Vísir - 04.04.1963, Síða 2

Vísir - 04.04.1963, Síða 2
2 V í SIR . Fimmtudagur 4. apríl 1963. y////m '//////smw/////. rn /////////// ////////// \ //// Körfuknattleikur: KR skoraði 116 stig Vann KFR með 47 stiga mun 1 gærkvöldi léku KR og KFR í meistaraflokki. Nær sanni væri að KR hefði leikið sér að KFR. Heldur var KFR fáliðað við fyrstu sýn. Vantaði bæði Sigurð Helgason og Hörð Bergsteinsson, sem birtist þó er nokkuð var liðið á fyrri hálfleik. KR liðinu tókst vel upp í þessum Ieik, enda var vörn KFR ekki neitt til að guma af. KFR skoraði fyrstu tvö stigin, en þá tóku KR-ingar við og skoruðu 14 stig 1 röð. Jafnaðist nú leikurinn nokkuð, en KR hafði alltaf nálægt tíu stigum yfir. Undir lok fyrri hálfleiks sóttu KR-ingar sig nokkuð og Iauk fyrri hálfleik með 49:29 fyrir KR. Er þetta ó- . Bí-i Jiiiiyl Einar Bollason, KR. venjuhá stigatala og má til gamans geta þess, að í leikjum sínum fram að þessu hafði KR skorað að með- altali 52 stig. Framan af seinni hálf leik hélzt stigamunurinn nokkuð jafn, KR hélt þó áfram að smá- auka forskot sitt og er seinni hálf- leikur var rúmlega hálfnaður stóðu leikar 92:60 fyrir KR. Hljóp þeim þá kapp í kinn og var greinilegt, að þá langaði að ná 100 stigum. Gekk það nokkuð greiðlega og er því tak markinu var náð færðist nokkur deyfð yfir leikinn. Nokkru seinna var sem þeim yxi ásmegin og tóku þeir til þar sem frá var horfið. Leik inn unnu þeir með miklum yfir- burðum, 47 stiga mun, skoruðu 116 stig gegn 69. Lið KFR var heldur tætingslegt. Langbezti maður liðs- ins var Einar Matthíasson (28 stig), hann var eini maður liðsins sem virtist með á nótunum. Næstur hon um, hvað getu snerti, gekk Ólafur Thorlacius. Marinó lék stöðu mið- herja og er það greinilega ekki hans sterkasta hlið. KR átti í heild góðan Ieik. Liðið féll vel saman, ó- venjuvel miðað við fyrri leiki þess í mótinu. Einar Bollason (38 stig) var hvað beztur KRinga _og stjórn- aði hann liðinu röggsamíega. Gutt- ormur átti sinn bezta leik I mótinu til þessa (31 stig). Þá átti Kristinn Stefánsson og ágætan leik. Gunnar Gunnarsson var mjög góður í vörn. Næst verður Ieikið þriðjud. 9. apríl og er það síðasta leikkvöldið í mótinu, Mætast þá KR og Stúd- entar, ÍR og KFR. —- þss. Sfaðan ú körfu- knattleiksmótmu IR 7 7 0 525:310 14 Ármann 8 6 2 471:436 12 KFR 7 3 4 411:470 6 KR 7 23 5 432:430 4 ÍS 7 0 7 247:440 0 Hamragili Að vanda gangast ÍR-ingar fyrir páskaviku við sinn nýbyggða og glæsilega skíðaskála í Hamragili við Kolviðarhól. Þar sem aðeins er svefnpláss fyrir 46 manns má búast við að færri geti dvalizt þar en þess óska, en dvalarleyfin verða seld í ÍR- húsinu við Túngötu n.k. fimmtu- dag og föstudag kl. 5—7 e.h. Gestum verður séð fyrir fæði allan tímann og þurfa því aðeins að hafa með sér svefnpoka, skiði og fatnað, en gestir þeir sem að- eins dvelja á daginn við skálann geta fengið keyptar veitingar. Ferðir verða frá BSR á miðviku- dagskvöld og á hverjum morgni og til baka að kvöldi. Skíðasnjór er sæmilegur I Hamra gili og 1 