Vísir - 04.04.1963, Blaðsíða 7
V í SIR . Fimmtudagur 4. april 1963.
7
Strengjakvartett á
tónleikum BCammer
músikkliíbbsins
í kvöld kl. 21 heldur Kammer-
músíkklúbburinn 4. tónleika sína á
þessu starfsári í samkomusal Mela-
skólans. Þar munu leika: Bjöm Ól-
afsson, Jón Sen, Josep Feizmann
og Einar Vigfússon. Á efnisskránni
er strengjakvartett í D-dúr, K 499
eftir Mozart og strengjakvartett í
C-moll Op. 18, nr. 4 eftir Beethoven
Næstu tónleikar verða í maí og
verður þá m.a. fluttur einn Branden
borgarkonsert e'ftir J.S. Bach. Síð-
ustu tónleikar starfsársins verða
svo um miðjan júní og munu þá
Kristinn Hallsson og Árni Kristjáns
son flytja ljóðaflokkinn „Schwanen
gesang“ eftir Schubert.
Kammermúsikkklúbburinn var
stofnaður árið 1957 og eru félagar
nú um 160. Enn mun vera hægt
að bæta við nokkrum félögum.
SÆNGUR
í ýmsum stærðum. — Endur-
nýjum gömlu sængumar.
Eigum dún og fiðurheld
ver.
Dún- og fiðurhreinsun
Kirkjuteig 29. Simi 33301
Ódýru
ULLARHOSURNAR
komnar aftur
í öllum stærðum.
VERZLUNIN
EFSTASUNDI 11
Sími 36695
og
VERZLUNIN
BALDURSGÖTU 39
Sími 35142
Þingfundir
síðdegis
Forsetar Alþingis hafa nú haf-
ið síðdegisfundi f þeim tilgangi
að hraða afgreiðslu máia. 1 gær
var fundur í Sameinuðu þingi.
Hófst hann kl. 1.30 og er hinum
venjul. þingf.tíma var lokið var
fundi frestað, en síðan fram:
haldið kl. 5. Stóð hann síðan
til klukkan að ganga átta í gær-
kvöldi.
Mjög er nú liðið á þingtím-
ann, en mörg mál ennþá óaf-
greidd. Bæði er þar um að ræða
stjórnarfrumvörp, sem og til-
lögur og frumvörp frá stjórnar-
andstöðunni. Mörg mál bíða enn
fyrstu afgreiðslu, hafa ekki ver-
ið tekin fyrir, og sem dæmi um
fjölda hinna ýmsu þingmála,
voru á dagskrá í Sameinuðu
þingi einu í gær, 26 mál.
Fjöldi mála er auk þess enn
í nefndum, svo ljóst er að hefja
verður kvöldfundi í þinginu það
sem eftir er vikunnar, ásamt
þeim dögum í páskavikunni,
sem virkir eru.
Maður og kona 12. viðfangs-
efni Leikfélags Kópavogs
Haraldur Björnsson er leikstjóri
DAGBLAÐIB
MYND
öll blöðin (complete) til sölu.
Uppl. á afrgreiðslu Tímans.
Félagslíf
Ármenningar. Skiðadeild. Sjálf-
boðavinna verður um helgina. —-
Borið verður í veginn og unnið við
skálann. Mætum öll og gerum allt
í stand fyrir páska, eins og við
viljum ailtaf hafa það. Mætið með
skóflur. Farið verður á laugardag
kl. 3. •— Stjórnin.______
KFUM. AD. Fundur í kvöld ki.
8.30, séra Jónas Gíslason flytur er-
indi úr sögu Siðbótarinnar á ís-
iandi, II. Píslarsagan. Passíusálm-
ar. Allir karlmenn velkomnir.
Afgreiðslumenn í
birgðageymslu
Vantar nokkra afgreiðslumenn í birgða-
geymslu okkar. Uppl. í síma 17400.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
Stúlkur óskast
Nokkrar stúlkur óskast nú þegar
til verksmiðjustarfa. — Uppl.:
PAPPÍRSPOKAGERÐIN Vitastig 3
(ekki í síma).
Afgreiðslustarf
Ungur maður óskast til afgreiðslu-
starfa nú þegar.
