Vísir


Vísir - 26.03.1963, Qupperneq 10

Vísir - 26.03.1963, Qupperneq 10
10 V I S IR . Þriðjudagur 26. marz 1963. TUNGL Framhald af bls. 7. kvæmlega líkamlegt ástand geim faranna og - síðan geta þeir fylgzt með hjartslætti þeirra og andardrætti, þó þeir verði komn ir hundruð þúsunda kílómetra út í geiminn. Stjörnufræðingar rnunu rannsaka og fylgjast með sólgosum, sem geta orðið geim- förunum hættuleg vegna raf- eindanna, sem þau senda út um geiminn, o. s. frv. ÍÚ ”|7n grundvöllur allra þessara athugana er risavaxin eld- flaug, sem verður á hæð við 42 hæða skýjakljúf, vegur 2500 tonn og á að hafa eldhreyfla með 3500 tonna þrýstikrafti. Sem fyrr segir, er nú þegar farið að skjóta upp í tilrauna- skyni einstökum stigum Saturn eldflaugarinnar. Eru þau tengd öðrum eldflaugum og eF ætl- unin að fá þannig ýmsar sam- setningar. Áður en Iýkur, er áætlað að smíða margar mismunandi teg- undir Saturn flauga og verður Iokategundin, sem mun kallast Saturn C-5, tilbúin að fara í jómfrúferðina 1965. Hún verður margfalt stærri og öflugri en nokkur eldflaug, sem til er í dag. Hún verður risi jafnvel f sam- anburði við fyrstu Saturn eld- fláugina, sem nú er til og kall- ast C-l. Caturn C-1 er um 50 metra há ^ og hefur 6Ö0 tonna þrýsti- kraft, en það er fjórtán sinnum meiri kraftur en sterkasta her- flaug Vesturveldanna, Atlas hef ur og um 15% meiri kraft en aflmesta rússneska eldflaugin hefur. Sterkasta rússneska eld- flaugin, sem vitað er um og bar þá geimfarana Nikolajev og Popovich á loft, hefur 600 tonna þrýstikraft. Þegar tilraununum með Satum C-1 lýkur og hægt er að taka hana f notkun til kerfisbund- inna geimrannsókna sfðar á þessu ári, eiga Bandaríkjamenn þegar öflugustu geimflaug heimsins, nema Rússar séu þá einnig að ljúka við smfði ein- hverrar enn kraftmeiri eldflaug ar. Nú þegar er farið að skjóta Saturn C-1 á loft f tilrauna- skyni. Á næsta ári verður hún notuð til að skjóta þriggja manna tunglfarinu á loft á braut umhverfis jörðina. Munu þrír menn þá dveljast í því f mánaðartfma i hringferðum kringum jörðina. Þótt Saturn C-1 virðist vold- ug, ,er hún þó hvergi nógu kraft mikil til að senda þetta þriggja manna far til tunglsins með því eldsneyti, sem þarf til að tryggja endurkomu þeirra til jarðarinnar. Tjað á að verða hlutverk Saturn C-5. Þegar hún er öll komin saman, verður hún tröllaukin, 105 metra há. Hefur t. d. verið bent á það, að frelsisstyttan í New York muni verða eins og dvergur við hliðina á henni. Þó verður Satum C-5 ekki nógu kraftmikil til þess að hægt verði að ienda geimfarinu beint á tunglinu, hefja sig aftur á loft þar og snúa til jarðar. Til þess þarf ennþá stærri eldflaug, sem Áustin Gipsy ’62, benzín. Landrover ’62 engri gerðin, benzín. Willis ’62, lengri gerð n, benzín. Wiliis Station ’55, allur sem nýr /illis jeppar ’42, ’45, ’46, ’47, ’53, '54 og ’55 ÍAUPENDUR ATHUGIÐ að við höfurn hundruð bíla á skrám vorum og oft með litlum útborgunum ef góðar tryggingar eru fyrir greiðslum. Ford ’57 Station 120 þús. fasteignabréf 3ár. Ford ’57 100 þús. útborgun 60 þús. Chervo- let ’57, 115 þús., útb. 75 þús. Opel Olimpya Station ’63. gerð verður einhvern tíma í framtíðinni og gefið hefur verið nafnið Nova. Geimfararnir með Saturn C-5 verða því að fara nokkra króka- leið. Þegar