Vísir - 04.04.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 04.04.1963, Blaðsíða 5
VÍSIR . Fimmtudagur 4. apríl 1963. 5 smi í fyrrad. hóf Blindrafélagið í fyrsta skipti sölu á happdrættismiðum. Ágóðanum af sölunni skal varið til byggingar á nýrri álmu, til við- ^ bótgr því husnæði, sem það nú hefur. Á fundi í gær var blaðamönn- um tjáð, að mikil nauðsyn væri að fá aukið húsrými. Kæmi þar til, að margir væru sem gjarnan vildu ganga í félagið, og setjast að á heimilinu, svo að nauðsyn- legt væri að fá rúm fyrir kennslu- stofur og annað slíkt. • Félagið hefur átt í nokkrum örð- ugleikum fjárhágslega af þeim sök- um að því var neitað um fastan tekjustofn. í því húsnæði, sem blindrafélagið hefur nú yfir að ráða, búa 16 manns, þar af 12 blindir, alls munu um 30 blindir vera í félaginu. Blinda fólkið á sjálft allan veg og 'vanda að fé- laginu. Það átti hugmyndina, og hefur einnig séð um allar fram- kvæmdir í sambandi við útvegun vinninga og annað slíkt. Kvaðst það hvarvetna hafa mætt velvilja og skilningi. Vinningar eru fjórir. Volkswagen station bifreið, ferð til London fyrir tvo, hlutir eftir eigin vali fyrir allt að 10.000 krón- ur, og hringferð kringum landið elagsms fyrir tvo með m.s. Esju. Dregið Verður 5. júlí í sumar, og er verð miða 50 krónur. Ekki er ákveðið um sölustaði enn þá, en þeir munu síðar auglýstir í blöðum. Öll að- stoð við dreifingu og sölu miða, verður að sjálfsögðu þegin með þökkum. Lóðað — Framhald af bls. 16. nú þreifa fyrir sér út af Kirkjuvog- inum. Á Akranesi voru aðeins fjór- ir netabátar á sjó í morgun. SÍLD I JÖKULDJÚPI OG NV AF GARÐSKAGA. Á miðin út af Kirkjuvogi er rúm- Iega 3ja klst. sigling frá Reykjavík. Sunnan Reykjaness er ekki veiðiveð ur. Fanney hefir lítið getað athafn- að sig vegna veðurs, en mun nú athuga fréttir um síldartorfur út af Jökli. Þá mun bátur á netaveiðum hafa orðið var við síld norðvestur af Garðskaga í fyrradag. Allt mun þetta skýrast nánar, þegar veður batnar, sagði Jakob Jakobsson, fiski fræðingur, er blaðið talaði við hann ðrdegis í dag. Guðbrandsbibfia Til sö*u 1584 ljsprentað eintak, tölusett nr. 140. Skrá á nafn er til sölu. Tilvalin ferming- argjöf. Tilboð óskast,, merkt „BO. 75552“, box 23, Keflavíkurflugvelli. Þeir sem standa í húsbygging- um hafa kynnzt því, hve miklu það getur munað í byggingar- kostnaði hvemig grunnurinn er. Það er tvennt sem menn óttast mest, að þurfa að sprengja mikla kletta í burtu og hitt að þurfa að grafa djúpt, þar sem mýrlendi er og djúpt niður á fast. | Þessa jnynd tók ljósmyndari Vísis f gær, þar sem bygginga- menn áttu í erfiðleikum vegna þess að á byggingarlóðinni er mýrlendi. Þetta er vestur f Kapla skjóli, þar hafa verið og eru að rfsa upp miklar íbúðablokkir þar sem áður var mýri. Gamansaga segir, að maður nokkur hafi átt þarna talsvert Iand fyrir nokkr- um ámm og þegar hann var að selja lóðir undir byggingar á hann að hafa sagt: — Það gerir ekkert til þó þeir byggi nokkrar blokkir hér, þær verða sokknar eftir nokkur ár. Blokkirnar sem reistar hafa verið standa að vfsu enn. Hins vegar virtist mönnum sem sáu