SÍLD OG FISKUR
Bræðraborgarstíg 5 . Sími 18240
Leikfélag Kópavogs frumsýnir
i kvöld Ieikritið Mann og konu
eftir Jón Thoroddsen undir leik-
stjórn Haralds Björnssonar. Er
þetta 12. viðfangsefni félagsins,
síðan það var stofnað í janúar
1957, og jafnframt fyrsta íslenzka
leikritið, sem félagið sýnir, að und-
antekinni íslenzkri revíu. Aðalhlut-
verkin í Manni og konu eru leikin
af Gesti Gíslasyni (Sigvaldi), Auði
Jónsdóttur (Staðar-Gunna), Árna
Kárasyni (Hjálmar), Guðrúnu Þór
(Þórdís), Lofti Ámundasyni (Sig-
urður í Hlíð), Sigurði Jóhannes-
syni (Grímur), Guðmundi'Gíslasyni
(Bjarni á Leiti), Ásmundi Guð-
mundssyni (Egill), Helga Guð-
mundssyni (Þórarinn) og Sigur-
björgu Magnúsdóttur (Sigrún).
Frá þessu var skýrt á fundi, er
stjórn Leikfélags Kópavogs og
Haraldur Björnsson héldu með
fréttamönnum í gær. Lauk Har-
aldur Björnsson þar miklu lofsorði
á áhuga og fórnfýsi leikaranna í
Kópavogi. Kvað hann allt þetta
fólk vinna úti allan daginn og æfa
á nóttinni. Væri það eini tíminn
sem hægt væri að æfa á sviði,
af því að kvikmyndasýningar
væru í húsinu á hverju kvöldi og
sætu þær jafnan fyrir leiklistinni
eins og venja væri í öllum þeim
félagsheimilum, sem sýndu kvik-
myndir. Þar ofan á bættist svo, að
leikararnir ynnu kauplaust með
öllu. Slík vinnuskilyrði, sagði Har-
aldur, eru satt að segja eins slæm
og hægt er að hugsa sér, og það
er undarlegt, að menn skuli ekki
hafa áttað sig á nauðsyn þess að
búa betur að leikurum úti um
landsbyggðina. Leiklistin er ein-
hver mikilsverðasti þáttur i menn-
ingarlífi sveitar- og bæjarfélaga,
og hún hlýtur að staðna með þessu
áframhaldi. Enginn vinnur kaup-
laust fyrir bæinn, og þá er ekki
hægt að ætlast til þess, að leik-
arar geri það fremur en aðrir.
Verða bæjarfélögin því að greiða
leikurum eitthvert kaup, að
minnsta kosti fyrir sýningarkvöld.
Leikfélag Kópavogs er eitt af 6
félögum, sem standa að félagsheim
iii Kópavogs-. Smíði hússins er enn
ekki lokið, en kostnaðurinn er orð-
inn um 10 milljónir. Bærinn Ieggur
fram 50%, félögin 10% og félags-
heimilasjóður 40%, en það framlag
hefur ekki enn fengizt nema að
litlu leyti, svo að bærinn hefur
lagt fram meira en honum ber. Af
þessum sökum hefur bærinn einnig
rekið húsið fram til þessa, en á
því verður breyting á sumri kom-
anda, en þá taka félögin 6 við
rekstrinum. í Leikfélagi Kópavogs
eru nú 80 meðlimir og 285 styrkt-
armeðlimir ,og greiða þeir 200 kr.
árgjald, en fá í staðinn ókeypis
aðgang að sýningum. Auk Manns
og konu er L. K. nú að undirbúa
sýningu á barnaleikritinu Húsið í
skóginum eftir Katy Vestley.
Stjórn Leikfélags Kópavogs
skýrði frá því, að miklum erfið-
leikum væri bundið fyrir svona
lítið félag, sem starfar við erfiðar
aðstæður, að koma upp sýningum
sem þessum. Kom það m.a. fram,
að miklum vandkvæðum var bund-
ið að hafa upp á búningum, þar
sem búningaleiga Þjóðleikhússins
væri hærri en svo, að félagið hefði
fjárhagsgetu til^að notfæra sér
hana. Hafa félagsmenn því náð
búningunum saman úti um sveitir,
m.a. uppi í Borgarfirði. Á bæ ein-
um uppi undir Eiríksjökli fékkst
pils úr 50 ára gömlu vaðmáli, 42
ára jakki og grútartýra. Að lokum
þökkuðu leikfélagsmenn Haraldi'
Björnssyni fyrir óeigingjamt starf
og báru mikið lof á hann sem
leikstjóra.
p Ul'lCUÍCftl
1 stofa og eldhús eða eldunar-
pláss óskast fyrir eldri konu. —
Uppl. í síma 12054.
Herbergi til leigu. Uppl. á Miklu-
braut 16, I. hæð vinstra megin.
Nauðsynlegt að taka öll mál til meðferðar — rætt
um raforkumál — örari framkvæmdir nú en áður
— lagasafn væntanlegt á þessu ári.