Skarðmýrarfjalli, þá er I nægur snjór í Innstadal og í j Hengli, en þangað verða farnar ■ gönguferðir þegar veður leyfir und j ir stjórn kunnugs manns. j Skíðakennsla verður fyrir þá sem | þess óska og að lokum verður ! skíðakeppni. j Á kvöldin verða haldnar kvöld- vökur fyrir dvalargesti og e.t.v. dansað. HOLSTEIN-KIEL TIL FRAMARÁ I byrjun júní kemur þýzka at- vinnuliðið Holstein-Kiel í heim- sókn til Fram og leikur 4 leiki hér. Er þetta fyrsta þýzka atvinnuliðið, sem kemur hingað eftir stríðið. Holstein-Kiel er eitt af þekktustu Iiðum Þýzkalands. Það hefur verið Þýzkalandsmeistari, 6 sinnum norður-þýzkur meistari og 2 norð- ur-þýzkur bikarmeistari. Auk þess urðu áhugamenn félagsins Þýzka- landsmeistarar 1961. Holstein-Kiel leikur I norður- ligunni og hefur undanfarið verið í 3.—5. sæti. 16 lið eru í fyrstu deild á þessu svæði. Tvö efstu liðin þar eru Hamburg SV (með Seeler, Dörfel o.fl. landsliðsmenn) og Werder Bremen, en þau hafa um árabil verið með allra sterk- ustu liðum Þýzkalands. Á þessu ári verða þær breyting- ar á tilhögun í þýzku meistara- keppninni, að landið verður gert að einu keppnissvæði, f stað 5 (með Berlín), og verða 16—18 lið í meistarakeppninni. Það er talið fullvíst, að Holstein-Kiel verði eitt af þessum liðum. Til marks um styrkleika félags- ins í dag er jafnteflisleikur þess (1:1) við Hamburg SV fyrir skömmu. Hamburg SV gerði um svipað leyti jafntefli við ungverska landsliðið (2:2) I Hannover. Meginstoðir Holstein-Kiel er aft- asta vörnin og innantríóið. Um líkt leyti og Holstein-Kiel kemur til íslands, á félagið að leika 2 leiki við Ipswich Town, ensku meistarana frá því I fyrra. Erlendat' Sréttir — Norski blaðamaðurinn Karl Lyche segir nýlega I við/:ali við Aft- enposten að ekki sé við öðru að búast í Tokyo en hinum versta „kaos“, eins og hann orðar það, og segir hann að þátttakendur, á- horfendur og blaðamenn muni ekki fara varhluta af því er þar að kem- ur. Lyche segir þetta stafa af því hve fáir Japanir tala ensku eða eitthvert annað Evrópumál, umferð in I Tokyo býr við mjög erfið vanda mál, og öll hótel eru upppöntuð, allt frá kjallara upp í hanabjálka yfir OL-tímabilið. Framkvæmdir við mannvirki leikanna ganga seint og urðu framkvæmdirnar nýlega aðalvopnið gegn borgarstjóra Tok- yo nú nýlega er borgarstjómarkosn ingar fóru fram. Siglfirðingar undirbúa skíðalandsmótið Alls hafa nú 86 keppendur til- kynnt þátttöku í skíðalandsmótinu, sem fram fer á Siglufirði um pásk- ana. Það er vitað að þangað koma 18 keppendur frá Reykjavík, 10 frá Akureyri, 17 frá ísafirði, 6 frá Ól- afsfirði, 2 frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar og 3 frá Ungmennasam- bandi Austurlands. Þá er vitað að 30 Siglfirðingar muni taka þátt í landsmótinu, svo að þeir heima- menn verða langfjölmennastir og sterkastir. Siglfirðingar eru að ljúka öllum undirbúningi mótsins. Keppnisbraut ir hafa verið mældar út og lagðar. Skíðagangan fer fram á Súlum, svig og stórsvig í Skarðsdal og skíða- stökk í Hvanneyrarskál. Mikil