Vísir


Vísir - 04.04.1963, Qupperneq 4

Vísir - 04.04.1963, Qupperneq 4
4 V í t« i R . Fimmtudagur 4. apríl 1963. Fyrir nokkru var haldin mikil listsýning I Moskvu, þar sem það gerðist í fyrsta skipti, að ungir menn dirfðust að sýna málverk með litilsháttar abstrakt tilhneigingum. Þeir héldu að það væri óhætt vegna aukins frjálsræðis. En Krúsjeff kom á sýninguna og birti mönnum með nokkrum ummælum afstöðu sína og kúgunarlöngun yfir listinni. Hér blrtir Vislr merkilegt skjal útdrátt úr yfirlýsingum Krjúsjeffs og svfvirðingum hans um hina ungu menn. Krúsjeff hafði farift skamma stund um sýn« ingarsalina, þegar hann nam staðar fyrir framan málverk eftir Falk, það var Uppstilling með abstrakt-tilhneigingu. Krúsjeff sagði um leið og hann benti á mynd- ina: — Um þetta er ekkert annað að segja en að myndin er hreint svínarí. Það er erfitt að skilja hvað þessi Uppstilling á að þýða. Þá er mér gefið f skyn að ég hafi ekki náð þeim þroska að skilja þetta — það eru þau rök sem fjandmenn menningar okkar bera fyrir sig. .... Mér hefur verið sagt, að þegar kona nokkur gifti sig fyrir skömmu hafi henni verið gefið málverk af einhverju sem líktist sltr- ónu. Það var ekkert nema nokkr ar skítugar gular línur, sem litu út, þið verðið að afsaka orð- bragðið, eins og barn hefði ver- ið að gera stykkin sín á léreftið, meðan móðirin hefði skroppið frá, og síðan hefði barnið kám- að skítnum um léreftið með höndunum. Nokkru síðar hélt Krúsjeff á- fram: — Fólk segir, að ég sé á eft- kvaðst heidur ekki skilja hann. j^rúsjeff hélt nú áfram göngu sinni um salinn fram hjá mörgum natúralískum málverk- um, sem sýndu landslag og sveitalífsmyndir líkt og ljós- myndir væru og lét ítrekað í ljós ánægju sína og aðdáun á þessum myndum. Svo kom hann að málverki eftir Nikonov sem heitir Jarðfræðingamir og mælti þá: —- Hann getur málað og selt þessa hluti, ef hann vill, en við höfum enga þörf fyrir þetta. Má ég spyrja ætlast þeir kannski til að við tökum þetta upp í kommúnismann? Ef rikið hefur borgað þetta málverk, þá krefst ég þess, að kaupverðið verði dregið frá launum þess rfkis- starfsmanns sem hefur ákveðið þau kaup. Gerið svo vel að semja tilkynningu um að ríkið hafi ekki áhuga á að kaupa slfk málverk.......En hver hefur pantað þetta málverk? Og hvers vegna? Það á ekki heima á þessari sýningu. Málverk eiga að gegna því hlutverki að hvetja alþýðuna til stórra átaka. Þau eiga að vekja andagift með mönnum. En hvað er þessi mynd? — Fífl sem ríður öðru fífli. — Nei við höfum enga þörf fyir slíkt málverk. Meðan fólk- ið styður oss og hefur traust til vor, munum vér standa staðfastir um hugmyndir vorar Kynvillingar, ir tímanum án þess að vita það og að nútfma listamenn okkar muni hljóta viðurkenningu eftir 100 ár. Ég veit ekki hvað gerist á næstu 100 árum, en það er nauðsynlegt að við se'tjum list- inni vissar reglur til að lifa eftir og við verðum að nota blöðin og fjárveitingavaldið til þess að framfylgja þeirri stefnu. Við skulum ekki láta eyri af peningum ríkisins fara í listrænt svindl. Meðan ég er forsætisráð- herra, munum við styðja ó- svikna list. Við munum ekki gefa eyri fyrir málverk sem fífl mála. Mankynssagan skáT vefa dómari okkar. Og nú hefur sag- an gert oss að leiðtoga þessarar þjóðar og vér'berum ábyrgð á öllu þvf sem gerist með henni. Vér munum þess vegna við- halda strangri afstöðu gagnvart listinnú Ég skal annars rifja það upp, að þegar ég kom til Bretlands og hitti Anthony Ed- en þáverandi forsætisráðherra Breta vorum við alveg