Vísir - 22.04.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 22.04.1963, Blaðsíða 10
70 V í S I R . Mánudagur 22. apríl 1963. RÆÐA INGÓLFS - ^Framhald af bls. 7. milliþinganefnd til þess að endur- skoða þessa merku löggjöf. Nefndin skilaði áliti á s.l. ári. Þar sem hér eru um mjög mikil- væga og merka löggjöf að ræða en miiliþinganefndin ekki stjórn- skipuð eða kosin af Alþingi, þótti eðlilegt að nefndarálit bún- aðarþingsnefndarinnar væri at- hugað af stjórnskipaðri nefnd. ’-''t nefnd er að ljúka störfum og hefir gert ýmsar breytingar á frumvarpi því sem fyrir lá. Breytingarnar munu tvímæla- laust vera til bóta og er þar um ýmis nýmæli að ræða til sam- ræmis við breytta búnaðarhætti. Ætla má að ný jarðræktarlög verði sett á næsta þingi, þar sem frumvarp hinnar stjórnskip- uðu nefndar mun vera fullbúið á þessu vori. Það var fullyrt í um- ræðunum í gærkvöldi, að land- búnaðarráðherra héldi jarðrækt- styrknum niðri með því að miða jarðræktarstyrkinn við skakka vísitölu. Þessi ásökun er ekki svaraverð. Þó þykir rétt að geta þess að jarðræktarstyrkur er geiddur nú eftir sömu reglum og gilt hafa síðan 1948 og vísitalan er útreiknuð eftir þeim reglum, sem í gildi eru um úrreikning hennar. Jarðræktarstyrkur hækkar veru lega til þeirra, sem hafa smærri tún með þeim lögum, sem nú ganga í gildi um breytingu á lög um um Stofnlánadeild, þar sem miðað er við hærri styrk til þeirra, sem hafa tún undir 15 ha. í stað 10 ha. áður. í sömu lögum er gert ráð fyrir að hækka bygg ingarstyrk á íbúðarhús í sveitun- um. Á það var minnzt í umræð- unum i gærkvöldi að vegamálin væru í miklu öngþveiti. Ekki var leitazt við að færa rök fyrir þess- ari fullyrðingu. Þess ber að geta, að vegafé hefir á undanförnum árum verið of lítið til viðhalds og nýbygginga. í tíð núverandi ríkisstjórnar hefir vegafé verið aukið hlutfallslega mikið meira en nokkru sinni fyrr. Þannig hef- viðhaldsfé verið hækkað um 90% síðan 1958, fé til nýbygginga um 70%, til brúargerðar um 62% og til flugvalla 99%. Talið er að viðhalds- og vegagerðarkostnað- ur hafi aukizt á þessu tímabili um 45%. Samkvæmt þessu er mun betur séð fyrir vegamálum en jvar á meðan Framsóknarmenn fóru með þau mál. r Islenzkur bnllett — Framhald af bls, 9: fólk stóð f snjó upp að eyrum, og í hverri viku héldu vinir mínin að nú hlyti ég að vera frosin í hel. En ég skemmti mér prýðilega við áð lofa og veg- sama sumarblíðuna hér, þangað til allir voru farnir að sáröfunda mig að búa í svona yndislegu landi. Ó, Iitirnir hérna — þeir verða mér ógleymanlegir. Og þetta hreina, styrkjandi loft. Ég hlakka til að segja vinum mín- um í Englandi frá öllu hér — við erum skelfing fáfróð um ykkur“. „Hefurðu eignazt marga vini hér?“ „Já, núna þekki ég orðið marga. Fyrst var ég dálítið ein- mana. Ég vildi gjarnan læra ís- lenzku, en hún er svo voðalega erfið. Og allir íslendingar virð- ast tala reiprennandi ensku!“ „Hvað heldurðu, að þú gerir svo? Ef þú ílendist þá ekki hér?“ „Ég hef öll réttindi til að verða R.A.D. prófdómari og vildi gjarnan reyna það. En ég er löngu hætt að gera framtíðar- áætlanir — lífið sér venjulega um áð breyta þeim!“ — SSB Eigi að síður geta menn verið sammála um að þörf sé á auknu fé til vegaframkvæmda. Ríkis- stjórnin vinnur að því að svo megi verða. Milliþinganefnd vinn- ur að endurskoðun vegalagnanna og má gera ráð fyrir að þeirri endurskoðun Ijúki í sumar, þannig að leggja megi fram frumvarp til nýrra vegalaga á næsta hausti. Þegar Framsóknarmenn og Komm únistar ræða um samdrátt í fram- kvæmdum, þá eiga þeir erfitt með að finng orðum sínum stað. Sann leikurinn er að aldrei hafa fram kvæmdir verið meiri f landinu heldur en nú. Aldrei hefur atvinna verið betri heldur en nú er, og horfur eru á að svo geti orðið á- fram. Rafvæðingu landsins miðar vel áfram 10 ára áætluninni mun verða lokið á næsta ári eins og ákveðið var árið 1955, þegar 10 ára áætlunin var gerð að 11 ára áætlun. Unnið er að framhalds- áætlun, sem miðast við það að allir landsmenn hafi fengið raf- orku