Vísir - 08.04.1963, Síða 2
2
V1 S IR . Mánudagur 8. apríl 1963
' Staðan og
| markhæstu
I leikmenn j
Þessi lið unnu íslandsmeistara-
titil 1963 í hinum ýmsu flokkum:
Páskar I Jósepsdal
Lánið lék við KR5 sem
vann Þrótt naumlega
Þrótfur í 2. deifld eftir ósigur
fyrir KR ó síðustu mínútu
Baráttan milli KR og Þróttar í
gærkvöldi að Hálogalandi var æð-
isleg, en liðin kepptu um sæti í 1.
deild að ári liðnu. Þróttur hafði
yfir mestallan leikinn, en tapaði
öllu „ternpói" á síðustu 10 mín-
útum leiksins og tókst KR að
krækja í sigurinn naumlega en
Þróttur var mjög óheppinn síð-
ustu mínúturnar, góð færi á ltnu
í stangirnar og vítakast varið
nokkru fyrir leikslok.
KR byrjaði betur leikinn og
hafði 3:1 yfir. Þróttur jafnaði fyrst
í 6:6, en hafði stðar þar til í 10:10.
Þróttur náði brátt 3 mörkum yfir
10:7 en , hálfleik var staðan 14:
12 fyrir Þrótt.
1 stðari hálfleik hélt svipaðri
forustu Þróttar áfram og var leik-
ur Þróttar öllu betri en KR, en oft
brá fyrir ágætum tilþrifum. Þrótt-
ur hafði yfir 19:16 og 20:17, en
þá voru eftir 9 mínútur til leiks-
loka, og þá missti Þróttur tökin,
enda var óheppni þeirra ekki tij
þess fallin að hvetja þá til dáða.
Reynir Ólafsson skoraði 20:20, en
laglegt skot frá Jóni Björgvinssyni
náði aftur forystunni fyrir Þrótt
21:20, en skömmu síðar fengu
Próttarar gott færi til að ná 2
marka forystu aftur, en vítakast
frá hinum ágæta leikmanni Þróttar
Axel Axelssyni lenti beint í mark-
vörð KR, Guðjón Ólafsson, og
það má segja að þetta hafi endan-
lega gert út um ósigur Þróttar, en
Karl og Reynir bættu 3 mörkum
við til að sigra Þróttarana og þann-
ig verjast falli KR í 2. deild.
Leikurinn var allur spennandi
og skemmtilegur og voru áhorf-
endur greinilega á bandi Þróttar
og urðu þeim vonbrigði að sigri
KR. Beztu menn KR voru að venju
Karl Jóhannsson og Reynir Ólafs-
son, en Guðjón markvörður greip
inn í með að verja vítakast á
réttri stundu; vítakast, sem virtist
alveg hafa gert út af við Þrótt-
Frh. á bls. 4.
Skíðadcild Ármanns skipuleggur
skíðadvöl í Jósepsdal um páska-
hátfðlna, ásamt skíðakennslu alla
daga og skemmtikvöldvöku í
skíðaskála Ármanns.
Skíðafæri er ágætt í Bláfjöllum,
en þangað er stutt að fara frá
skíðaskálanum í Jósepsdal. Um
þessa helgi er verið að lagfæra
veginn f Jósepsdal. Þannig að allir
bílar munu geta ekið að skálanum.
Ferðir frá Rcykjavík (BSR) í
Jósepsdal verða sem hér segir:
Miðvikudag kl. 18. og kl. 20.
Fimmtudag kl. 10,
Föstudag kl. 10.
Laugardag kl. 14.
Sunnudag kl. 10.
Mánudag kl. 10.
Skiðamenn úr Ármanni munu
annast skíðakennslu þar efra alla
dagana, þannig að hverjum og
einum gefst gott tækifæri til að
auka skíðakunnáttu sína. Skíða-
færi er hvergi betra sunnanlands
en í Bláfjöllum, og þar eru skíða-
brekkur við allra hæfi. Kvöldvök-
ur verða á hverju kvöldi í skíða-
skála Ármanns.
Dvalarkostnaði er mjög í hóf
stillt, og verða dvalarkort afhent
í skrifstofu Ármanns, Iþróttahús-
inu við Lindargötu, f kvöld og
annað kvöld kl. 20—22.