sam- mála. Hann sýndi mér málverk eftir nútfma abstrakt málara. Ég sagði að ég skildi það ekki og hann sagðist ekki heldur skilja það og spurði hvemig mér líkaði við Picasso. Ég sagði að ég skildi ekki Picasso og Eden um list. Og ef málverk eins og þetta sjá dagsins ljós sýnir það aðeins, að vér höfum ekki unnið starf okkar nógu vel. Sama gildir um menntamálaráðu- neytið og hugsjónanefnd flokks- ins. Jgnn gekk Krúsjeff fram hjá nokkrum málverkum gerðj um í social-realfskum stíl og lét í ljósi gleði sfna yfir þeim, sagði að þær bæm með sér uppsprettu æskunnar o. fl. Síðan kom hann inn í deild þar sem mikið var af formalísk- um og hálfabströktum myndum. Nokkrir máláfanna vom þar sjálfir viðstaddir við myndir sfnar. Þar mælti hann m. a.: — Hvað á þetta eiginlega að þýða? Þið haldið að við gömlu mennimir skiljum ykkur ekki. En við álítum að við eyð- um peningum í ykkur til einsk- is. Emð þið kynvillingar eða heilbrigðir menn? Ég skal nú vera alveg heiðarlegur við ykkur: — Við munum ekki eyða eyri lengur f list ykkar. Þið skuluð bara gefa mér skrá yfir þá ykkar sem vilja hverfa úr landi til hins svokallaða „frjálsa heims“. Við skulum þá gefa ykkur vegabréf strax á morgun, svo þið getið snautað burt. Framtíðarmöguleikar ykk- ar hér eru engir. Það sem þið hafið hengt upp hér er einfald- Iega botnlaus fjandskapur við Sovétríkin. Þetta er siðspillt. List getur göfgað einstaklinginn og vakið hann til verka. Og hvað hafið þið gert hér? — Hver hefur t. d. málað þessa mynd? Ég vil fá að tala við hann. Til hvers er hægt að nota svona mynd? Til að skreyta kamar? TVÍálarinn Zheltkovsky hafði málað þessa mynd og var hann nú neyddur til að koma fram þó hann væri skjálfandi á beinunum. Krúsjeff: — Þú lítur út eins og myndarlegur ungur maður, en hvernig geturðu fengið þig til að mála svona? Við ættum að færa þig úr buxunum og setja þig á beran rassinn á brenninetlu, þangað til þú hefur viðurkennt mistök þín. Þú mættir skammast þfn, Ertu eðlilegur maður? Langar þig að ferðast til útlanda, — þá skaltu bara fara, þú skalt fá ókeypis farseðil til landamæranna. Þá geturðu lifað þama úti í hinum „frjálsa heimi’". Læra í skóla kapitalistanna, en við munum ekki eyða einum einasta eyri í svona drullusokk. Við höfum rétt til að senda þig út f skóg- ana til að höggva við, þangað til þú ert búinn að endurborga peningana, sem rikið hefur eytt í þig. Þjóðin og ríkisstjórnin hefur gert ósegjanlega mikið fyrir þig og þú þakkar fyrir þig með þessum óþverra. TV'æst fyrir framan málverk eftir Gribkov: — Hvað er þetta? Gribkov: — Það er mynd sem á að tákna byltingarárið 1917. Krúsjeff: — Bull og vitleysa. Hugsaðu þér bara hvað ríkið swm hefur eytt miklu í þig — og svona ferð þú að þvf að endur- gjalda það. Mín skoðun er sú að þið mættuð allir fara til helvítis til útlanda. Þetta er ekki annað en list fyrir apaketti. Þá sneri Krúsjeff sér að ein- um listastjóra ríkisins: — Félagi Ilitsév, ég er furðu lostinn yfir því hvernig þið hafið unnið . í þessum málum. Samþykkið þér þetta? Eruð þér hræddir við að gagnrýna? Mér er sagt að nokkrir af rithöfund- um okkar hrósi þessum mynd- um og kaupi þær. Það er þá vegna þess, að þeir fá alltof há höfundarlaun. Rithöfundar okk- ar fá of mikil höfundarlaun og kasta peningum í kringum sig. Núf gengur Beljútín, einn af foringjum formalistanna fram. Krúsjeff: — Hver ert þú? Hverjir eru foreldrar þínir? Frh. á bls. 13 hrópaði KRÚSJEFF og réðist með ofstopa á ungu iistamennina

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.