ekki seinna en árið 1970. Gert er ráð fyrir að framhalds- áætlunin verði fullbúin á næsta hausti Verður þá unnt að gera sér grein fyrir því, hversu margir geta komizt inn á samveitukerfi. Vitað er að margir bæir eru þann ig í sveit settir að þeir geta ekki fengið raforku nema frá disel- stöðvum. I athugun er með hverj- um hætti unnt er að veita þeim aukna aðstoð vegna aðstöðumun- ar. Ríkisstjórnin hefir lagt fram þjóðhagsáætlun, sem gerð hefir verið ítarleg grein fyrir. Með Þjóð hagsáætluninni er gert ráð fyrir aukinni uppbyggingu og fram- kvæmdum eins miklum og fjár- hagskerfið og mannafli leyfir. Atvinnuvegir landsmanna ganga vel, framleiðslan eykst I landbún- aði, sjávarútvegi og iðnaði. Upp- bygging, og bætt lífskjör fyrir al- menning mun örugglega halda á- fram, ef haldið verour þeirri stefnu, sem farið hefur verið eftir síðan viðreisnin hófst. Stjórnar- andstaðan vill vlkja af þessari leið og taka upp stefnu vinstri stjórn arinnar að nýju. Nauðsynlegt er að Islendingar geri sér grein fyrir öllum stað- reyndum og Iáti eigin dómgreind ráða, þegar valið verður á milli stefnu ríkisstjórnarinnar og þeirra sem vilja rífa niður og eyðileggja þann árangur, sem náðst hefur í efnahagslegri uppbyggingu þjóð- arinnar. „ VW—’62 115 þús. VW—’57 70 þús. VW-rúgbrauo ’62 120 þús. Opel Kapitan ’60 180 þús. Chevrolet ’55 100 þús. Chevrolet ’57 100 þús. Ford '60 Galexie 200 þús Skipti Ennfremur hundruð ann- arra bifreiða með ýmis- konar greiðsluskilmálum. BIFREIÐ ASALAN Símar 11025 og 12640 HÖFUM TIL SÖLU: Fjölbreytt úrval jeppa-bifreiða, þ. á m. Land-Rover og Austin-Gipsy 1962. OPEL CARAVAN, REKORD og KAPITAN flestar árgerðir MERCEDES-BENZ, flestar árgerðir. VOLKSWGEN, flestar árgerðir. VOLVO ?958, ekinn 45 þús. mílur. UNIMOG 1954 með glæjum. Kr. 50 þúsund. HÖFUM KAUPENDUR A BIÐLISTA AÐ: FORD TAUNUS. FORD ANGLIA og PREFECT. VOLKSWAGEN 1958—1961. Látið RÖST annast fyrir yður viðskiptin, það er beggja hagur. Komið og skráið bifreiðina til sölu hjá RÖST, því þangað beinast viðskiptin í vaxandi mæli. Allt gert til að þóknast viðskiptavinunum. BIFREIÐAS ALAN RÖST Símar 11025 og 12640 Við breytum bílum í peninga og peningum i bíla. Komið - Skoðið - Seljið - Kaupið Landrover ’62 benzín Opel Capitan ’59 Taunus Station ’58 Chervrolet ’58 orginal Chervrolet Station ’58 Renau Daulphin ’61 Ford ’56 2 dyra og Pontiac ”55. Hringið í sima 23900 og 20788. snoa $mm twi FISKUR Reyktur fiskur, ýsuflök, ný ýsa og sólþurrkaður saltfisk- ur, nætursöltuð ýsa, fiskur, saltsíld í lauk. Egg og lýsi FISKMARKAÐURINN ^ Langholtsvegi 128. " Simi 38057 Hjólbardaverkstæðið M Y L L A N Viðgerðu á ails Kona, njOlbörðum - Selium einnv 'a. -tærðn bióinarða vonduð vinna Hagstætt verð M Y L L A \ Þverholtt 5. Frægt fólk Sumir rnuna ef til vlll eftir unga Bandaríkjamanninum Garry Davis sem frægur varð sem „heimsborgari nr. 1“, þegar hann sagði skilið við bandaríka vegabréfið sitt og bjó sér til annað. Garry Davis Nú er hann orðinn 41 árs og er orðinn alveg uppgefinn á hlutverki sínu sem heims- borgari, því að satt að segja hefur þvi ekki verið sérlega vel tekið. Hann hefur nú (með bandarískt vegabréf í lagi) setzt að á Thahiti. — Ég verð að viðurkenna að heimurinn er ekki nógu þroskaður ennþá til að taka við hugmyndum minum, segir Garry og andvarpar . . . en hann verður að viðurkenna að hann hefur valið sér heppileg an stað til að dveljast á með an hann er að ná sér eftir vonbrigðin. Farouk fyrrverandi Egypta- landskonungur ætlar að fara að kvænast í þriðja skipti. Sú hamingjusama er rauðhærð sópransöngkona IrmaCapcce Farouk Minutolo að nafni. Irnia var fegurðardrottning í Napoli fyr- ir tíu árum og þá kynntist Farouk henni. Síðan hafa þau verið góðir vinir og hefur Farouk styrkt hana til söng- náms. Farouk er nú 43 ára gamall. f Irma tilkynnti fyrirætlun þein.i skömmu fyrir páska — en ekki hefur verið gefið upp hvar eða hvenær hjónavígslan ! fari fram — „En það er satt“, | segir brúðurin tilvonandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.