þennan byggingarkrana í gær, sýnt, að hann ætlar að sökkva ofan í mýrina og kannski ekki koma upp aftur. Byggingafélagið sótti þá þúngan dráttarvagn til að draga kranann upp úr, en á sömu leið fór fyrir dráttarvagnin um, að hann ætlaði að sökkva í. Það var ekki fyrr en annar drátt arvagn kom á staðinn og báðir toguðu í með fullri orku, sem kraninn lyftist loksins upp úr díkinu. Hestar Framhald af bls. 16. slíkum flutningum væri fengin lausn á því vandamáli, að erfitt hefir verið að fá hentug skip til útflutnings á hrossum, og svaraði hann því á þessa leið: Þessir flutningar eru að sjálf- sögðu dýrir, og það eina sem bjarg ar því, að hægt er að flytja þá loftleiðis, er að kaupendurnir vilja borga meira til þess að geta fengið þá á þessum tíma eða þegar vorið er að byrja hjá þeim, en sjóleiðis má ekki flytja út hross fyrr en 15. júnf, þegar langt er liðið á sum- ar suður í álfu. Mikið atriði er að sjálfsögðu, að hestunum líði vel þeg ar þeir eru fluttir við þessi skilyrði. Ásgeir kvað hestana eingöngu selda til einstaklinga, sem keyptu þá sér til yndis og ánægju — þeir væru mikið keyptir handa börnum og unglingum o. s. frv. Það bar á góma í þessu stutta viðtali, að S. H. & Co flutti út 42 í hross loftleiðis til Kanada í apríl [ 1960. Ásgeir kvað líklegt, að á vegum fyrirtækisins yrði um frek- ari hrossaútflutning að ræða síðar j á árinu, en of snemmt að segja frekara um það á þessu stigi. Bóluefni — Framhald af bls. 16. talið nauðsynlegt að endurnýja þá bólusetningu á nokkurra ára fresti. Hitt bóluefnið, það sem er með lifandi vírusum, veitir hald betra ónæmi, en hefur líka í för með sér meiri aukaáhrif, fólk hefur t. d. fengið allháan hita. Til þess að draga úr hin- um óheppilegu áhrifum hefur verið sprautað með því svo- nefndu gammaglobulin,, sem er blóðvatn úr fólki, sem þegar hefur fengið mislinga. Þetta er sú bóluefnistegund, sem reynd var hér á landi. Telja bandarísk heilbrigðisyf- irvöld heppilegast að nota bæði þessi bóluefni samhliða. Þann- ig megi fá fram það haldgóða ónæmi, se; lifandi virusefnið veitir, en draga með hinu efninu úr eftirköstum bólusetningar- innar. Bóluefnið með dauðu vírus- unum er þegar til í nógu magni í Bandaríkjunum og er notkun þess hafin. Framleiðsla á hinu efninu er erfiðari og verður það ekki til á markaðnum fyrr en eftir nokkra mánuði. Rætt um Færeyjuflug 1 morgun fóru þrír fulltrúar F. í. utan til Kaupmannahafnar þar sem þeir munu ræða við dönsku flugmálastjómina um Fær- eyjaflugið. En Flugfélag Islands mun sem kunnugt er hefja fast áætlunarflug til Færeyja i næsta mánuði. Er nú mikill skriður að komast á öll þessi mál og sam- þykkti danska þjóðþingið að veita sem nemur um 5 milljónum ísl. kr. .til lagfæringa á flugvellinum í Vágey í Færeyjum. Jafnframt hefur færeyska landsstjórnin á- kveðið að leggja fram fé til ýmis konar endurbóta. Þeir þrír fulltrúar sem flugu ut- an í morgun til viðræðna við Dani, eru Jóhannes Snorrason, Jóhann Gíslason og Jón Ragnar Steindórs- son. Þeir munu ræða við dönsku flugmálastjórnina um ýmis tækni- leg atriði, svo sem skipulag ferð- anna, á