Vísir - 26.03.1963, Síða 3
/ í S I R . Þriðjudagur 26. marz 1963,
3
segja, að kynþáttafordómar eru
þvf miður algengnir enn í dag
og smánarblettur á mannkyn-
inu öllu.
Myndin að neðan er tekin á
torginu í Andorra, sem myndar
umgerð um allt verkið. Leikar-
ar eru, taldir frá vinstri Ámi
Tryggvason, sem leikur fábjána,
Andorra
Bessi Bjarnason, scm leikur
hermanninn og Gunnar Eyjólfs-
son í hlutverki Andra.
Að ofan:
Hinir svörtu hafa gert innrás
í Andorra og nú er leitað ,að
Gyðingum. Hermaðurinn (Bessi)í
hefur gengið í lið með hinum
svörtu og vísar á Andra.
Andri er hér tekinn frá Barblín
systur sinni, sem Ieikin er af
Kristbjörgu Itjeld. Héðan f frá
verður Andra ekki bjargað frá
örlögum sínum, og vitanlega
em allir samsekir í dauða hans,
þótt hver og einn þvoi hcndur
sínar.
A morgun frumsýnir Þjóð-
leikhúsið leikritið Andorra eft-
ir Max Frisch, en það hefur
einmitt vakið hvað mesta at-
hygli í Evrópu á seinustu
tveimur árum. Andorra er nafn
á landi, sem er alger hugar-
smfð höfundarins, og má ekki
rugla þvf saman við smáriki
með sama nafni. Leikritið fjall-
ar um kynþáttafordóma, rekur
sögu ungs manns, sem sagður
er Gyðingur, og af þeim sökum
hrekja ibúar Andorra hann
hægt og bítandi út í dauðann,
án þess þó að nokkur þeirra
telji sig sekan. Þeir voru bara
áhorfendur, segja þeir, sökin er
ekki mín. Presturinn er sá eini,
sem finnur til sektar. Enginn
vafi er á því, að Andorra er
eitthvert merkasta leikhúsverk,
sem samið hefur verið frá
stríðslokum og á erindi til allra
manna, enda þótt þeir séu ekki
eða hafi verið í beinum tengsl-
um við kynþáttaofsóknir. En
það er kunnara en frá þurfi að
I
■/
Gyðingadrengurinn Andri
reynir að gerast smiður, en
meistarinn er honum andsnú-
inn, af þvf hann vill ekki hafa
Gyðinga f sinni þjónustu. Þvi
er Andri hrakinn þaðan f burtu
fyrir engar sakir. Það er aðeins
einn áfangi á leið hans til glöt-
unar. Gunnar Eyjólfsson og
Gfsli Alfreðsson.
IIIÉi