veð- urblíða hefur verið í Siglufirði, logn og sólskin, hlýtt er á daginn en örlítil næturfrost. Siglfirskir skiðamenn æfa nú af kappi undir mótið og jafnframt eykst áhugi almennings fyrir sklða ferðum. Það er erfiðara nú en oft áður að komast í gott skíðaland við Siglufjörð, þar sem skíðasnjór er aðeins efst £ fjöllum. Forustumenn skíðamanna telja þó mjög góð skil- yrði þarna fyrir skíðalandsmót ef farið er yfir 350 metra yfir sjó. Svo ofarlega sé snjórinn öruggur ef ekki koma stórhlákur. Skíðafélagið hefur keypt dráttar- vél og verður hún notuð í flutninga og einnig til að knýja skíðalyftu á sama hátt og Akureyringar gerðu á síðasta landsmóti skíðamanna. /A Vertíðariok" í handknattleik Víkingar fá silfurverðlaunin - Loka- dansleikur í Lido - KR-Þrótfur d sunnud.—Stadun-^Vitinn'markhæstur með 7 stig í stað 8 eins og við settum upp I gær. Víkingar munu fá afhent silf- urverðlaun á skemmtun sem haldin verður í LÍDÓ n.k. sunnu dag eftir íslandsmótið I hand- knattleik. Það var ekki rétt í blaðinu í gær að Víkingur hefði 14 stig. Þau eru 15 stigin, sem félagið hefur, því einu stigi bættu þeir við með því að kæra jafnteflisleik við ÍR, en dómsorð sögðu leikinn unninn fyrir Vík- ing, þar eð Matthías Ásgeirsson mætti ekki keppa með öðru fél- agi en Keflavík fyrir áramót. Af þessum völdum eru ÍR-ingar Vikingur og Valur standa fyrir LOKADANSLEIK í Lídó á sunnu dagskvöldið, en það er nú orðin venja að halda þennan dansleik í „vertíðarlok“. Þarna mætast eldri þátttakendur í mótinu, sig- urvegarar og hinir sigruðu, og kætast yfir góðu nióti. Á dans- leiknum cru öll verðlaun afhent sigurliðunum og þar munu Fram arar taka við sigurlaunum fyrir meistaraflokk karla en Ármanns stúlkurnar fyrir kvennaflokkinn, en þær unnu FH í úrslitaleik fyr ir skömmu. • í gær kom Handknattleiksráð Reykjavikur sanian til fundar og ákvað leikdag fyrir KR-Þrótt leikinn um fallið í 2. d. Ákveð- ið var að hafa leikinn næsta sunnudag og er leikurinn í raun inni hið eina sem beðið er eftir af úrilitum mótsins. Er óhætt að fullyrða að þar verður barizt meðan blóðdropi er eftir. • Staðan í 1. deild er þannig rétt færð: Fram 9 8 0 1 292:210 16 Víkingur 10 7 1 2 235:224 15 FH 9 6 0 3 247:206 12 IR 10 3 1 6 267:294 7 KR 10 2 0 8 248:279 4 Þróttur 10 2 0 8 222:298 4 Markhæsti maður mótsins cr greinilega hinn ungi leikmaður Fram, Ingólfur Óskarsson, 21 árs að aldri, verzlunarmaður hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar. Ingólfur hefur nú þegar skorað 112 sinnum hjá mark- vörðum 1. deildar og er útilokað að nokkur maður ógni honum að þessu sinni. og án efa mun hann bæta nokkrum mörkum við hjá markverði FH á sunnudags- kvöldið. Er árangur Ingólfs at- hyglisverður, þar eð markahlut- fall hans er um 12 mörk í hverj um leik til jafnaðar, sem sýnir jafnframt að það er ekki gott að varast „Vitann“, eins og Danir kölluðu Ingólf eftir leikinn við Skovbakken í haust, en þeim fannst mikið til um Ingólf og skot hans.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.