Vísir - 01.04.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 01.04.1963, Blaðsíða 16
4 // Mánudagur 1. apríl 1963. MÓTI HER I LANDI /4 Seint í fyrrakvöld, eða um ellefu leytið, réðst ölvuð stúlka inn í bækistöð sem ameríski herinn hef- ur að Sólvallagötu 11. Komst hún þar í kast við hús- vörðinn, kynnti sig sem lögreglu- konu og heimtaði inngöngu í húsið, en það meinaði húsvörðurinn henni. Við það kom berserksgangur á meyna, skellti hurðum harkalega og braut rúðu í útidyrahurð. Var lögreglunni þá gert aðvart. Hún fór á staðinn, handtók stúlkuna og flutti í fangageymslu. Við yfir- heyrslu gerði stúlkan þá grein fyrir framferði sínu, að hún væri á „móti her í Iandi“. Sjö í bílveitu Á laugardagskvöldið valt bif- reið á Sogavegi við skeiðvöll- inn. Þetta var jeppabifreið og voru í henni sjö manns, þrír fullorðnir og fjögur börn. Allt fór það, eða var flutt, 1 slysa- varðstofuna til athugunar, en reyndist lítið slasað, að því undanteknu þó, að einn farþeg- inn hafði skorizt á hendi. Ekki er blaðinu kunnugt um skemmdir á jeppanum, en grun- ur lék á að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis og var meðhöndlaður samkvæmt því. A myndinni sést jeppabifreið- in sem hvolfdi í fyrradag skammt frá skeiðvellinum. — Lögreglan og ungir áhorfendur eru komnir á staðinn. KB Elding sveigir inn á Reykjavíkurhöfn kl. 10.30 í morgun. Báturinn er átta ára gamall og mjög rennilegur. Ganghraði neðansjávar er yfir 20 mílur, svo brezkir togarar eiga sér ekki undankomu auðið. Kafbáturinn liggur við Ingólfsgarð og er almenningi til sýnis í dag kl. 3—5. Fyrsti islenzki kafbáturínn kemur landhelgisbriótum á óvart Stórmerkilegt spor hefur nú verið stigið i landhelgismálum Islendinga, sem kann einnig að hafa verulega þýðingu í útvegs- málunum. Fyrsti íslenzki kafbát- urinn hefur verið keyptur til landsins, KB Elding. Er það Landhelgisgæzlan sem keypti hann í febrúar s. I. í Bandaríkj- unum. Kaupverðið var lágt, að- eins 27 millj. kr. Er þetta gam- all 630 tonna kafbátur af Sea Wolf gerð. Er hann búinn full- komnustu tækjum til radar-mið- ana og fiskleitar. Hann er knú- inn venjulegum dieselvélum með „schnorckel“ útbúnaði, en hægt að setja í hann kjarnorkuvél. Það var í morgun sem for- stöðumenn Landhelgisgæzlunn- ar skýrðu í fyrsta skipti opin- berlega frá þessum merka á- fanga, þegar KB Elding kom siglandi inn á höfnina í Reykja- vík. Var það bandarísk áhöfn, sem sigldi honum hingað til lands, en hinn góðkunni skip- herra, Eirikur Kristófersson, hafði þó tekið við skipstjórn- inni í New Jersey. í dag verð- ur kafbáturinn almenningi til sýnis. Kaupin á kafbátnum hafa far- ið fram með mikilli leynd, enda er hlutverk kafbátsins fyrst og fremst að koma enskuhi land- helgisbrjótum á óvart. Má geta nærri að togurunum frá Grims- by og Hull mun bregða í brún, þegar þeir eru í ró og næði að veiðum innan landhelgi, að allt í einu dúkkar kafbátstrjóna upp Framh. á bls. 5 í gærdag, klukkan rúmlega 4, varð alvarlegt umferðarslys á Bú- staðavegi, þar sem 5 ára drengur hlaut mikinn áverka á höfuð, auk þess sem hann lærbrotnaði. Rétt áður en slysið varð hafði strætisvagn numið staðar við stoppistöðina í Bústaðahverfi gegnt braggaþyrpingunni sem þar er. Margt fólk fór úr vagfiinum og þ.á.m. allmargir krakkar. Nokkrir krakkanna fóru aftur fyrir strætis- vagninn og þar yfir götuna. En rétt í þessu bar að fjögurra manna fólksbifreið, sem var á leið austur Bústaðaveginn, og einn krakkanna, 5 ára drengur, Eiríkur Karisen að nafni, lenti á hægri hlið bifreiðar- | innar og mun að öllum líkindum ! hafa Ient með höfuðið á hurðar- | húninum. Drengurinn skall i göt- \ una, en ekki liggur ijóst fyrir hvort i bifreiðin hefur farið yfir hann eða ' ekki. ! Eiríkur litli var þegar í stað ! fluttur í slysavarðstofuna, þar sem meiðsli hans voru könnuð og reyndust þau svo mikil, að dreng- urinn var fluttur í Landakots- spítala, þar sem hann liggur nú. Læknar óttuðust í gærkvöldi að sprunga hafi myndazt í höfuðkúp- unni, en töldu drenginn samt ekki lífshættulega slasaðan. — Auk áverka á höfðinu var hann lær- brotinn. Við siglum í kvöld, sagði Eiríkur Kristófersson skipherra og var hinn aldni heiðursmaður ákafur að handsama fyrsta landhelgrbrjótinn. Með honum á myndinni er Lt. Short, hinn bandaríski aðstoðarforingi. Talsvert síldarmagn er á Hrauns- víkurgrunni, en erfitt að ná henni. Þetta hafði fréttaritari Vísis á Akranesi eftir skipstjóranum á Haraldi, sem kom inn með rifna nót f gærkvöldi. En síldin virðist vera að færast vestar og utar. Sig- urfari var f morgun á leið til Akra- ness með 350 tn. Sigurfari er annars búinn að vera sérlega heppinn síðan hann fór á síldveiðarnar fyrir 4 dögum, en hann kom inn f gær með 470 tn., sem hann fékk á Hraunsvík, og fór svo þegar út aftur, en alls hefur hann fengið 14—1500 tunnur á 4 dögum. MIKIL AFLAKLÓ. Með Sigurfara er ungur maður, sem virðist ætla að verða mikil aflakló. Hann hefur ekki verið formaður nema síðan í haust, er Skagamaður, 24 ára að aldri, og heitir Nikulás Brynjólfsson. / I , ( I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.