Vísir - 22.04.1963, Blaðsíða 5
t
V í S IR . Mánudagur 22. apríl 1963.
Hofði hníf
að barefli
Nokkuð bar á stympingum og
handalögmáli manna á meðal, eink-
um í miðbænum, aðfaranótt sunnu-
dagsins. Meðal annars höfðu tveir
áflogaseggir, sem lentu í rysking-
um hjá Hreyfilsstöðinni við Kalk-
ofnsveg, dottið á rúðu £ stöðvar-
húsinu og brutu hana. Lögreglan
var kvödd á vettvang, sem flutti
mennina í fangageymslu.
Sömu nótt komu þrír menn inn
í lögreglustöðina með þann fjórða
milli sín og kváðust þeir hafa lent
í ryskingum við hann, en hann
tekið upp hníf. Ekki beitti hann
samt hnífnum sem lagvopni, held-
ur sem barefli. Fengu þeir afvopn-
að manninn og yfirbugað og fluttu
hann í lögreglustöðina.
Drukkmn —
Framhald af bls. 1.
högg, en ekki alvarlegt. Ökumað-
ur Skodabifreiðarinnar reyndist
drukkinn og var hann færður til
blóðrannsóknar.
Báðar bifreiðarnar eru stór-
skemmdar og varð Vaka a.m.k. að
hirða Volvo-bifreiðina, en Skoda-
bifreiðin var einnig stórskemmd.
Mér er fyrir ö/lu a$ Þórunn
sé hamingiusöm
vur skýringm sem Askennsy gnf á ákvörðun sinni
Ensku blöðin hafa skrif-
að mikið bæði fréttir og
greinar um þá ákvörðun
Askenasys píanóleikara
að setjast að í Englandi.
Birta þau m. a. langar
frásagnir af blaðamanna
fundinum sem Askenasy
hélt í Liverpool.
Það virðist álit blaðanna, að
unn Jóhannsdóttir ,sem hafi i
ýtt undir hann að flytja til j
Vesturlanda. Hún hafi ekki un-
að sér í Rússlandi, þrátt fyrir
það, að þau hafi verið búin að
fá nýjan Volgabíl.
Þá greina þau frá því, að Þór-
unn eigi von á barni £ nóvem-
ber n. k. og hafi það m. a. ráð-
ið miklu að þau ákváðu að
flytjast vestur.
Telja ensku blöðin, að það
sýni einlæga ást Askenasys til
konu sinnar,\ að hann hafi á-
kveðið að gera eins og hún
vildi, þv£ að erfitt muni hafa
verið fyrir hann að taka þessa
ákvörðun. Skýrðu þau frá því,*
að móðir Askenasys hefði
brugðið í brún, er hún frétti af
ákvörðun þeirra og faðir hans
hefði orðið mjög áhyggjufullur.
Askenasy sagði á blaða-
mannafundinum: „Ég hef á-
kveðið að setjast að £ Englandi
fyrir konu mína. Mér er það
fyrir öllu að hún sé ham-
ingjusöm".
Askenasy sagði ekkert vit
hafa á stjórnmálum og hefðu
stjórnmálaskoðanir engin áhrif
haft á þessa ákvörðun. „Auð-
vitað elska ég Rússland enn.
Þeir hafa gefið mér tækifæri til
að iðka pianóleik, en nú er eg
orðinn 25 ára og braut m£n sem
pianóleikara er opin. Mig langar
til að verða alþjóðlegur kon-
sertleikari og ég vil leika hvar
sem er i heiminum, líka i Rúss-
landi.
DAILY MA
-s>’
liggur meðvitund'■
arlaus eftir árás
Urukkinn maður réðist harkalega
á hjón á Akureyri aðfaranótt s. 1.
laugardags, hrinti þeim báðum nið-
ur stiga og var maðurinn ekki kom
inn til meðvitundar £ morgun. Árás
armaðurinn var handtekinn og er
hann enn i gæzluvarðhaldi.
Síðastliðið laugardagskvöld kom
drukkinn maður I heimsókn til hjón
anna Kristdórs Vigfússonar og
Kristínar konu hans i Aðalstræti 7
á Akureyri. Þegar hann hafði dval
ið nokkra stund hjá þeim hjónum
og komið var fram yfir miðnætti,
kváðust þau vilja ganj»a til náða
og báðu gestinn vinsamlega að yfir
gefa húsið.
Maðurinn brást illa við þessari
málaleitan og réðist án frekari um
svifa á Kristdór. Eftir nokkur átök
þeirra í milli tókst gestinum að
hrinda Kristdóri niður kjallara-
stiga, en við það hlaut Kristdór
mikið höfuðhögg, þannig að hann
Ók á hús—>
Framhald al bls. I.
um út úr bifreiðinni, því hann var
klemmdur undir stýrinu. Var stýr-
isstöngin í sundur og stýrishring
urinn brotinn og beyglaður. Urðu
menn að losa sætið til að ná öku-
manninum út. Hann var fluttur í
slysavarðstofuna fyrst og síðan í
Landsspítalann. Þar var verið að
kanna meiðsli hans síðast þegar
blaðið vissi og var hann þá enn
meðvitundarlaus. Bíllinn er ónýtur
talinn.
missti meðvitund og var enn með-
vitundarlaus í morgun. Ekki lét
gesturinn sér þessa aðför nægja
heldur réðist einnig á Kristínu
konu Kristdórs og hrinti henni líka
niður stigann. Kristín tognaði illa
á handlegg, auk þess sem hún
marðist og skrámaðist og loks fékk
hún taugaáfall.