þeir nálgast tunglið, eiga þeir að stefna geimfari sínu á sporbaug umhverfis það og mun farið snúast kringum mán- ann eins og lítill gervihnöttur, án þess að eyða eldsneyti. Þegar geimfarið er þannig komið inn á örugga braut kring um tunglið, munu tveir geim- faranna stlga inn í lítið hylki, sem er áfast geimskipinu. Þeir munu síðan stefna þvi með litl- um eldflaugarhreyflum til tungls ins og lenda á því. Á meðan heldur þriðji geimfarinn áfram að hringsóla kringum tunglið í geimfarinu. Þetta litla hylki, sem nú þeg- ar er verið að smíða, kalla Bandaríkjamenn LEM, sem er skammstöfun fyrir Lunar Ex- cursion Module, en það mætti þýða tunglkönnunartæki. ■pftir að þvi hefur verið lent á tunglinu, munu tunglfar- arnir tveir stíga út og dveljast tvo til þrjá daga á tunglinu og rannsaka nánasta umhverfi tæk is sins. Þeir verða í sérstökum búningum, sem eiga að vterja þá gegn ofsahita og kulda Og gefa þeim nægilegan loftþrýsting. Þegar þeir hafa lokið hlut- verki sínu eiga þeir að stíga upp í könnunartækið og hefja sig á loft með litlu eldflauga- hreyflunum. Verður tækinu sið- an beint með sjálfvirkum útbún ■ aði inn á sömu braut og geim- farið og þau tengd sáman, svo að tunglfararnir tveir komist aft ur inn í geimfarið. Síðan verður haldið af stað með fullum hraða til jarðar og þá sem í fyrri flug- ferðum verður helzta vandamál- ið að komast inn í gufuhvolf jarðar. Það vandamál hefur þó þegar verið leyst, eins og kunn ugt er af fyrri geimferðum. T esandinn kann að ímynda sér, að þessi lýsing sé skáld saga eða sami framtíðardraum- ur ímyndunar og einkennt hefur sögur allra alda um tunglferðir. En nú er þetta ekki draumur lengur, heldur tæknileg fram- kvæmd, sem verið er að vinna að öllum árum. Hitt er svo ann- að mál, að óhöpp og erfiðleikar geta tafið framkvæmdina. Það gefur nokkra hugmynd um framkvæmdina, eins og fyrr segir, að 9000 milljarða króna fjárfesting hefur verið ætluð ti! verksins. En gæta verður þess, að hin tæknilega hlið málsins, smiði eldflauga eða eldsneyti, kostar ekki nema brot af þeirri upphæð. Framkvæmdin verður svo dýr vegna þess að nauð- synlegt er að vinna hreint braut ryðjendastarf á ótal mörgum sviðum visindanna. T. d. er sending hinnar ómönnuðu Rang er eldflaugar til tunglsins að- eins iiður í þessum vísindalegu rannsóknum. Og þegar fyrstu mennirnir lenda á tunglinu, verður fyrst hægt að svara end anlega ýmsum vandamálum. Lausn þeirra mun síðan auð- velda síðari tfma lahgferðir út f geiminn, t. d. til Mars og Ven- usar. 1 öllum þessum rannsóknum eru nýjr heimar og viðhorf könn uð, t. d. á sviði lifeðíisfræði og sálfræði. Það er þegar reynt að kanna þessi atriði í lokuðum geymum, þar sem líkt er eftir þrýsting, þyngdarleysi og hljóð- leysi geimferðarinnar, hvaða á- hrif þau hafi á líkama og sál geimfarans. t1yrstu geimfaramir hafa með sér frá jörðinni þá næringu og drykk, sem nauðsynleg eru til að halda lífi. En þegar Iagt verður út 1 lengri ferðir, er slíkt óframkvæmanlegt. Það verður að koma á hringrásarkerfi efn- anna. Era vísindamenn nú að athuga allar huganlegar Ieiðir til að breyta úrgangsefnum mannsins, útöndun, svita, saur og þvagi að nýju í fæðu. Lík- legasta leiðin til þess er að riot- færa sér sömu aðferðina og móðir náttúra gerir á jörðinni, þ„C er að hafa