Vísir - 01.04.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 01.04.1963, Blaðsíða 10
70 VÍSIR . Mánudagur 1. april 1963. Vorhappdrætti Krabba- meinsfélagsins erhafið Vinningur er glæsilegasta hjólhýsi, sem sést hefur á fslandi. Miðinn kostar aðeins kr. 25.00. — Dregið verður þ. 14. maí 1963. Munið gott málefni. - Vinningurinn er skattfrjáls. Krabbameinsfélag Reykjavíkur. AÐALFUNDUR deildo KRON verða sem hér segir: Þriðjudaginn 2. apríl 1. og 2. Miðvikudaginn 3. — 3. — 4. — (Búðir Ægisgata 10 og Þverveg 2A) Fimmtudaginn 4. — 5. — 6. — (Búðir Nesveg 31 og Dunhaga 10) Föstudaginn 5. — 8. — 9. — (Búðir Barmahlíð 4 og Bræðraborgarstígur 47) Mánudaginn 8. — 11. — 13. — (Búðir Langholtsvegur 130 og Hrísateigur 19) Þriðjudaginn 9. — 14. —15. — (Búðir Langholtsvegur 24 og Tunguvegur 19) Miðvikudaginn 10. — 12. — (Búðimar í Kópavogi) Fundirnir verða allir haldnir í fundarherbergi félagsins á Skólavörðustíg 12 og hefjast kl. 8,30 e. h. Nema fundur 12. deildar, sem haldinn verður í Gagnfræðaskól- anum við Digranesveg, Kópavogi. KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS. Athugasemd Herra ritstjóri. i Hinn 27. þ.m. birtist „Athuga- semd“ í blaði yðar frá Sigurði Sigurðssyni, formanni Félags ís- lenzkra myndlistamanna. Gerir formaðurinn þar tilraun til að leið- rétta samtal er blaðið átti við mig hinn 19. þ.m. Sigurður Sigurðsson telur viðtal- ið „mjög ofsafengið og ósatt‘!, og ekki svara vert. Þó gerir hann til- raun með að leiðrétta tvö atriði þess, hefur þar meira erfiði en ár- angur. Hið fyrra atriðið, er hann tekur fyrir, er um réttmæti þess að Fé- lag íslenzkra myndlistamanna fari eitt með sýningarundirbúning og umboð íslands, gagnvart Norræna listbandalaginu. Athugasemd for- mannsins er byggð á fölskum for- sendum. Umboð það er félagið fékk frá ríkisstjórninni í upphafi, er aðeins var eitt myndlistafélag hér á landi, féll úr gildi, er stofnuð voru fleiri félög, sem ásamt utan- 'élagsmönnum eru fjölmennari en félagið sem Sigurður Sigurðsson veitir nú forstöðu. Formaðurinn reynir að réttlæta sitt ímyndaða alræðisvald með því að segja: „í Félagi íslenzkra myndlistamanna eru flestir íslenzkir listamenn", ætti þó að vita að svo er ekki. Gaman væri að sjá lista yfir þá utanfélagsmenn, er sýnt hafa er- lendis með FíÍ.L. í þau 10 ár sem félagar Sigurðar hafa haft einok- unaraðstöðu (í blóra við venjur annarra sambandsaðila). „Skipting þátttakenda" yrði sennilega nokkuð einhliða, eftir þeirri skýrslu. Satt mun vera að skiptingin hafi ekki rýrt listgildi sýninganna (í hvert skipti). Til- þrifin hafa verið sviplík, einnig árangurinn. Annað atriðið, er formaðurinn tekur fyrir, fjallar um sýningu í París á þessu ári, og fjárveitingu Alþingis til hennar. Þar er til að svara, að athugasemd formannsins kemur heldur seint, hann hefði átt að andmæla í desember er fréttin birtist á prenti. (Sjá Morgunbl. 14. desember 1962). Frétt þessi reynd- ist röng, en ekki óeðlilegt að ég glæptist á henni, því á síðari tím- um hafa tilkynningar F.Í.L. borið keim af vel þekktum fyrirmynd- um. Þær hafa verið birtar er búið var að velja og senda hátttökuverk íslands áleiðis. Fé það er Alþingi veitir: „Til íslenzkrar listsýning- Trúlofunarhringar Garðor Ólafsson Úrsmiður við Lækjartorg, sími 10081. ar“ í því og því landi N.L.B. hefur gengið óskert til F.Í.L. með einni undantekningu, er þáverandi menntamálaráðherra, Bjarni Bene- diktsson, neitaði að greiða styrk- inn fyrir Rómarsýningu Norræna Listbandalagsins, nema alhliða þátttaka kæmi til. Að Iokum lætur Sig. Sigurðsson í ljós, all þykkjuþungur, að það sé harla kynlegt athæfi að leita ekki álits hans og félaga F.Í.L. „áður en rokið er upp til handa og fóta með skömmum og brigzlyrðum". Svo mörg eru þau orð. Hvernig væri það yfirleitt, ef ritstjórar blaða og tímarita gengju milli manna og leituðu eftir áliti þeirra um sannleiksgildi viðtala? For- maður F.