Þau hjónin voru strax flutt í
sjúkrahús og þar liggur Kristdór
ennþá. Læknar telja sig ekki geta
sagt um meiðsli hans ennþá því
þau eru ekki að fullu rannsökuð.
En enda þótt hann sé ennþá með-
vitundarlaus töldu læknar í morgun
að honum myndi líða eitthvað bet-
ur. Hins vegar var Kristín kona
hans flutt heim eftir að búið hafði
verið um meiðsli hennar í sjúkra-
húsinu.
Lögreglan handtók árásarmann-
manninn strax um nóttina og hefur
hann í gæzluvarðhaldi síðan. Hann
er 22ja ára gamall, og mun eitt-
hvað hafa komið við sögu hjá lög-
reglunni áður.
Yfirheyrslur hófust í gær, en mál
ið er samt á rannsóknarstigi enn
m. a. vegna þess að Kristín, kona
Kristdórs er ennþá miður sín eftir
taugaáfallið sem hún hlaut.
Þess má geta að Kristdór er 59
ára gamall og hefur undanfarið ver
ið starfsmaður í tunnuverksmiðj-
unni á Akureyri. Vinsæll maður og
geðspektarmaður hinn mesti.
Sýning
framlengd
Málverkasýning Jóns Ferdinands
sonar í Bogasalnum hefir verið
framlengd til fimmtudagskvölds.
Er þetta fyrsta sýning þessa unga
málara o gsýnir hann þar 34 mál-
verk.
Húrra! —
t-ramnalo at hls 1
var staðnæmzt og kennararnir
kallaðir út einn af öðrum. Allar
erjur voru gleymdar og yngis-
meyjar og yngissveinar færðu
kennurum falleg blóm og fengu
að Iaunum vel útilátna kennara
kossa. Einstaka feiminn kenn-
ari gegndi ekki, þrátt fyrir
ítrekaðar tilrauni til að fá hann
út, hefu sjálfsagt skriðið undir
borð og beðið þess, að „hætt-
Fyrirsögn á grein í enska blaðinu Daily Mail, þar sem skýrt er frá því, að það hafi verið vegna Þórunnar
sem Askenasy ákvað að stíga hið örlagaríka spor.
an“ væri liðin hjá.
Stúdentaefni j þokuðust nú
niður skólabrúna og kölluðust
á við nemendur skólans, sem
eftir sitja. Fuku þar að vanda
mörg spakmæli.
Það er gamall siður að fara
heim til allra kennaranna þenn-
an dag, kalla þá út og kveðja
þá með söng og húrrahrópum.
Nú er borgin orðin svo stór að
tekið hefu verið til bragðs að
fá lánaða dráttarvélar og hey-
vagna til að flytja stúdentsefni
á milli. Eru þessar heyvagna-
ferðir jafnan hinar mestu
skemmti- og ævintýraferðir.
í kvöld halda stúdentaefni át-
veizlu mikla og dansleik. Bjóða
þeir þar kennurum upp á hinar
dýrlegustu kræsingar, bæði í
mat og dykk og má búast við
að vinátta þessara tveggja að-
ila aukist til mikilla muna, enda
ekki seinna vænna. Eiga stúd-
entar oft sínar beztu endur-
minningar frá þessu kvöldi.
Á morgun verða bækur tekn-
ar til og lestraráætlun gerð og
á miðvikudag hefst svo lestur-
inn af fullum krafti, þvi að eigi
að vera hægt að setja upp hvit-
an koll þann 15. júní, þarf að
vinna vel.
Lærleggsbrotiim
á báium fótum
Alvarlegt umferðarslys varð á
Vesturlandsvegi, í svokallaðri Borg
armýri nokkru fyrir ofan Ártúns-
brekkuna um kl. 11 i gærkvöldi.
Þar var bifreið ekið á fótgangandi
mann með þeim afleiðingum að
hann slasaðist mikið.
Bifreiðin, sem orsök var að slys
inuí var á leið upp £ Mosfellssveit
þegar slysið skeði. Þegar hún var
komin talsvert upp fyrir vegamót
Suðurlands- ‘ og Vesturlandsvegar
varð ökumaðurinn var við mann
á veginum beint fyrir framan sig.
En hann kvaðst / ekki hafa séð
manninn á veginum fyrr en hann
var alveg kominn að honum ,og
var honum ekki einu sinni ljóst
hvort maðurinn kom á móti sér
eftir veginum eða hélt í sömu
átt og bifreiðin.
Ökumaðurinn snarhemlaði, en
það dugði ekki til, árekstur var
óumflýjanlegur og maðurinn lenti
fyrir vinstri framhorni bifreiðar-
innar og kastaðist síðan í götuna.
Lá hann skammt fyrir aftan bif-
reiðina þegar ökumanni hennar
tókst að stanza og kom út. Ekki
hafði bifreiðin samt farið yfir
manninn.
Maðurinn,. sem slasaðist, heitir
Gunnlaugur Bjarnason til heimilis
að Ljósvallagötu 10 í Reykjavík.
Sjúkrabifreið sótti hann og flutti
fyrst í slysavarðstofuna en síðan
í Landsspítalann. Hann er slasaður
á höfði og auk þess brotinn á báð-
um lærleggjum. Hann var með
fullri meðvitund £ mðrgun og lið-
an hans éftiF atvikum sæmileg.