Vísir - 30.03.1963, Síða 7

Vísir - 30.03.1963, Síða 7
V í SIR . Laugardagur 30. marz 1963. 7 300 kaup a í matinn í Frakklandi er starfandi á vegum ríkisins skrifstofa, sem eingöngu hefur það verkefni að safna upplýsingum. 300 hús- mæður í ýmsum hverfum Par- ísar aðstoða þessa skrifstofu með því að senda henni upplýs- ingar um verðið á þeirn vörurn, sem þær kaupa til heimilisins. Til þess að almenningur í >ni:i:ii:liiiiiii:!Í!i.'i- Vorið er komið, sólin skín og hiti er úti fyrir. Vetrarkápan er orðin svo ótrúlega þung og fyr- irferðarmikil, að við ætlum al- veg að sligast undan henni. Pess vegna opnum við fata- skápinn og athugum hvað við eigum af léttari fötum frá s.l. sumri. Margar eiga sjálfsagt góð ar vor- og sumardragtir, aðrar léttar kápur eða stuttjakka. En margar eru þær sjálfsagt, sem gjarnan vilja fá sér eitthvað nýt! Frakklandi hafi gott af þessari starfsemi er oft á dag útvarp- að í franska útvarpinu tilkynn- ingum frá skrifstofu þessari. — Fyrsta tilkynningin er lesin kl. 7.50 á morgnana, en þá hefur komið í Ijós hvað var á boð- stólum í „Höllunum“, stærsta markaði Parísan Útvarpið les lista yfir 8—10 mismunandi vörutegundir, sem eru á sér- staklega hagkvæmu verði þann daginn. Þá kemur röðin að húsmæðr- unum 300. Fyrir hádegi gera þær innkaup sín og tilkynna svo skrifstofunni verðið á þeim. -— Þannig getur útvarpið ekki að- eins skýrt frá verðinu á vörun- um, heldur einnig gefið upplýs- ingar um hvar í bænum vör- urnar eru ódýrastar. Tilkynn- ingar þessar eru fyrst lesnar um hádegið og síðan við og við fram eftir deginum, þangað til víst þykir, að húsmæður hafi keypt allt inn til heimilisins þann daginn. Aðalkosturinn við þessar verðtilkynningar er, að neyt- andinn getur borið saman verð á vörum kaupmannsins „á horn- inu“ og verðið, þar sem það er Iægst. í fljótu bragði virðast þessar upplýsingar um verðið aðeins vera í þágu neytendanna, en reynslan í París er sú, að. fram- leiðendur og kaupmenn eru mjög ánægðir með þetta. Danir hafa í hyggju að taka upp líka þjónustu en byrjunar- örðugleikarnir eru margir og starfsemin fjárfrek, þannig að þeir vita ekki hvenær af því getur orðið. Islenzkar húsmæður þurfa tæplega að vænta þess að fá slíka þjónustu, enda þess ekki mikil þörf þar sem verðmismun- ur hjá hinum ýmsu verzlunum er ekki mikill og um daglegar verðbreytingar er ekki að ræða. — öðruvísi en áður. Fyrir þær er kjóilinn hér á •myndinni alveg tilvalinn. Hann er úr léttu efni, pilsið fellur mjúklega að, ermarnar settar í hátt uppi á öxlinni og blússan er skreytt tveimur djúpum fell- ingum. Og hatturinn? Hann er fléttaöur úr tágum. Ef einhver heldur að þetta sé „púkó“ og ekki í tízku getum við sagt henni, að kjóllinn er frá sjálfum meistaranum — Dior. VÍSINDASTYRKUR FAO Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna (FAO) veitir árlega nokkra rannsóknar- styrki, sem kenndir eru við André Mayer. Hefur nú verið auglýst eftir umsóknum um styrki þá, sem til úthlutunar koma á árinu 1963. Styrkir þessir eru ýmist veittir vísíndamönnum til að vinna að til- teknum rannsóknarverkefnum eða ungum vísindamannsefnum tii að afla sér þjálfunar til rannsóknar- starfa. Styrkirnir eru bundnir við það svið, sem starfsemi stofnunar- innar tekur til, þ.e. ýmsar greinar landbúnaðar, skógrækt, fiskveiðar og matvælafræði. Styrkirnir eru veittir tii allt að tveggja ára, og til greina getur komið að framlengja það timabil um 6 mánuði hið lengsta. Fjár- hæð styrkjanna er breytileg eftir : framfærslukostnaði í hverju dval- arlandi, eða frá 150—360 dollarar á mánuði, og er þá við það miðað, | að styrkurinn nægi fyrir fæði, hús- næði og öðrum nauðsynlegum út- gjöldum. Ferðakostnað fær styrk- þegi og greiddan. Taki hann með sér fjölskyldu sína, verður hann hins vegar að standa straum af öllum kostnaði hennar vegna, bæði ferða- og dvalarkostnaði. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins fyrir 10. maí n.k. Sérstök umsókn- areyðublöð fást í menntamálaráðu- neytinu. Umsókn fylgi staðfest af- rit af prófskírteinum, svo og með- mæli. Það skal að lokum tekið fram, að ekki er vitað fyrir fram, hvort nokkur framangreindra styrkja kemur í hlut íslands að þessu sinni. Endanleg ákvörðun um val styrkþega verður tekin í aðal- stöðvum FAO og tilkynnt í haust. Um vegalög — milliþinganefnd hefur skilað áliti — mikið og gott starf unnið — ekki rétt að rasa um ráð fram - jafnvægi í byggð landsins $3$iv'v \7egalög voru rædd utan dag- skrár neðri deildar í gær. Eins og kunnugt er, hefur milli- þinganefnd, skipuð ríkisstjórn- inni, undirbúið frumvarp að nýj- um vegalögum. Fyrir nokkru skilaði nefnd þessi áliti sínu til ríkisstjórnarinnar en þar sem nokkurt ósamræmi og vanda- mál eru enn fyrir hendi, eru lík- ur til þess að vegalagafrumvarp verði ekki borið fram á þessu þingi. Þannig standa málin í dag. I gær kvaddi Halldór E. Sigurðs son (F) sér hljóðs utan dagskrár og beindi þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að þingmönn- um öllum yrði gefinn kostur á að kynna sér nefndarálit milli þinganefndarinnar. Byggði Hall- dór þessa kröfu sína á þvi, að Benedikt Gröndal hefði sent dreifibréf um Vesturland, og skýrt þar frá, með að vísu ó- ljósum orðum, ýmsum þeim til- lögum sem nefndin hefði gert. eftir Ellert B, Schram Tngólfur Jónsson, samgöngu- málaráðherra kvað það ekki vera eftir sínum fyrirmælum, að einstakir nefndarmenn (Ben. Gröndal var í áðurnefndri milli- þinganefnd) skýrðu frá störf- um og tillögum nefndarinnar. Ráðherrann kvað nefndarálitið enn vera óopinbert skjal og vafa samt gæti talizt hvort birta ætti '■nefndarálit sem enn væri ekki fullgengið frá. Ingólfur kvaðst ekki hafa verið fyllilega ánægður með allar niðurstöð- urnar og því sent nefndinni nokkur atriði til frekari athug- unar. Ljóst væri því að störf- um nefndarinnar væri ekki lok- ið. Benedikt Gröndal sagði eng- an trúnað hafa verið brotinn, því hér hefði verið um einka- bréf að ræða, en ekki dreifi- bréf. Hann kvað ekkert laun- ungarmál að sér og öðrum Al- þýðuflokksmönnum væru það mikil vonbrigði að ekki tækist að leggja fram ný vegalög á þessu þingi, en hér hefði samt sem áður mikið og gott starf verið unnið til undirbúnings. Eysteinn Jónsson, Lúðvík Jós- efsson og Halldór E. Sigurðsson ítrekuðu þá kröfu að stjórnar- andstæðingar fengju að sjá nefndarálitið og gagnrýndu einnig stjórnina fyrir að bera ekki frumvarpið fram nú, þar sem því hefði verið marglofað bæði í ræðum og ritum. Ingólfur Jónsson tók aftur til máls, og kvað það rangt með farið að nokkurn tíma hefði ver- ið lofað að vegalagafrumvarpið yrði borið fram á þessu þingi. Aðeins hefði verið sagt, að vega lög væru í allsherjarendurskoð- un, hér væri stórt og umfangs- mikið mál á ferðinni, og þvi óráðlegt mjög að rasa um ráð fram og leggja fram frumvarp, ef ekki er full gengið frá því. Tjá var á dagskrá frumvarp ■*• Framsóknarmanna um jafn- vægi í byggð landsins, en kom- in er fram rökstudd dagskrár- Framhain nls tnsaKiisaa

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.