Mfl. karla FRAM
Mfl. kvenna ÁRMANN
1. fl. k. FRAM
1. fl. kv. VALUR
2. fl. k. FRAM
2. fl. kv. ÁRMANN
3. fl. k. KR
Ármann vann fyrir nokkru íslandsmeistaratitilinn f handknattleik kvenna. Myndin sem hér fylgir er af meistaraliðinu tekin fyrir utan
hið gamla íþróttahús að Hálogalandi. Ármannsstúlkurnar unnu 4 af leikjum sínum en í eitt sinn varð jafntefli, en það var gegn Vikings-
stúlkunum. Á myndlnni eru þessar stúlkur talið frá vinstri. Fremri röð: Sigriður Kjartansdóttir, Svana Jörgensdóttir, Halldóra Páisdóttir,
Arndís Gísladóttir, Díana Magnúsdóttir, Steinunn Pálsdóttir. Aftari röð: Kristín Guðbjörnsdóttir, Jóna Þorláksdóttir, Sigurveig Lúðvíks-
dóttir, Ása Jörgensdóttir, Sigurður Bjarnason, þjálfari.
Úrslitatölur íslandsmótsins í
handknattleik:
Fram 10 9 0 1 330—236 18
Vík. 10 7 1 2 235—224 15
FH 10 6 0 4 273—244 12
ÍR 10 3 1 6 267—294 7
I<R 11 3 0 8 271—300 6
Þrótt. 11 2 0 9 243—321 4
KR og Þróttur léku einum leik
Fleiri en hin liðin.
Markhæstu menn íslandsmóts-
ins urðu:
Ingólfur Óskarsson, Fram 121
Gunnl. Hjálmarsson, ÍR 109
Reynir Ólafsson, KR 82
Karl Jóhannsson, KR 80
Axel Axelsson, Þrótti 72
Guðjón Jónsson, Fram 49
Birgir Björnsson, FH 47
Rósmundur Jónsson, Vlking 44
Ágúst Oddgeirsson, Fram 42
Haukur Þorvaldsson, Þrótti 41
Þórður Ásgeirsson, Þrótti 40
örn Hallsteinsson, FH 40
Engir erfiðleikar hjá Fram
í „úrslitaleiknum"
i
LJnnu FH með yfirburðum
Fram átti ekki erfitt með FH 'í
„úrslitaleiknum" i gærkvöldi á
íslandsmótinu í handknattleik.
Framarar réðu lögum og lofum á
vellinum og sigruðu á öllum svið-
um, enda vart nema vonlegt, svo
illa sem FH-liðið er til reika eftir
utanförina til Spánar, Frakklands
og Þýzkalands.
Fram náði þegar traustu for-
skotið og hafði 9 mörk yfir í hálfl.,
19:10, en í síðari hálfl. helzt þetta
forskot lengi vel, en undir lokin
gliðnaði aftur sundur með liðunum
og vann Fram öruggan sigur, 38:
26.
Framarar reyndu ekki mikið á
sig að vinna þetta Hafnarfjarðar-
lið, enda þótt nokkur harka væri
f leiknum lengi í síðari hálfleik.
Ingólfur skoraði manna mest að
venju í Framliðinu, en Sigurður
Einarsson var bezti maður liðsins.
Birgir var beztur Hafnfirðing-
anna, en Páll Eiríksson og Kristján
Stefánsson sýndu oft skemmtileg
tilþrif. Kristófer markvörður Hafn-
firðinga frá því fyrir nokkrum ár-
um, var nú aftur á sínum stað, en
ekki með nándar nærri eins góð-
um árangri og oftast fyrr.
Páskadvöl
I Skálafelli
Dvalarkort verða afhent í
. kvöld kl. 8—10 í félagsheimili
K.R.
Sæmilegur skíðasnjór er nú
| í Skálafelli. í Norðurhlíðinni
I er eins og ávallt á vorin nægur
, snjór og sólskin.
í dvalarkortunum er innifalið
I allt fæði og gisting. (
Skíðakeppnir og kvöldvökur )
við hvert tækifæri.
STJÓRN
SKÍÐADEILDAR KR.
ta .. ,'jjsa