Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 8
mnw
E3
Otgefandi: Blaðaútgáfan VfSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
I lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.f.
Heimta nýjan skatt
Þegar framsóknarmenn eru í stjórnarandstöðu,
flytja þeir hvert frumvarpið af öðru um stórkostlegar
fjárveitingar, m. a. til sveitanna. Þegar þeir eru í stjórn,
gleyma þeir hins vegar jafnskjótt þessum hugsjóna-
málum sínum og sitja aðgerðarlausir.
Gott dæmi um þetta er sýndarfrumvarp þeirra á
þessu þingi um jafnvægi í byggð landsins. Að tilhlut-
an stjórnarflokkanna hafa verið sett lög um Atvinnu-
bótasjóð og hann er þegar tekinn til starfa. Hlutverk
hans er einmitt það sama og fólst í frumvarpi fram-
sóknarmanna, að efla atvinnu úti um land þar sem
þörf er á.
Og ekki nóg með það. Framsóknarmenn klifa mjög
á því að fi.árlög hafi hækkað undir núverandi stjórn
og telja slíka hækkun óþarfa. En þétta frumvarp þeirra
gerir ráð fyrir nýjum skatti á landsfólkið að upphæð
32 milljónir króna á þessu eina ári! Og svo þykjast
þessir menn hafa efni á því að ásaka ríkisstjórnina fyr-
ir of háar skattaálögur. í fáum málum hefur ábyrgðar-
leysi þessa einangraða og steinrunna flokks komið
jafn vel í ljós sem í þessum sýndarleik.
Hús Eysteins riðar
Næstum daglega rís foringi glundroðaliðsins, Ey-
steinn Jónsson, úr sæti sínu á alþingi, gengur í ræðu-
stól, ber saman hnefunum og hrópar: Byggingar eru
stöðvaðar, byggingar eru stöðvaðar!
Þingmenn ræða það mjög í sínum hóp að oft hafi
Eysteinn verið æstur og miður sín á þingi, en aldrei
hafi hann verið jafn miður sín og ofsafenginn sem ein-
mitt þessar vikurnar. Skýringin mun liggja í því, að
-írá sæti hans yfir í ráðherrastólana eru ekki nema fáir
metrar. En Eysteinn veit að þá stuttu vegalengd mun
hann ekki komast næstu fjögur árin og því ber svo
mjög á bræði hans. Enn bíður hans vist í hinni póli-
tísku eyðimörk, sem hann hefur nú gist fjögur ár.
Eysteinn þarf ekki annað en Ieigja sér bifreið einn
dag í góðu veðri og aka um úthverfi Reykjavíkur til
þess að skilja að þau orð sem hann hrópar um bygg-
ingastöðvanir í þingsölunum standast ekki próf sann-
ieikans. Eins og eitt stærsta byggingavörufyrirtæki
þjóðarinnar skýrði frá hér í blaðinu í gær, hefur sjald-
an verið meiri byggingaráhugi né fleiri verið að fara
af stað með byggingar. Og það hefur leitt til þess að
timbur er nú víðast hvar gengið til þurrðar í landinu.
Ef Eysteinn vildi hafa fyrir því að hringja í nokkur
byggingarfyrirtæki, kæmist hann að þessu sama. Og
ef hann spyrðist fyrir um lóðaumsóknir í höfuðborginni
bæjum, myndi hann fá sömu svör. íslendingar
byggja af kappi í blómlegu landi.
En að einu leyti hefur Eysteinn rétt fyrir sér. Fram-
kvæmdir eru stöðvaðar við hús framsóknarflokksins.
Það rís ekki hærra en orðið er.
V í S I R . Þriðjudagur 26. marz 1963.
Uppdrátturinn og krossinn sýna hvar uppreisnin hefur brotizt út.
fopreisnarástand í
i
Uppreisn hefur nú brotizt út i
suðurhluta Persíu. Yfirvöldin
reyna að gera sem minnst úr
þessum atburðum og vilja yfir-
höfuð sem minnst frá þeim
segja. Fréttamenn í Persíu hafa
þó komizt að þvf, að hér sé um
alvarlega uppreisn að ræða og
það sem verra er, mikil hætta er
talin á því að uppreisnin breið-
ist út og þá gæti svo farið að
alit fuðraði upp. Þjóðfélagsá-
standið í Persíu er nú svo
slæmt, að Iíkja má því við púð-
urtunnu. Þarf ekki mikið til að
allsherjaruppreisn verði í land-
inu.
Það er vitað að nokkur þús-
und manna i ættflokkum í fjall-
lendi Suður-Persíu standa fyrir
uppreisninni. Hún hófst 1. marz
með því að skyndileg árás var
gerð á varðstöð ríkislögreglunn-
ar í héraðinu Kazerun suður við
Persaflóa. Árásin kom svo á
óvart, að 12 lögreglumenn, sem
gættu varðstöðvarinnar, gátu
sér enga björg veitt og voru
drepnir, en lögreglustöðin þurrk
uð út.