meðferðis frum- stæðar jurtir eins og þörunga, sem safni kolsýru og vetni í fæðu og leysi súrefni út til önd- unar. Það hefur að vísu ekki tekizt enn fullkomlega að mynda þessa litlu hringrás nátt- úrunnar í tilraunahylkjum, en vísindamennirnir telja sig vera komna á sporið. En það er ekki aðeins unnið að þessu I tilrauna- og rann- sóknastofum Vesturveldanna. Vafalaust er fjöldi rússneskra vísindamanna einnig önnum kafnir við slíkar tilraunir. Vegna leyndarinnar vita menn ekkert hve langt þeir eru komn- ir áleiðis með undirbúning sinn að tunglferð. Rússar hafa staðið framar Bandaríkjamönnum í geimrann- sóknum fyrst og fremst vegna þess, að þeir hófu fyrr smíði stórra eldflauga. Hins vegar er ekki talið líklegt að þeir hafi við Bandaríkjamönnum í öllum þeirn tæknilegii d^'.'ýí^íhdalegu ranrisóknum, sepi nauðsynlegar eru tilWannaðVar tunglferðar. Cadillac ’50. Ford ’57 2 dyra. Plymouth ’55 og ’56 Chevrolet ’55 2 og 4 dyra. Buick ’55 2 dyra. NSU Prins ’63 fyrir skuldabréf. Pontiac ’55 2 og 4 dyra. Ennfremur hundruð ann- arra bíla. SKtLAGATA 55 — SlMI 15813 Auglýsið í VÍSI Að ufan — Framh Id at bls 8 1 þessum ættflokkum, sem risið hafa upp, munu vera um hálf milljón manna og I öðrum flokk um, sem andvígir eru stjórninni, er talið að séu um þrjár millj- ónir manna. Er ástandið því all alvarlegt í Persíu, ef uppreisnin næði að breiðast út. LAUGAVEGI Q0-Q2 700-800 bílar eru á söluskrá vorum. ★ Sparið yBur tíma og fyr- irhöfn. Ef bifreiðin er til sölu er hún hjá okkur. ★ Okkar stóri viðskipta- mannahópur sannar 10 ára örugga þjónustu ★ Bílaval er allra val. Sovézkur málari, Ilja Glazu- nov, er kominn til Rómar, en þar ætlar hann að leysa af hendi verkefni, sem margur mun öfunda hann af: Hann ætlar að mála mynd af Gina LoIIobrigida í fullri Iíkams- stærð. Glazunov hitti Ginu á film- hátíð í Moskvu fyrir tveimur áruin. „Ég rissaði upp teikn- ingu af henni,“ segir hann. „Henni geðjaðist vel að henni og við urðum góðir vinir. Hún skrifaði mér svo og baúð mér til Rómar svo að ég gæti mál- að hana.“ Glazunov gerir ráð fyrir að einn og hálfur mánuður fari í að gera málverkið. Gina hefur áður verið teikn- uð (sjá mynd) og gerði það ítalski listamaðurinn Guido Tallone. Hinn frægi hárgreiðslumeist- ari í París, Antoine, lét ný- lega sauma á sig vetrarfrakka, sem líklega er sá dýrasti í heiminum. Hann er nefnilega fóðraður með chinchilla. Anto- ine hefur því gildar ástæður til að fela þennan undarlega Ioðfeld. — I fyrsta Iagi halda flestir að þetta sé kanínuskinn, seg- ir hann, — og þaö er ekkert til að vera hreykinn af. Og í öðru Iagi vil ég ekki láta við- skiptavini mína, sem hafa gott vit á loðfeldum, sjá, að ég hafi ráð á slíku óhófi. Þá gæti auðveldlega farið að gruna, að ég tæki of mikið fyrir vinnu mína. * Pele. Því hefur verið lýst yfir i Brazilíu að fótboltahetjan Pele sé þjóðareign. Þetta er að sjálfsögðu niikill heiður — en að baki þessa heiðurs liggur ýmislegt. Einn hinna mjög svo „gráð- ugu“ ítölsku fótboltafursta bauð Peie yfir 50 milljónir króna fyrir að „punta“ dálít- ið upp á ftölsku liðin — en með ákvörðun ríkisstjómar Brazilíu var draumurinn bú- inn. Samkvæmt mjög ströng- um lögum má ekki flytja nokkra þjóðareign út úr Braz- ilíu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.