Vísir - 04.04.1963, Blaðsíða 6
V1S IR . Fimmtudagur 4. apríl 1963.
6
Hraða verður ákvörðun um stóriðju
1 Heimdallarferð um siðustu
helgi til Akranes flutti Bragi
Hannesson bankastjóri fróðlegt
og greinargott erindi um stór-
iðju á fslandi.
Fram kom í ræðu Braga að
vart má draga lengur að ákveða
hvort hér skuli rísa upp stór-
iðja og þá hvernig afla skuli
fjármagns til hennar.
Stafar það fyrst og fremst
vegna síaukinnar samkeppni við
ónýtar auðlindir, t. d. í Afríku.
Einnig vegna hugsanlegrar til-
komu annarrar orku, t. d. kjarn-
orkunnar, sem mundi gera okk-
ar ódýru orku harla verðlitla.
Á skrifstofu Braga Hannes-
sonar leggjum við fyrir hann
nokkrar spurningar.
Er það ekki vatns- og jarð-
hitaorkan, sem beizluð myndi
til stóriðju?
Jú, vatns- og jarðhitaorka eru
þau náttúruauðæfi, sem fremur
öðru renna stoðum undir það, að
við gerumst iðnaðarþjóð. Virkj-
anleg vatnsorka er talin vera
yfir 25.000 millj, kwst á ári, en
þar af hefur aðeins verið virkj-
uð um 106.000 kwst í vatns-
orkuverum. Talið er, að fsland
sé eitt mesta jarðhitaland ver-
aldar, en við höfum aðeins nýtt
lítinn hluta þessara landkosta
til upphitunar híbýla og gróður-
húsa. Auk þess má nota jarð-
hitaorku cil raforkuvinnslu, alls
konar efnaiðnaðar og matvæla-
framleiðslu, en annars eru rann-
sóknir á jarðhitaorkunni frem-
ur skammt á veg komnar.
Um hvaða leiðir er að velja
til að fá fjármagn til uppbygg-
ingar stóriðju hér á landi?
Til stóriðju þarf bæði orku-
ver og verksmiðju. Kostnaður-
Bragi Hannesson.
inn er geysimikill og er augljóst
að fjárhagnið verður að koma
erlendis frá. Er þá um þrjár
leiðir að velja.
1. Að erlendir aðilar reisi og
eigi bæði orkuverið og verk-
smiðjuna.
2. Að íslendingar byggi og eigi
orkuverið og verksmiðjuna,
en fái að sjálfsögðu lán að
utan til framkvæmdanna.
3. Að erlendir aðilar eigi verk-
smiðjuna að mestu eða öllu
leyti, en íslendingar orku-
verið.
Þriðja leiðin er sú, sem álitin
er hafa flesta kosti og byggjast
athuganir stóriðjunefndar á
þessari leið. Benda má á, að
Norðmenn hafa valið þennan
kost.
önnur leiðin virðist fljótt á
litið girnileg, en hún hefur þó
marga vankanta.
Það hlýtur að vera varasamt
að festa svo mikið fjármagn
sem hér um ræðir í einu fyrir-
tæki. Vinnsla og sala alumini-
ums, sem helzt kæmi til að fram
leiða, er í höndum fárra og
stórra fyrirtækja, sem eru mjög
mikils ráðandi á markaðnum og
gætu á margan hátt gert okkur
erfitt fyrir um sölu á eigin fram
leiðslu aluminiums.
En stöndum við íslendingar
ekki verr að vígi til aluminium-
framieiðsiu vegna fjarlægðar frá
mörkuðum og hráefnaskortsó
Það er ekki svo mikið hrá-
efnismagn, sem þarf til slíkrar
framleiðslu, aðalatriðið er ódýr
orka. Reiknað hefur verið út að
okkar orka er heldur ódýrari
en t. d. í Noregi, svo að fjar-
lægðin ætti ekki að há okkur.
Hvaða á kemur helzt til
greina aS virkja?
Rannsóknir benda helzt til
Þjórsár. Það er líka mikið at-
Þór
Gunnar
Magnús
Bjami
i
Birgir
RáSstefna m S/alfstæðis-
flokkinn um næstu helgi
N.k. laugardag og sunnudag
efnir Heimdallur, F.U.S., til
ráðstefnu um Sjálfstæðisflokk-
inn og stefnu hans í einstökum
málafiokkum. Ráðstefnan hefst
með hádegisverðarboði mið-
stjómar kl. 12,30 n.k. laugar-
dag.
