar, og úti í miðju Aðaistræti. Einnig er fróðiegt að sjá hvernig sumir ökumenn taka hægri beygjur, dettur manni einna helzt í hug að það sé búið að setja ný umferðarlög. Þeir þræða vinstri kantinn al- gjörlega þar til að horninu kem- um, en þá svínbeygja þeir. — Stefnuljós eru hjá mörgum al- gjörlega óþekkt fyrirbrigði, og virðist litið á þau sem megnan óþarfa, eins og svo marga aðra hluta umferðarlöggjafarinnar. Umferðarmenning Reykjavíkur heild virðist vera á ákaflega lágu stigi. MYNDIR: Éfsta myndin er tjeidn. á horninu á Vatnsstig og Lauga- vegi. Einni mfnútu seinna var stóri sendiferðabfllinn, sem sést á myndinni kominn upp á gang- stéttina fyrir framan hjá Mar- teini, og kona sem þar var á gangi varð að taka til fótanna. Miðmyndin: Við héldum nú að þessl væri bilaður, en skömmu seinna kom bilstjórinn, snaraði sér uppí og keyrði burt (Þetta er Aðalstræti). Neðst: Það má þakka fyrir meðan ekki er keyrt yfir skiltin. Hinu meg- in má sjá tvo vörubíla upp á gangstétt, sá þriðji kom fljót- lega (Kirkjustræti). >f •

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.