Vísir - 08.04.1963, Qupperneq 1
VESIR
53. árg. — Mánudagur 8. apríl 1963. — 81. thí.
IISTAMENN FÁ Á
ÞRIÐJU MILLJÓN
Tónlistarviðburður:
MESSÍAS íluttur í gær
Hið kirkjulega meist-
araverk Messias eftir
Handel var flutt í Há-
skólabíói í gær af kóm-
um Fílharmónía, Sinfón-
íuhljómsveit íslands og
og einsöngvurum undir
stjóm dr. Róberts Abra-
hams Ottóssonar.
Einsöngvarar í verkinu voru
frú Álfheiður Guðmundsdóttir,
sem kom nú fyrst fram opinber-
lega I stórverki, frú Hanna
Bjamadóttir, Kristinn Hallsson
og Sigurður Björnsson, sem öll
eru kunnir söngvarar. í Fíl-
harmoníukóriium eru 80 manns
Meðal viðstaddra á þessum tón-
Framhald á bls. 5
I útvarpsþætti f gærkvöldi
var rætt um afstöðu ríkisvalds-
ins til lista.
í þættinum kom fram hörð
gagnrýni á það að listamanna-
laun skuli ekki vera veitt hærri
frá rfkinu en nú er. t því tilefnl
hefir Vfsir aflað sér upplýsinga
um upphæð listamannalauna
undanfarin ár. Kemur i ijós að
styrkir til listamanna hafa nær
tvöfaldast frá því 1960 og fjór-
faldast frá þvf 1950. Listamanna
Iaunin em nú á þessu ári alls
nokkuð á þriðju milljón króna,
eða 2.134 þús. krónur. Undan-
farin ár hafa þau verið sem hér
segir:
1950: kr. 519.000
1960: kr. 1.260.000
1962: kr. 1.550.000
1963: kr. 2,134.456
Listamenn sjálfir hafa veriö
beðnir að gera tillögur um það
hvaða skipulag þeir telja hent-
ugast um úthlutun fjárins. Þær
tillögur hafa ekki borizt mennta
málaráðuneytinu. Er þvf nú-
verandi úthlutunarkerfi fram-
leng um eitt ár, þ. e. úthlutunar-
nefnd sem alþingi kýs.
ÞJÓFAR
Frá flutningi á Messfas f Háskólabfói f
TEKNIR
í fyrrakvöld náði lögreglan í
þrjá þjófa sem skömmu áður höfðu
stolið talsverðu af peningum og
lítilsháttar sælgæti f verzluninni
Esjan á Kjalarnesi.
Piltarnir voru fjórir saman í
bifreið, allir eitthvað undir áhrif-
um nema ökumaðurinn. Lögðu
þeir leið sína úr Reykjavík upp á
Kjalarnes, en námu staðar við
verzlunina Esjan, sem er við Vest-
Framh. á bls. 5.
TF-Lóa kemur
á morgun
T.F.-LÓA, hin nýja flugvél Bjöms
Pálssonar, kemur að forfallalausu
til Reykjavikur á morgun.
Kona Björns ræddi við hann síð-
degis í gær og var hann þá kominn
til Prestvfkur. Þar þurfti hann að
láta vigta flugvélina hjá Scottisch
Aviation o. s. frv. Fullnaðarákvörð
| un varðandi burtförina frá Skot-
; landi var Björn ekki búinn að taka,
! en til mála gæti komið að hann
; flygi til Hornafjarðar í kvöld, og
j svo „í rólegheitum" til Reykjavfk-
ur á morgun
Þjóðviljinn rangfær-
ir ummæli Einars
ræða lúalega fölsun ellegar
réttan skilning á einföldum
orðum.
Einar flutti langa ræðu f til-
efni frumvarps síns um að
tryggja Islendingum eignarrétt
á íslandi, en að hans áliti þarf
til þess stjórnarskrárbreytingu.
Fór hann mörgum orðum um
hættu þá sem af útlendingum
stafaði, vék síðan að EBE og
segir þá orðrétt:
„Mönnum brá nokkuð við, og
menn sáu þéssa hættu skýrar
Framh á bls 5.
Vísir birti á fimmtu-
daginn frétt þess efnis,
að Einar Olgeirsson
hefði lýst því yfir á
Alþingi að Efnahags-
bandalag Evrópu væri
ekki á dagskrá hér á
landi fyrr en árið 1966.
Á laugardaginn bregður
svo við að Þjóðviljinn
birtir yfir þvera forsíðu
rosafrétt um „lúalega
tilraun Vísis til að falsa
ummæli Einars Olgeirs-
sonar“. Er þar átt við
fyrrnefnda frétt Vísis
Vegna þessara stóryrða Þjóð-
viljans, er rétt að birta þann
kafla úr ræðu Einars Olgeirs-
sonar sem þetta varðar. Geta
þá allir sem vilja dæmt þar
um, hvort heldur sé um að
SiglufjarðarskarB
opnaS á hádegi
Siglufirði í morgun.
Siglufjarðarskarð verður opnað
til umferðar um hádcgið í dag og
eru þess ekki dæmi að það hafi
verið opnað jafn snemma að vori
áður.
Byrjað var að ryðja skarðið s.l.
fimmutdagsmorgun og unnu að
því tvær ýtur, sín hvoru megin
skarðsins. I" gær náðu þær saman,
en þá var eftir að hreinsa betur
til og átti því verki að vera lokið
um hádegið í dag, þannig að þá á
bifreiðaumferð um Siglufjarðar-
skarð að geta hafizt.
Siglufjarðarskarð er eini fjall-
vegurinn á landinu sem hefur ver-
ið lokaður af völdum snjóa und-
anfarið. Snjór er yfirleitt mjög
lítill og ekki nema í efstu fjalla-
brúnum. Þó telja Siglfirðingar enga
fyrirstöðu á því að haida skfða-
landsmótið, telja að snjór sé nú
álíka mikill eða litlu meiri heldur
en á sumrin þegar þeir hafa efnt
til svokallaðs „Skarðsmóts“. ”
Sem dæmi um það hve veturinn
hefur verið snjóléttur má geta
þess að Lágheiðin — milli Fljóta
og Ólafsfjarðar — sem venjulega
er ófær frá því snemma á haust:
in og langt fram á vor, hefur að
eins verið lokuð í hálfan mánuð
á öllum vetrinum.