+
Fjórar persneskar herdeildir
voru í þessu héraði og var þeim
þegar skipað að bæla uppreisn-
ina niður og sækja til stöðva
ættflokksins. En þær reyndust
þess ekki megnugar. Síðan hef-
ur stjórnin sent þrjár herdeildir
til viðbótar til héraðsins, meðal
þeirra sveit fallhlffarhermanna.
Þrátt fyrir það hafa herforingj-
arnir orðið að tilkynna nú um
miðjan mánuðinn, að ástandið
hafi versnað. Hefur keisarinn nú
sent helzta hermálaráðunaut
sinn til suðurhéraðanna til að
kynna sér ástandið og hefur
hann meðferðis fyrirmæli um
að bæla uppreisnina niður, hvað
sem það kostar.
Aðstaða Reza Pahlevi keisara
hefur versnað síðustu vikur fyr
ir það að áhrif Nassers Egypta-
landsforseta hafa aukizt mjög.
Með skömmu millibili hafa bylt
ingar verið gerðar 1
tveimur nágrannarlkjum, írak
og Sýrlandi og i báðum lönd-
unum voru fylgismenn Nassers
forseta að verki. Þó Persía til-
heyri ekki Arabaríkjunum, er
það land Múhameðstrúarmanna
og hugmyndir Nas.ers hafa haft
mikil áhrif sérstaklega meðal
persneskra stúdenta.
Og þjóðfélagsástandið í Persíu
hefur verið þannig, að það er
almælt, að keisarinn og stjórn
hans hafi hangið á bláþræði síð
ustu árin. Fátækt er mjög mikil
Reza Pahlevi keisari af Persíu.
og almenn og nægar ástæður
fyrir þjóðfélagslegri ólgu og óá-
nægju, sem getur hvenær sem
er blossað upp f styrjöld, ekki
sízt ef erlendir aðiljar blása að
kolunum.
Keisarinn er talinn framfara-
maður og hefur viljað flýta eins
og mögulegt er ýmis konar fé-
lagslegum umbótum, þó ekki
væri til annars en að forðast
þau félagslegu átök, sem fram-
undan eru, en í umbótarviðleitni
sinni hefur hann aftur mætt
harðri mótspyrnu íhaldsaflanna.
Uppreisnin, sem nú hefur brot
izt út, virðist einmitt vera af-
leiðing af umbótaviðleitni keis-
arans. Þó hún stefni vissuleg§
f rétta átt, kom hún af stað
deilum og illindum.
Stjómin ákvað að skipta stór-
jarðeignum upp milli bændanna.
Sumir jarðeigendur áttu áður
heil hémð og var ákveðið til
þess að sætta þá við breyting-
una, að leyfa þeim yfirleitt að
eiga áfram Iandsvæði eins
þorps. — Þetta hefur valdið
misklíð. Þeir bændur sem fá
iarðnæði þykjast hafa himin
höndum tekið, en hinir sem búa
áfram f þeim þorpum sem verða
eign stórjarðeigenda finnst þeir
hafa ratað f hinar mestu ógöng-
ur og er uppreisnarhugur í
þeim.
Aftur sárnar stórjarðeig^nd-
um mjög hvernig farið hefur
verið með þá og er einnig upp-
reisnarhugur f þeim gegn yfir-
völdunum. Vegna þessa hefur
vfða verið skálmöld í landinu.
Allmörg dæmi eru þess, að al-
menningur hefur risið upp gegn
jarðeigendum, fangað þá og mis
þyrmt. Nokkrir hafa verið drepn
ir í uppreisn múgsins og aðför
hefur verið gerð að þeim, hallir
þeirra brenndar.
í sumum héruðunum hafa jarð
eigendumir verið forustumenn
eða höfðingjar ættflokka, eins
og bedúínahöfðingjamir í Ara-
bíu. Þeir hafa mjög fjölmennt
skyldulið umhverfis sig og eiga
fjölda kvenna f kvennabúrum.
Þeir þurfa mikils við til uppi-
halds sinnar stóru fjölskyldu og
sjá jafnvel hættu á upplausn
ættflokkaskipulagsins, ef jarð-
eignunum er skipt. Því hafa
þeir sérstaldega veitt breyting-
unum mikla mótspymu. Upp-
reisnin hafa aðallega blossað
upp í héruðunum Kazerun og
Fars, en það er landsvæði um
það bil tvöfalt stærra en Island.
Framhald á bls. 10.
Y'n Y j ■' (YY* '■ i' V:
},\ i r.i.ijaKh/'K*;
'} i
T,"