Í.L. virðist álíta þumbara- hátt félagsins hafinn yfir alla gagn rýni, og 10 ára einstefnuakstur sæmandi lýðræðisríki. Með þökk fyrir birtinguna. Finnur Jónsson. X- Ritstjóri Vísis, dr. Gunnar G. Schram, birtir í blaði sínu miðviku- daginn 27. marz grein er nefnist „Deilur um myndlist“ og er út af samtali við undirritaðan í Vísi þann 19. sama mánaðar, ennfremur út af Ieiðara í blaðinu nokkrum dögum seinna, um sama efni. Það er víst fremur fágætt að ritstjóri ráðist á leiðara blaðs síns, sem með ritstjóri hans hefur skrifað. Ein- hverjir verða að vera frumlegir, sennilega heyrir þetta undir fyrir- bærið „Ótrúlegt en satt“, sem og önnur sjaldgæf fyrirbrigði. Ég tók það fram í nefndu við- tali, að því væri ekki stefnt gegn neinum listamönnum eða ismum, heldur gegn því, að einu listamanna félagi í landinu skuli vera leyft að halda cinokunaraðstöðu varðandi þátttöku íslands í sýningum Nor- ræna listbandalagsins, og sem kost aðar eru af almannafé. Viðtal þetta fjallar eingöngu um það efni, svo og nauðsyn þess að sett yrðu lög og reglur viðvíkjandi tilhögun og framkvæmd íslenzkra listsýninga, sem kostaðar eru af opinberu fé, með hliðsjón af því fyrirkomulagi, sem tíðkast í ná- grannalöndunum. Það er því algert „vindhögg“ hjá doktornum (svo notuð séu hans eigin orð), að fara að flækja málið með háttstemmdri slagorðalistfræði, ismum og ab- strakti, sem ekkert koma þessu við. Ég vil taka það fram, að átíll og orðlag nefnds viðtals er, eins og það ber með sér, að verulegu leyti mitt verk. Doktornum finnst við- talið og yfirleitt það sem lista- menn rita, of hvassyrt. Mér skilst, til dæmis, að hann vilji ekki láta kalla ofbeldi ofbeldi, eða óbilgirni óbilgirni o. s. frv„ heldur nota ein- hver önnur orð um þess háttar. En þá eru hinir vísu landsfeður vorir (blessaðir stjórnmálamennirnir) litlu betri þegar þeir eru ósam- mála og deila hver á annan, án þess þó að ritstjórar verði hneykslaðir eða finni sig knúða til vandlætinga- semi í þeirra garð af þeim sökum. Um listfræði doktorsins get ég verið fáorður, þó er þar eitt atriði, sem ég vil minnast á. Hann talar um „fomíslenzkan raunsæisstíl" í málverkum. Verð ég að játa, að það listfyrirbæri hef ég aldrei heyrt nefnt og held ég að fullyrða megi, að það hafi aldrei verið til, |jví miður. Slettum doktorsins um „götu-; strákaskríl" o. s. frv. vísa ég bein- ustu leið til föðurhúsanna, og vil í því sambandi minna á hið sígilda, forna heilræði: „Þeir, sem búa í glerhúsi, eiga ekki að kasta stein- um“. Finnur Jónsson. Vegna þessarar athugasemdar Finns Jónssonar vill Vísir taka fram eftirfarandi: Finni Jónssyni er fyllilega heim- ilt að láta í ljós skoðanir sínar á vali listaverka á sýningar erlendis hér í blaðinu, enda er Vísir frjáls vettvangur til umræðna um þau mál, ekki síður en önnur sem á dagskrá eru. Hins vegar er Vísir ekki kvaddur til dómarasætis í deilu Finns við aðra myndlistar- menn. Það er kjami málsins, þótt Finnur Jónsson virðist enn ekki hafa gert sér grein fyrir því. fólk Kennedy. Eins og allir vita er það Kennedy forseti, sem er upp- hafsmaður að 80 Idlómetra göngunni, sem nú er áð breið- ast út um allan heim. En vegna þess hve slæmur Kennedy er í bakinu getur hann ekki gengið þessa 80 kílómetra og verður því að láta sér nægja að rugga sér daglega góða stund í ruggu- stólnum sínum, sem sjálfsagt er orðinn heimsfrægur. Nú hafa nokkur hundruð kvenna i Florida undirbúið ruggustólsmarathon. Keppend ur eiga að rugga sér dag og nótt þangað til aðeins ein er eftir vakandi. Hún verður sig- urvegari — og í verðlaun fær hún ný húsgögn í íbúð sína, og verður sjálfsagt ruggustóll þar á meðal. Mona Lisa Mesti listaviðburður ársins í USA er vafalaust koma Monu Lisu til Washington og New York, en eins og kunn- ugt er lánaði Louvre safnið i París Kennedy forseta persónu Iega þetta 459 ára listaverk Leonardo de Vincis. Auk hinna mörg hundruð þúsund áhorfenda, sem komið hafa að sjá listaverkið á þeim tímum, sem National Gallery í Washington og Metropolitan Museunt of Art i New York höfðu það til sýnis, komu heilu bekkirnir af skólabörnum þangað snemma á morgnana. Að sjálfsögðu var nemend- um skýrt frá hve óvenjulegt og merkilegt þetta væri — að sjá eitt frægasta Iistaverk heims í „frumútgáfu“. Og hin- ir allra yngstu voru látnir nota þetta tækifæri á dálitinn sér- stakan hátt. Sex og sjö ára gamlir nem- endur fyrsta bekkjar skóla i Silver Spring, sem er úthverfi borgarinnar Maryland, sem er í nágrenni Washington, voru látnir teikna Monu Lisu og brosið hennar fræga eins vel og þeir gátu mfcð litum sín- um. Og jafnvel þótt við sjáum niyndina aðeins f svarthvítu má glöggt sjá að unga lista- fólkið hefur haft sínar skoð- anir á listaverkinu. Og hvað fannst svo nem- endunum um brosið fræga? „ held að hún hefði verið mjög góð mamma,“ sagði einn af hinum ungu listgagnrýnend um.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.