hvaða dögum og hvað oft þær verða. En fyrst í stað verður aðeins hægt að nota tveggja hreyfla Dakota vélar í ferðirnar, þar sem flugvöllurinn í Vágey get- ur ekki tekið stærri flugvélar. Cigurður Björnsson söng fyrir ^ Tónlistarfélagið í gær og fyrrakvöld. Á efnisskránni var einn yndislegasti ljóðlagaflokk- ur Schuberts, „Malarastúlkan fagra“, og þótti öllum mikill fengur í því, en voru þó hugs- andi yfir, að svo óreyndur lista- maður legði í annað eins stór- virki, í það minnsta þeir, sem ekkerl til þekktu, og þeirra á meðal undirritaður. . En slíkur kvíði var svo sannarlega óþarf- ur, og er mér til efs að hér hafi oft heyrzt jafngóður eða betri ljóðasöngur, og eru þó hér stund um á ferðinni stærstu nöfn í þeirri grein. Sigurður hefur til að bep ótvxræðar tónlistargáf- ur. Rödd hans er ekki aftaka mikil, en felur í sér möguleika til ólíklegustu blæbrigða, sem hann beitir af langtum meiri smekkvísi en almennt getur tal- izt. Hann kann að brúa bilið á milli hárfínnrar ljóðrænu og karlmannlegra dramatískra á- taka, þannig að vel fari, og hjálpast þar að öruggur smekk- ur og haldgóð kunnátta. Reynd- ar örlaði einstaka sinnum á til- slökun, sérstaklega í tveim veik ustu lögunum, þar sem tónhæð- in var ekki alltaf tárhrein og hraðinn nokkuð á reiki. En þeir erfiðleikar, sem þar greindust, voru fljótt gleymdir, og hefði varla nokkur tekið eftir þeim, ef flutningur hinna laganna hefði ekki verið jafn snilldarleg- ur og raun bar vitni. gigurður hefur numið músík í Þýzkalandi, og mun * nú reyndar starfa við eitt af betri óperuhúsum þar. Hann hefur til- einkað sér margt það bezta úr hefðbundnum þarlendum ljóða- söng. Hins vegar sleppir hann algjörlega heimsfrægum tilfinn- ingabelgingi og hákarlavæmni, sem stundum ber alla listvið- leitni ofurliði með þessari á- gætu þjóð. Hefur hætt við, eða kannski aldrei ætlað sér að verða smá-Dieskau, en það er ein algengasta drepsótt í ljóð- söngvarahópi, norðan Alpa a. m. k. Guðrún Kristinsdóttir lék á píanóið, og held ,ég að við eig- um ekki betri undirleikara til hér á landi, og fáa einleikara, ef út í það er farið. Ákveðið hefur verið að al- mennum stjórnmálaumræðum, Eldhúsdagsuihræðum, verði út- varpað frá Alþingi hinn 17. og 18. þessa mánaðar, miðvikudag og fimmtudag eftir páska, og mun þingstörfum ljúka í lok þeirrar viku. Þá verður þing rofið og eiga kosningar að fara fram lögum samkvæmt innan tveggja mánaða frá þingrofi. Komið hefur fram að kosninga- dagurinn verði sunnudaginn 9. júní. Ef þing væri eigi rofið færu núverandi þingmenn með umboð sín til haustsins, en þeir voru kjömir til fjögurra ára í haustkosningunum 1959. Þing það, er nú situr, hefur verið sérlega starfsamt og af- kastamikið og aldrei meira ann- ríki en síðustu vikumar. Þing- fundir munu verða fram á mið- vikudag fyrir páska og hefjast að nýju á þriðja í páskum og þinghaldi ljúka að líkindum laugardaginn 20. þessa mánað- ar. Viku síðar hefst flokksþing Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík og undirbúningur kosning- anna almennt. KEÍBia I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.