:
’-íS
■
J^undur í Sameinuðu þingi
hófst í gær á því að Eysteinn
Jónsson kvaddi sér hljóðs utan
dagskrár. Beindi Eysteinn þeim
tilmælum til forseta, að hann
hagaði niðurröðun dagskrárliða
á þann máta, að skýrsla ríkis-
stjórnarinnar um Efnahagsbanda
Iagið yrði tekin til umræðu. í
því sambandi benti hann á, að
nú væru liðnir 5 mánuðir frá
því að skýrslan var fyrst á dag-
skrá og til væru þingmenn, sem
búnir væru að vera á mælenda-
skrá í margar vikur.
Pétur Sigurðsson (S) benti
forseta á, vegna þessara tilmæla
Eysteins, að enn lægju fyrir þing
inu aragrúi mála, sem ekki-
hefðu einu sinni hlotið méðferð
fyrstu umræðu. Skýrslan um
EBE hefði hins vegar m'argoft
verið rædd.
Forseti tók undir orð Péturs
varðandi EBE-málið. Kvað hann
skýrsluna hafa verið rædda á 6
fundum í SÞ., 16 ræður hefðu
verið fluttar, flestar Iangar, þar
af hefðu 8 verið fluttar af stjórn
arandstöðunni og tvær af Ey-
steini sjálfum. Vonaðist hann þó
til að hægt yrði að taka skýrsl-
una fyrir einhvern næstu daga.
itið gekk að afgreiða þau fjöl-
mörgu mál sem á dagskrá
deildarinnar voru, mest fyrir þá
sök, að óendanlegar ræður voru
haldnar um raforkumál — einu
sinni enn
Orsökin fyrir þeim mörgu orð
um er sannarlega ekki sú, að
nýjar upplýsingar komi fram,
heldur sést aðeins, að fram-
sóknarmennirnir Gísli Guðm., og
Skúli Guðmundsson sjá sér sí-
fellt ástæður til að endurtaka
fyrri orð sín um raforkumál
landsins.
Hafa þeir ásamt öllum öðrum
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins flutt tillögu um að gerð sé
heildaráætlun, þar sem gengið
sé út frá að allt landið verði
rafvætt fyrir árið 1968.
Nefnd hefir fengið nfálið til
meðferðar, vísað þvi til raforku
málastjóra, sem hefúr sagt svo
um tillöguna, að hún fæli ekki í
sér neinar nýjungar, né mundi
hraða rafvæðingu landsins meira
en þegar hefur verið áætlað.
Undirbúin er nú áætlun sem
væntanlega verður tilbúin á
þessu ári, þar sem gert verður
ráð fyrir að allt ísland verði raf-
vætt árið 1970. Á þetta benti
Ingólfur Jónsson, raforkumála-
ráðherra. Ennfremur kvað hann
það ósatt hjá þeim flutnings-
mönnum, ósanngirni og vísvit-
andi fals að halda því fram að
rafvæðingin hefði dregizt úr hófi
í tíð núverandi ríkisstjórnar.
Sannleikurinn er sá, sagði ráð
herrann, að meira hefur verið
gert á síðustu árum í þessum
efnum en í tíð vinstri stjórnar-
innar. Á árunum 1961—62 voru
552 sveitabæir rafvæddir og 160
f viðbót biðu þess eingöngu að
spennustaurar yrðu settir upp.
Rafvæðingin hefur í heild gengið
örar hin síðustu árin.
lll annibal Valdimarsson beindi
fyrirspurn til dómsmálaráð-
herra, hvað liði útgáfu nýs laga
safns. Bjarni Benediktsson gaf
eftirfarandi upplýsingar:
Lagasafn það, sem nú er í notk
un ,tekur yfir lög,- áe’tt á árinu
1954. Lögboðið er að lagasafn sé
endurnýjað á minnst 10 ára
fresti, og skv. því lagaboði hef-
ur verið unnið að útgáfu laga-
safns. Fyrsta handrit liggur fyr-
ir nú, og byrjunarfé hefur verið
veitt á fjárlögum til útgáfunnar.
Ekkert ætti að vera því til fyrir-
stöðu að lagasafn gæti komið út
síðast á þessu ári eða í byrjun
hins næsta.
Ráðherrann lét einnig svo um
mælt, að hann teldi 10 ára milli
bil of langan tíma, og stefna
bæri að því að hægt yrði að
endurnýja lagasafnið oftar.
Varðandi útgáfu reglugerðar-
safns, sem Hannibal spurðist
einnig fyrir um, kvað ráðherrann
ekki ráðlegt að ráðast til slíkrar
útgáfu. Hún væri dýr og vand-
gerð og kæmi ekki að eins mikl
um notum og samsvaraði þeirri
vinnu sem í það yrði lagt. Auk
þess eru breytingar á reglugerð-
um það tíðar, að nauðsynlegt
væri að endurnýja slíkt reglu-
gerðarsafn mjög oft, oftar en
tök væru á.
eftm Ellert B. Schmm *
A