Fyrri daginn verða flutt þrjú
inngangserindi.
1. Efnahagsmálastefna Sjálf-
stæðisflokksins. Frummæl-
andi: Már Elfsson.
2. Utanríklsstefna Sjálfstæðis-
flokksins. Frummælandi: Þór
Vilhjálmsson.
3. Sjálfstæðisfiokkurinn og vel-
ferðarríkið. Frummælandi:
Dr. Gunnar G. Schram.
Á sunnudaginn hefst ráðstefn
an kl. 2 e.h. og verður í Val-
höll við Suðurgötu.
Þá verða eftirfarandi inn-
gangserindi flutt:
4. Sjálfstæðisflokkurinn og
verkalýðurinn. Frummælandi
Magnús L. Sveinsson.
5. Viðhorf Sjáifstæðisflokksins
til samvinnu við aðra flokka.
Frummælandi: Bjami Bein-
teinsson.
6. Skipuiag og starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins. Frummæl-
andi: Birgir ísi. Gunnarsson.
Á milli inngangserindanna
verða frjálsar umræður. Vænt
anlegir þátttakendur hafi sam-
band við skrifstofu Heimdallar,
sími 18192 og 17102 og láti skrá
sig til þátttöku.
riði, að góð höfn sé í nánd og
mundi Reykjavík þá væntanlega
verða fyrir valinu.
Hverjir hafa framkvæmt þess-
ar rannsóknir, sem þú talar um?
Það eru mest íslenzkir verk-
fræðingar á vegum yfirvalda
raforkumála. Annars var nefnd
skipuð af iðnaðarmálaráðherra
Framhald á bls. 10.
Hvers vegna va'di
ég HEIMDALL?
Sig Sigurjónsson
Ungt fólk ætti að taka af-
stöðu til þjóðfélagsmálanna.
Það er mitt álit, að stefna Sjálf-
stæðisflokksins henti æskulýðn-
um bezt. Flokkurinn er frjáls-
ÁrniJohnsen
Ungt fólk verður fljótlega á |
lífsleiðinni, beint og óbeint, fyr |
ir áhrifum stjórnmála og þá er
að vega og meta, velja eða |
Framhald á bls. 10. 3
Hans Árnason
Ég valdi Heimdall af því að
Heimdallur er félag ungra sjálf-
stæðismanna.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk
ur allra stétta og skilur bezt
hið mannlega, og einstakling-
urinn vill fá tækifæri til að
njóta sín í öllu starfi.
Þegar ég gekk I Heimdall *l
hafði ég það efst í huga að <i
standa vörð um sjálfstæði og g
ákvörðunarrétt einstaklingsins j
í hugsun og verki, því að við H
Framhald á bls. 10. H
Undanfarna 5 mánuði hafa á
fjórða hundrað manns gengið
í Heimdall, F.U.S. Þessar stað
reyndir tala sínu máli og sýna
svo eigi verður um villzt að
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
trausts og stuðnings unga fólks
ins.
Æskulýðssíðan hefur Ieit-
að til fjögurra ungra manna og
kvenna og beðið þau um að
skýra lesendum síðunnar hvers
vegna þau völdu Heimdall, F.
U. S., en ekki eitthvað hinna
stjórnmálafélaganna?
lyndur, og hefur góð málefni á
stefnuskrá sinni. Hann vill jafn
rétti í þjóðfélaginu, sem er mjög
mikilvægt ef vel á að fara.
Hann vill að kraftar einstakl-
ingsins fái að njóta sín til
fullnustu, og hann vill að í land-
inu sé trúfrelsi og athafnafrelsi.
Ég gekk í Heimdall félag
ungra Sjálfstæðismanna vegna
þess, að það vinnur að þeim
hugsjónum sem ég er fylgjandi.
| Vilborg Bjarnadóttir
Nú á tímum er um tvær stefn
ur að ræða í þjóðmálum. Ann-
ars vegar kommúnisminn, al-
ræði ríkisins með þeirri of-
stjórn, kúgun og höftum sem
honum fylgja. Hins vegar stefnu
Sjálfstæðisflokksins, einstakl.-
frelsi, málfrelsi athafnafrelsi,
sá skilningur að hver eigi að
hafa leyfi til þess að vera sæll
I á sína vísu. Fyrir mig er valið
létt og kýs ég Heimdall og
Sjálfstæðisflokkinn.